Bændablaðið - 27.06.2024, Page 10

Bændablaðið - 27.06.2024, Page 10
10 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Í Reykjalundi í Grímsnesinu hafa garðyrkjubændurnir Áslaug Einarsdóttir og Bandaríkja- maðurinn Nicholas Ian Robinson tekið upp þráðinn frá sumrinu 2022 og rækta nú enn meira grænmeti en áður, eftir framkvæmdahlé síðasta sumar. Þau hafa notað tímann til að færa út kvíarnar og ætla sér að auka framleiðsluna um helming með því að stækka ræktarlandið og byggja nýtt gróðurhús. Auk þess voru þau að leggja inn umsókn til Vottunarstofunnar Túns um lífræna vottun á framleiðslu sína. Þau hafa samt sem áður beitt hugmyndafræði lífrænnar ræktunar alla tíð, hafa þau grundvallargildi að tryggja sjálfbærni og einblína á notkun jarðvegsbætandi efna úr nærumhverfinu. Þau nota því hvorki skordýraeitur né illgresiseyði við ræktunina. Nálgast það að vera talin meðalstór Þau eru þriðju kynslóðar garðyrkju- bændur í Reykjalundi og hófu sinn búskap þar árið 2014, með litla ræktun og sölu. Stórt skref var tekið hjá þeim í stækkun stöðvarinnar árið 2019. Nicholas segir að þau flokkist enn sem smáframleiðendur, vegna þess hversu lítið landsvæði er undir ræktun hjá þeim. Því hafi þeim ekki staðið til boða að fá jarðræktarstyrki enn þá, sem þau Áslaug telja að sé þó gríðarlega mikilvægt fyrir smáframleiðendur til að koma sér af stað, vegna þess hversu fjárfestingakostnaðurinn geti verið þungbær. Þó með nýjustu stækkunum hjá sér nálgist þau að vera komin með framleiðslugetu sem sé nálægt meðaltalsframleiðslu garðyrkjubýla á Íslandi. Einn er þó meginmunur á Reykjalundi og flestöllum öðrum garðyrkjubýlum, sem er að uppskera þeirra er nánast eingöngu seld beint til viðskiptavinanna. Langmest af henni er seld í áskrift, bæði til viðskiptavina í nærsveitum og á höfuðborgarsvæðinu. Um 40 tegundir í ræktun Nýlega hóf Reykjalundur samstarf við dreifingarfyrirtækið Pikkóló sem rekur sínar Pikkóló-dreifistöðvar á fjórum stöðum í Reykjavík. Er ætlunin í sumar að senda áskriftapoka á þessar stöðvar. Ekki verður boðið upp á heimsendingar í sumar en þau veða með mánaðar- legan markað sem þau gefa fljótlega nánari upplýsingar um. Síðar í sumar verða þau með heitt á könnunni fyrir þau sem vilja kíkja í heimsókn og fá leiðsögn um býlið og kaupa grænmeti beint úr beðunum. Þau segja að nánari upplýsingar um þá markaði muni liggja fyrir mjög fljótlega. Hægt er að fylgjast með á Facebook-síðu Reykjalundar hvenær þau opna fyrir heimsóknir í sumar. Vegna þessa viðskiptafyrir- komulags eru tegundir í ræktun hjá þeim óvenju fjölbreyttar – og óhætt að fullyrða að fáar garðyrkjustöðvar slái þeim við hvað það varðar en Nicholas telst til að tegundirnar séu um 40 talsins. Doktorsverkefni í Kaliforníu Þau segja að undanfarna vetur hafi þau dvalið í Kaliforníu, þar sem Nicholas vinni að doktorsverkefni sínu, auk þess sem hann sinni kennslu við háskóla í Kaliforníu. Í því verkefni, sem er á sviði landfræði, kortleggur hann íslenska garðyrkju, skoðar aðstæður, rekstur og umfang ræktunar hverrar garðyrkjustöðvar meðal annars í þeim tilgangi að kanna hvernig nálgast megi sjálfbærni í innlendri garðyrkjuframleiðslu. Á sumrin hafa þau einbeitt sér að því að þróa búreksturinn í Reykjalundi. Þegar blaðamann bar að garði mátti sjá að von væri fljótlega á fallegri uppskeru fyrir áskrifendur, enda er stefnt að því að fyrsta afhending verði 29. júní. Áskriftartímabilinu lýkur svo 19. október. Ferskur hvítlaukur og fennel Meðal tegunda í ræktun á Reykjalundi eru ýmis afbrigði kirsuberjatómata, einnig stórir „Slicer tómatar - heirloom og beefsteak tómatar“, agúrkur, grænkál (svart eða rautt), Chard- eða Collardkál, ýmsar salathausategundir, baby mustard greens, klettasalat, næpur, radísur, kryddjurtir (steinselja, basilika, vorlaukur og fleiri kryddjurtir), eggaldin, kúrbítur, blómkál, ferskur matlaukur, hvítlaukur, sætar snakkpaprikur, chili-pipar, paprikur, beður, broccolini, sellerí, gulrætur og fennel. Nálgast má frekari upplýsingar um ræktunina í Reykjalundi og áskriftarfyrirkomulagið á vefnum þeirra, reykjalundurgardyrkja.is.                      Reykjalundur: Auka grænmetisframleiðsluna um helming og sækja um lífræna vottun – Gróðrarstöðin er með óvenju fjölbreyttar tegundir í ræktun Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Útiræktaðir ætiþistlar, sem Nicholas telur einkar hentuga tegund hér á Íslandi. Áslaug og Nicholas í Reykjalundi, með tómata- og kúrbítsplöntur beggja vegna við sig. Myndir/smh Hluti af ræktarlandinu í Reykjalundi, hvítlauksræktunin í forgrunni hér á mynd. Í Reykjalundi eru ræktaðar um 40 tegundir af grænmeti og salati. Myndir / Reykjalundur Salatbeðin hafa tekið á sig fallega mynd. Nicholas handtínir illgresi á milli hvítlauksbeðanna. Mikil rabarbararæktun er í Reykja- lundi.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.