Bændablaðið - 27.06.2024, Side 39

Bændablaðið - 27.06.2024, Side 39
39Á faglegum nótumBændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 mikill hjá kúm með litla seiglu. Auk þess er tekið tillit til fjölda áfalla á mjólkurskeiðinu þannig að eiginleikinn er skilgreindur sem fjöldi áfalla og hversu hratt kýrnar jafna sig á þeim. Rannsóknin sýndi að seigla er með lágt arfgengi og jákvætt samband við heilsufars-, frjósemis- og endingareiginleika sem skýra 55% af eiginleikanum. Þau 45% sem út af standa eru hins vegar viðbótarupplýsingar varðandi heilsufar kúnna og geta því aukið á hreysti og endingu þeirra. Hollendingar hafa nú þegar birt kynbótamat fyrir eiginleikann þar sem t.d. 92 þýðir að það tekur kúna 14 daga að ná fyrri nyt eftir áfall og fjöldi áfalla á mjólkurskeiði er 4,8. Kynbótamat upp á 108 þýðir aftur á móti að kýrin verður fyrir 2,4 áföllum á mjólkurskeiði og jafnar sig á 7 dögum að meðaltali. Það þarf ekki að horfa lengi á þessar tölur til þess að sjá hve miklu máli skiptir að kýrnar jafni sig hratt á fáum áföllum til þess að fjárhagslegur ávinningur sé orðinn verulegur. Seinni málstofurnar tvær fjölluðu einkum og sér í lagi um endurbætur aðferða við erfðamat og samanburð milli landa. Meðhöndlun óþekktra foreldra við keyrslu erfðamats fékk þó nokkra athygli sem og uppbygging á fjölþjóðlegu erfðamati þeirra landa sem nota EuroGenomics- flögu til arfgreininga. Þá var einnig umfjöllun um endurbættan hugbúnað til þess að meðhöndla gríðarstór gagnasöfn en slíkt er víða orðið áþreifanlegt vandamál með fjölgun mælinga, mæliþátta og arfgreindra gripa. Sá lærdómur sem við getum dregið af þessum fundi og erindum er sá að við þurfum svo fljótt sem verða má að þróa mat fyrir fóðurnýtingu kúnna. Til þess höfum við nú þegar gögn um fallþunga kúnna en flest bendir til að bæta megi matið með fleiri mælingum á metanlosun. Hérlendis er einungis verið að mæla metanlosun á Hvanneyri en til þess að safna megi nægilegu magni gagna þyrfti að framkvæma þessar mælingar á fleiri búum. Jafnframt bættri fóðurnýtingu væri vert að huga enn betur að mati á heilsufarsþáttum og þar kemur eiginleiki eins og seigla sterkt inn í myndina. Slíkt er þó tæplega raunhæfur möguleiki fyrr en hægt verður að safna gögnum um dagsnyt verulegs fjölda kúa með rafrænum og sjálfvirkum hætti. Höfundur er ráðunautur hjá RML Efnistök sem voru fyrirferðar- mikil að þessu sinni snúa að aukinni notkun holdasæðis á mjólkurkýr samhliða aukinni notkun á kyngreindu sæði, loftslagsmálum og sjálfbærni auk þess sem gagnasamskipti og gagnamagn voru einnig til umræðu. ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar Ný kynslóð útihitara Gæða útihitarar á verönd, svalir og öll útisvæði. Þola regn og mega vera úti allan ársins hring. Stillanleg veggfesting fylgir og fjarstýring með 3 hitastillingum. Skjólveggir fyrir bústaðinn Sérlega fallegir skjólveggir úr gleri sem veita gott skjól án þess að trua útsýnið. Veggirnir koma í ýmsum stærðum og útfærslum. Verið velkomin í Flísabúðina og fáið ráðgjōf sérfræðinga okkar. Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is Urðarhvarfi 4 - 203 Kópavogi - nitro.is BETA TILBOÐ 100.000,- kr. afsláttur af öllum Beta hjólum á lager.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.