Bændablaðið - 27.06.2024, Side 50

Bændablaðið - 27.06.2024, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024Líf & starf Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundum sínum 8. maí og 13. júní 2024 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu vegna 3. áfanga íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar í auglýsingu skv. 1. mgr. 31 gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagsbreytingunni felst að íbúðarsvæði ÍB2 stækkar til vesturs um 6 ha. inn á svæði sem í dag er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L) í aðalskipulagi. Deiliskipulag 3. áfanga íbúðarbyggðar er framhald af áður skipulögðum áföngum íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar þar sem gert yrði ráð fyrir íbúðarbyggð með 14 nýjum einbýlis-, par- og raðhúsalóðum. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla, milli 20. júní og 1. ágúst 2024, á heimasíðu Hörgársveitar, www.horgarsveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 158/2024 (aðalskipulagsbreyting) og 159/2024 (deiliskipulag). Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 1. ágúst 2024 til að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málunum á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulags- og byggingarfulltrúi Glæsibær í Hörgársveit, 3. áfangi íbúðarbyggðar – auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu. EFNI: Einband eða fíngert tvíband 120m eins og t.d.: Dóru Band Einband jurtalitað (25g) Þingborgar Einband (25g) Dís frá Uppspuni (25g) Gilitrutt frá Helene Magnusson (25g) Einband frá Hespu (25g) Þetta band sem hér er mælt með er með 220- 240 mtr í 50 gr. Hægt er að nota hvaða garn annað sem er í svipuðum grófleika. ÁHÖLD: prjónar 4.5mm heklunál 4.5mm BYRJUN: Fitjið upp 3 L. Prj. slétt til baka. Setjið prjónamerki (PM) fyrir byrjun umferðar á réttu (Ré) og gott að hafa prjónamerki á réttunni allan tímann til að ruglast ekki á röngu (Rö) og réttu. Prjónið 4 umf. slétt og endið aftur á PM. Útaukningar - á réttunni. Á röngunni er altaf prjónað slétt til baka! 1. Ré: prj. 2L sl, slá upp á, 1L sl. ( = 4 L) 3. Ré: prj. 2L sl, slá upp á, 2L sl. ( =5 L) 5. Ré: prj. 2L sl., slá upp á, 3 L sl. ( = 6 L) MUNSTRIÐ – „Gatasnar“: „Gatasnar“ með útaukningum: 1. umf (Ré): prj. 2 L sl., slá upp á, *2 L saman, slá upp á*, siðustu 2 L sl. 2. umf (Rö): prj. sl til baka 3. umf (Ré): prj. 2 L sl, slá upp á, *2 L saman, slá upp á*, siðustu 3 L sl. 4. umf (Rö): prj. sl til baka Endurtekið þangað til 42 L eru á prjónunum. „Gatasnar“ með úrtökum: 1. umf (Ré): prj. 2 L sl., 2 L saman, * slá upp á*, 2L saman*, siðustu 2 L sl. 2. umf (Rö): prj. sl til baka 3. umf (Ré): prj. 3 L sl., 2 L saman, * slá upp á*, 2L saman*, siðustu 2 L sl. 4. umf (Rö): prj. sl til baka Endurtekið þangað til 7 L eru á prjónunum. ENDIR: 1. Ré: prj. 3 L sl., 2 L saman, síðustu 2 L sl. ( = 6 L) 3. Ré: prj. 2 L sl., 2 L saman, síðustu 2 L sl. ( = 5 L) 5. Ré: prj. 1 L sl., 2 L saman, síðustu 2 L sl. ( = 4 L) 7. Ré: prj. 1 L sl., 2 L saman, síðustu 1 L sl. ( = 3 L) Prjonið 4 umf sléttar og fellið af. Heklið Picot kant (Hnútakantur) utan um klútinn: Byrjið með því að stinga heklunálinni í jaðarlykkju, gerið eina loftlykkju og fastalykkju í sömu L. # Heklið 1 fastalykkju, þá 3 loftlykkjur, tengið þær í fastalykkjuna sem þær eru heklaðar upp úr með keðjulykkju til að mynda hnút. Heklið fastalykkju i næstu jaðarlykkju. Endurtekið frá #. Heklað er í eina jarðalykkju fyrir hverjar 2 prjónaumferðir. Slítið frá og gangið frá endum. Skolið úr klútnum og leggið til þerris. Hönnun: Maja Siska Hannyrðir: Hölluklútur – úr íslenskri ull Þær Ingigerður, Helga, Arnþrúður, Anna, Guðbjörg, Lilja, Lorya, Halldóra, Valgerður og Margrét eru meðal þeirra sem standa að Ullarvikunni, sem verður haldin í þriðja sinn nú í haust. Þórey og Anna María með Líru. Ullarvika á Suðurlandi Ullarvika á Suðurlandi verður haldin í þriðja sinn dagana 29. september til 5. október 2024. Ullarvikan er haldin á ýmsum stöðum á Suðurlandi, frá Ölfusi í vestri og allt austur í V-Skaftafellssýslu, en aðal miðstöð Ullarviku verður í félagsheimilinu Þingborg. Hér birtist fyrsta uppskriftin sem er tengd við Ullarviku og heitir Hölluklútur, hönnun Maju Siska fyrir Ullarvikuna. Innblástur að þessum litla klút er kominn frá Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta okkar, en hún skartaði oft fallegum klútum í aðdraganda kosninga. Þessi litli prjónaði klútur með hekluðum skrautkanti er fljótgerður og hver sem eitthvað kann í prjóni getur spreytt sig á honum. Að auki er hann mjög hlýr að hafa um hálsinn og í kvefi næsta vetrar getur hann komið sér vel. Hægt er að prjóna hann úr nánast hvaða fíngerða bandi sem er, sjá uppskrift. Allar upplýsingar um Ullarviku er að finna á vefsíðunni www.ullarvikan.is Hölluklútar af ýmsu tagi. Klettagörðum 11 - 104 Reykjavík - meiraprof.is - meiraprof@meiraprof.is Réttindin gilda í Evrópu Auknir atvinnumöguleikar Íslensk og ensk námskeið C-CE-D-C1-C1E-B/Far Skráning á námskeið er inni á síðunni meiraprof.is Fyrirspurnir sendist á meiraprof@meiraprof.is Íslensk námskeið mánaðarlega Ensk námskeið 4 - 6 sinnum á ári

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.