Víðförli - 01.03.1947, Side 7
IIOKFT ÚT í HKIM
harðvítuga ofsókn yfir hana. Svo mikið er víst, þótt erfitt sé
hinsvegar að afla sér öruggrar vitneskju um, hve víðtæk sú
ofsókn var. En það er staðreynd, að kirkjur voru teknar eignar-
námi og öll kristin þjónusta mjög torvelduð, prestaskólum var
lokað, ríkisvaldið lýsti opinskátt yfir fjandskap sínum við trú-
arbrögðin og studdi hina s. n. guðleysishreyfingu. Rússnesk
yfirvöld stefndu markvíst að útrýmingu alls átrúnaðar a.m.k.
í hálfan nnnan áratug eftir byltinguna.
Á árunum næstu fyrir stríð var orðin talsverð breyting á
þessu. Guðleysisáróðurinn dró saman seglin, ríkisvaldið varð
linara við kirkjuna. Og á stríðsárunum urðu þau tíðindi, að
Sovétstjórnin samdi opinberan frið við kirkjuna. Friðurinn var
staðfestur með hátíðlegu kjöri nýs patriarka (yfirbiskups), og
við það tækifæri lýsti fulltrúi ríkisins yfir því, að kirkjan
skyldi hér eftir hafa fullt frelsi til hverskonar nauðsynleg'rar
starfsemi. Prestaskólar hafa verið opnaðir að nýju, ríkið hefur
látið opna og afhenda kirkjur, sem lokað hafði verið og bannað
að nota til guðsdýrkunar. Guðleysisáróðurinn er úr sögunni.
Rómv.-kaþ. prestur, sem dvalið hefur í Moskvu sem opinber
sendimaður Bandaríkjanna um 12 ára skeið, segir í blaðavið-
tali, að óhætt sé að telja, að þriðjungur rússnesku þjóðarinnar sé
guðstrúar. Hann þakkar það hollustu heimilanna við trúna á
þeim árum, þegar allt opinbert trúboð var bannað. A stríðs-
árunum, segir hann, leitaði þorri þjóðarinnar aftur i skaut
kirkjunnar, hermenn og aðrir flykktust í kirkjur til bænagjörða
og ríkisvaldið sýnir kirkjunni „vinsamlegt umburðarlyndi“.
Hinn nýi patriark í Moskvu hefur látið svo ummælt í bréfi til
„bræðra og systra“ erlendis, að „allt bendi til, að rússneska
kirkjan eigi blómatíma í vændum" og að hún njóti „óskerts
trúarlegs frelsis til þess að inna af hendi þjónustu sína við
rússnesku þjóðina“. Rússneskir kirkjumenn, sem heimsóttu
England í fyrra, sögðu frá því, að stjórnin í Moskvu hefði lofað
að endurbyggja kirkjur, sem orðið hafa fyrir skemmdum. Árið
1940 voru taldir 4225 söfnuðir í Rússlandi, nú eru þeir yfir
20.000. Biskupsdæmin voru 28 árið 1940, nú 90. Árið 1944 voru