Víðförli - 01.03.1947, Side 39
NORSKA KIRKJAN HERNÁMSÁRIN
37
Um þetta leyti gaf leppstjórnin út þá skipun, að þagnar-
skylda prestanna ttm skriptamál væri afnumin. Leitaði margur
á þessum árum til prestsins, og þótti því gott að geta skyldað
prestinn til ýmissa uppljóstrana, er máli skiptu. Var þetta fer-
legt brot á rétti kirkjunnar og skyldu, seni hún hefur átt frá
öndverðu. Lúta orð í bréfi biskupanna að þessu.
Nú leið árið 1941 í aldanna skaut. Stóð þá svo, að nærri lá
því, er varð: algjöru stríði milli kirkju og nazismans.
„Norsk samling“ nefndist flokkur Quislings. Var hann sá
eini, er leyfður var. Fólki var skipað að styðja hann á hverja
lund. „Hirðin“, svo nefnd, fór um með brauki og bramli, mis-
þyrrndi, myrti og kúgaði. Gegn öllu þvíliku hlaut kristin kirkja
að í'ísa. Hún er ávallt vörn kúguðum og stormahlé í ofviðrum
heiðninnar. Biskupar, prestar og leikmenn fóru um meðal fólks-
ins, hlýddu á skriptamál þess, hugguðu, áminntu, upplýstu og
boðuðu ena heilnæmu kenningu.
„Kristent samrád“ var eð vakanda auga og eyra og hafði
alla þræði í hendi sér, skipulagði, samræmdi, bað og las Guð.s
orð. Fólk kom saman í kirkjum og samkomuhúsum og þyrsti
eftir enu lifanda orði. Og einnig í heimahúsum bomu menn
saman að hætti Lesaranna gömlu. Vakningar og hrifningaralda
fór um gjörvallan Noreg.
En hinsvegar herti stjórn Quislings tökin. Hún setti ákvæði
og skipaði fyrir, þrengdi kosti manna, rúði og reitti.
Og nú gjörðust tíðindi mikil. Þann enn 1. febr. 1942 gjörðust
þeir atburðir, að Hitler kanzlari Þýzkalands gjörði Quisling
að „stjórnarforseta“ (ministerpresident) í Noregi en þó háðan
landsstjóranum þýzka, Terboven. Þótti Quisling þetta þvílík
hefð'artign, að hann skipaði svo fyrir, að mikil hátíðahöld
skyldu fara frani og nýr þjóðhátíðardagur gefinn þjóðinni,
fremri 17. maí og 7. júní. Þótti hlýða að velja ena fornu dóm-
kirkju í Niðarósi til hátíðamessu. Varð dómprófasturinn Arne
Fjellbu að víkja frá altari og úr prédikunarstól við hámessuna
þann dag fyrir quislingnum Blessing Dale. Var valdi beitt til
þessa. Hugðist Fjellbu þá messa kl. 2 sama dag. Gekk hann til