Víðförli - 01.03.1947, Page 50

Víðförli - 01.03.1947, Page 50
48 YIÐFORLI þeir hafi þann sið að koma saman á ákveðnum degi fyrir sól- arupprás og syngja Kristi lofsöngva sem Guði. Síðan komi þeir saman að deginum til að neyta saklausrar máltíðar. Hér virðist. talað um óttusöng að morgninum og messu að deginum. Þriðji vitnisburður um {)etta mál er í riti, sem kallast „Kenn- ing hinna tólf postula“. Það er talið ritað einhverntíma á tíma- bilinu frá 120 til 160 e. Kr. Þar segir í 14. kafla: „Komið saman á drottinsdegi, brjótið brauðið og haldið kvöldmáltíð, eftir að hafa játað yfirtroðslur yðar, svo að fórnin megi hrein vera“. Hér kemur fram, að messan hefur verið haldin á drottinsdegi að undangengnum skriftum. I 15. kafla sama rits segir: „En framkvæmið bænir yðar og ölmusur og öll yðar verk eins og þér finnið í guðspjalli Drottins“. Auk þessa eru í ritinu bænir, sem lesr.ar voru yfir brauðinu og víninu og þakkarbæn eftir sakramentið. Fjórði vitnisburður er eftir Ignatius frá Antiokkiu 'líkl. fyrir árið 117. Hann leggur áherzlu á nauðsyn þess að meðtaka kvöldmáltíðarsakramentið og á bæniua. Fimmti vitnisburður er frá Jústínusi píslarvotti um árið 140. Hann ritar trúvarnarrit, sem ætlað var heiðnum lesanda. Segir hann þar frá guðsdýrkun kristinna manna, án þess þó að s'krá orðalag athafnanna, eins og hún tíðkaðist í Róm á þeim tíma. Getur hann bæði um óttusönginn og messuna. I messunni telur hann þessa liði: 1. Ritningarlestur, minningar postulanna eða rit spámannanna, 2. prédikun biskups eða prests, 3. almenn bæn, 4. friðarkoss, 5. djákni ber fram fyrir prestinn brauð, vín og vatn, 6. þakkarbæn biskups, 7. helgunin, 8. bæn, 0. fólkið anzar: Amen, 10. útdeiling, 11. fórnargjafir, sem fram fóru ein- hverntíma í messunni. Hann segir og, að messan fari fram á sunnudegi, „af því að á honum skapaði Guð heiminn og á hon- um reis frelsari vor upp frá dauðum“. Tvennar gagnmerkar heimildir eru enn frá síðasta hluta þessarar aldar og fyrri hluta þeirrar þriðju. Höfundar þeirra eru biskuparnir Tertullianus og Cyprianus. Gefa þeir ýmsar

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.