Skógræktarritið - 15.05.2004, Side 5
ob - 3 0(3^
Um myndina á kápu
Þessi mynd Kjarvals er nú í
eigu Minjasafns Austurlands á
Egilsstöðum. Áðuráttihana
Guttormur Pálsson, skógarvörður
a Hallormsstað, og raunar aðra
litla vatnslitamynd eftir Kjarval,
þar sem horft er yfir Innskóginn á
Hallormsstað og Snæfell fyrir
miðju. Svo lengi sem ég man,
héngu báðar myndirnar á skrif-
stofu Guttorms í Hallormsstaða-
bænum. Börn Guttorms gáfu
Minjasafninu innbú föður síns,
og voru báðar Kjarvalsmyndirnar
í þeirri gjöf.
Aftan á blindrammanum á
þessari skógarmynd Kjarvals
stendur skrifað: „Myndin er mál-
uð 1922". Á þessari stundu vitum
við ekkert frekar um dvöl Kjarvals
á Hallormsstað þetta sumar.
Mér er heldur ekki kunnugt um,
að hann hafi komið þangað síðar.
Myndin var allmikið skemmd
og auk þess óhrein eftir að hafa
hangið uppi í 80 ár. En nú hefir
Morkinskinna í Reykjavík gert við
hana og hreinsað, svo að nú fá
lesendur Skógræktarritsins að sjá
hið sanna útlit hennar.
Ég þóttist viss um, að fáum
utan fjölskyldu Guttorms Páls-
sonar og nánustu vandamönnum
væri kunnugt um þessar tvær
myndir. Velti raunar fyrir mér,
hvort skógarmyndin væri ekki
næsta fágæt á listferli Kjarvals.
Fyrir því sneri ég mér til þeirra
tveggja, sem ég taldi myndu geta
frætt mig um það: Eiríks Þorláks-
sonar, forstöðumanns Listasafns
Reykjavíkur, og Kristínar Guðna-
dóttur listfræðings, forstöðukonu
Listasafns ASÍ, sem Eiríkur benti
mér á, að væri nú okkar mesti
Kjarvalssérfræðingur, er enda að
skrifa bók um listamanninn. Ég
sagði þeim báðum, að Morkin-
skinna væri búin að gera við
myndina.
Kristín skrifaði mér bréf 25.
september sl., sem hún gefur fyr-
irsögnina „Varðandi Kjarval og
Hallormsstað", og hefst þannig:
„Kjarval dvaldi á Austurlandi
sumarið 1914 og fram á haust.
Verkefni hans var að mála altaris-
töflu fyrir Bakkagerðiskirkju.
Samkvæmt skriflegum heimild-
um málaði hann einnig á Hall-
ormsstað, en í umsögnum um
sýningar hans á Seyðisfirði og í
Reykjavík er þessara mynda get-
ið. Ég hefi undir höndum upp-
lýsingar um fjórar myndir sem ég
tel vera úr þessari ferð, tvær
landslagsmyndir með skógi í for-
grunni og tvær skógarmyndir.
Þrjár myndanna eru vatnslita-
myndir en ein þeirra olíu-
mynd|...| Ég skoðaði skógar-
myndina í Morkinskinnu og er
hún að ég tel þroskaðra verk en
þau sem hér um ræðir enda er sú
mynd frá 1922 samkvæmt upplýs-
ingum á þlindramma og getur
það vel passað."
Kristín sagðist ekki hafa séð
aðrar myndir eftir Kjarval frá
þessum tíma með íslenskum
skógi en þessar, sem hún nefnir í
bréfinu. Þannig er óhætt að full-
yrða, að olíumyndin frá 1922 sé
býsna sérstök, að þvf er varðar
val Kjarvals á viðfangsefninu.
Sigurður Blöndal
§i
f'5 „Embla"
ar In/nhaaH W\r\/\ AfKal/cti it
er kynbætt birki. Afrakstur
kynbótasamstarfs Markar,
Gróðurbótafélagsins og Þorsteins
Tómassonar forstjóra Rala.
Öll ágræðsla móðurefnis
og framleiðsla Emblu-fræja
fer fram í Mörk.
m
Allt birki sem selt er í
Gróðrarstöðinni Mörk er „Embla".
Til í öllum stærðum frá
m> skógarplöntum og uppúr.
V
&
Kostir „Emblu"
„Embla" hefur þá ríkjandi eiginleika að vera
beinstofna tré með einn leiðandi Ijósan stofn.
Hraðvaxta og harðgert.
Þar sem tréin eru ræktuð
Yfir 30 ára reynsla
Hjá okkur færðu faglega ráðgjöf.
GROÐRARSTOÐIN
STJORNUGROF18, SIMI581 4288, FAX 581 2228
Sækið sumarið til okkar
www.mork.is
eAí
.\v
=//