Skógræktarritið - 15.05.2004, Page 101

Skógræktarritið - 15.05.2004, Page 101
Þar óku bflarnir í land og við héldum vestur yfir hálsana til Rissa og komum þar kl. 23.30, eftir mjög ánægjulegan dag og mjög heitan. Hitinn mun hafa varið yfir 30 stig í skugganum. Himinninn var heiður og blár og hvergi sást ský á lofti, en blá hita- móða gerði skyggnið lakara en æskilegt hefði verið. Fyrsta daginn sem við vorum í Rissa kom það til tals að strák- arnir f skógræktarhópnum lékju knattspyrnu við heimamenn. Strákarnir fóru að æfa sig lítillega á kvöldin, en þegar þeir komu f félagsheimilið í Rissa og sáu þar innrömmuð heiðursskjöl sem knattspyrnufélagið í Rissa hafði fengið fyrir sigra í knattspyrnu, lá nærri að hugrekkið bilaði. Svo fór þó ekki og á mánudagskvöld fór leikurinn fram. Fyrri háifleik lauk þannig að ekkert mark var skorað, en um miðjan síðari hálfleik skor- uðu Rissamenn mark, en á sömu mínútu jöfnuðu íslendingar með óverjandi marki. Leiknum lauk með 1:1 og voru það góð úrslit fyrir íslendinga, því hinir áttu meira í leiknum. f framlínunni voru tveir Akureyringar hættuleg- astir. Miðvikudaginn 12. ágúst fórum við alfarin frá Rissa. Fyrst fórum við til Þrándheims. Þar var byrjað á að skoða dómkirkjuna, það stórfenglega listaverk. Hún er krosskirkja, 100 metrará lengd og 50 metra breið. Turninn er 99 metrar á hæð. Þegar við vorum að skoða kirkjuna, var þar fyrir fjöldi af ferðamönnum í sömu er- indum og nokkrir leiðsögumenn leiðbeindu gestum. í gluggum kirkjunnar eru glermálverk. Okkur var sagt að í gluggunum væru 2000 rúður með lituðu gleri, og pípuorgelið sem er f kirkjunni var okkur sagt að væri það stærsta í Evrópu, norðan Alpafjalla. Til þess að við fengjum að heyra í orgelinu voru leikin á það tvö tónverk. Má með sanni segja að orgelið hæfði kirkjunni. Hvelfing kirkjunnar er feikna há og þótt sól skíni inn um gluggana og kveikt sé á öllum rafljósum er samt rökkur uppi í hvelfingunni. Ég ætla ekki að reyna að lýsa kirkjunni nánar. Til þess brestur mig orð og hæfileika. Sú tign og sá hátíðablær sem hvílir yfir kirkj- unni gagntekur svo hugann að mér fannst ég verða eins og agn- arlítið barn í þessum mikla geim. Ég held að engin predikun hversu kröftug sem hún kann að vera, verki eins á hugann og hin tignar- lega og mikilfenglega kirkja sem óhjákvæmilega hlýtur að hrífa hugann. Maðurinn finnurað hann er í Guðshúsi og stendur frammi fyrir einhverju sem er ólýsanlega tilkomumikið, mátt- ugt og voldugt. Þegar við höfðum skoðað kirkj- una, sátum við í boði bæjar- stjórnar Þrándheimsborgar á Hótel Britanía ásamt skógræktar- fólkinu, sem kom sunnan úr Guð- brandsdal undirstjórn ísleifs Sumarliðasonar. Að veislunni lokinni skildu leiðirá ný. Hópur ísleifs skoðaði borgina og hélt svo yfir til Rissa, en Sigurður Blöndal fór með sinn flokk suður yfir Dofrafjöll, til Vágámo, þar sem okkur var tekið með sömu alúð og annars staðar í Noregi. Ég ætla ekki að lýsa störfunum í Vágámo, það var aðeins endur- tekning á því sem gerðist í Rissa. Eg ætla aðeins að segja frá tveim skemmtiferðum sem við fórum þaðan. Eitt kvöldið var okkur boðið í bílferð upp á fjall sem heitir Blaahojden, 16I8metrará hæð. Þar stendur til að byggð verði fjarskiptistöð, og þar af leiðandi var lagður bílvegur upp á fjallstoppinn. Þessi vegur er ekki opnaður fyrir almenna um- ferð. Okkur var sagt að við værum fyrstu íslendingar sem kæmum upp á fjaliið. Farið var upp á fjall- ið á 10 fólksbílum. Víðsýni er mikið af fjallinu í allar áttir. f austur sést allt að landamærum Svíþjóðar. í vestri sjást hæstu fjöll Noregs og stærsti jökull Nor- egs, Jostedalsbræ. Sunnudaginn 16. ágúst var bjart og gott veður eins og alla aðra daga sem við vorum í Nor- egi. Sama dag bauð bæjarstjórn- in í Vágo okkur í skemmtiferð suður í Jötunheima. Við lögðum af stað kl. 10.30 á stórum og góð- um langferðabíl, sem okkar ágæti bílstjóri Trygve Svare ók. Hann hefur mest ekið okkur undanfarið og ber heiðursmerki fyrir tuttugu ára öruggan akstur. Fyrst var ekið um stund inn með Vágámovatni, sem er mjög langt og mjótt stöðuvatn. Síðan er beygt til suð- urs, eftir fremur grunnum dal, þar til komið er upp á hálendið, f 900 til 1100 metra hæð yfir sjó. Eftir það er vegurinn að mestu lárétt- ur, þar til komið er inn á milli snævi þakinna risafjalla Jötun- heima. Gróðurinn minnir á heiðagróður á íslandi, til dæmis á Jökuldalsheiði, en viða er smá- kjarr. Stöðuvötn, bæði stór og smá, eru hér og þar. Á milli þeirra eru lágir ásar og einstök fell, en fjær eru risafjöll með hamraþilj- um. og snjófönnum. Þar eru nokkrir af hæstu tindum Noregs. Nokkrir frá 2000 til 2460 metra yfir sjó. Náttúrufegurð er hér mik- il og fjölbreytt. Víða eru hér sel og fjallakofar, sem dvalið er í tíma og tíma, bæði vetur og sum- ar. Svo eru hér og þar fjallahótel, sem mörg uppfylla ekki ströng- ustu kröfur nútímans, en eru þó furðu fjölsótt. Við komum í eitt sel, þar sem öll selstörf voru í fullum gangi. Stór hópur af geitum var á beit skammt frá selinu og nokkrar beljur voru þar einnig. Við feng- um að skoða allt sem tilheyrði selinu. Öll hús voru úr timbri og fornleg að sjá en vel við haldið og þar var allt framúrskarandi hreint og þrifalegt. Einn hluti að- SKÓGRÆKTARRITIÐ 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.