Kjarnar - 01.09.1950, Page 93
Um haustið fór ég til Kaupmannahafnar að vanda.
Átti ég þá í mörgu að snúast. Meðal annars hafði ég
mestu ósköp af pöntunum frá fólki, einn bað mig að
kaupa þetta, annar hitt. Tók ég þessu greiðlega og lagði
ekkert á það, sem ég keypti, né tók fyrir fyrirhöfnina.
Með þessu jók ég vinsældir Gránufélagsins.
Um þær mundir sem póstskipið fór frá Kaupmanna-
höfn var ég farinn að kaupa útlendar vörur fyrir
Gránufélagið. Þurfti ég þá, auk annars að svara 100—
200 bréfum. Þar kenndi margra grasa í bréfum þessum,
en nú eru þau glötuð og munu sumir telja það skaða.
Loks var svo komið nóttina áður en skipið átti að fara,
að ég var búinn að svara meiri hluta bréfanna. Var ég
í þann veginn að hátta, en hélt þó áfram að blaða í
bréfunum, sem eftir voru.
Rakst ég þá á bréf frá síra Sigurði Gunnarssyni á
Hallormsstað. Segir hann þar meðal annars: „Nú höf-
um við fimm saman ferðast um sýsluna og okkur kom-
ið saman um engin á væri jafn skaðleg og hættuleg og
Eyvindará. Þar er 33 álna bil milli kletta og munu
þurfa 36 álna löng brúartré yfir hana. Fyrst þú varst
svo höfðinglyndur að lofa að leggja fram brúarefni. ef
við sæjum um verkið, myndum við taka með þökkum
brúarefni hjá þér yfir Eyvindará.“
Auðvitað hafði ég aldrei lofað slíku, en mér þótti
leitt að þeir Múlsýslingar rækju mig á stampinn í
þessu. —
Áður en ég held lengra fram sögunni, verð ég að
hlaupa rúm 20 ár aftur í tímann. Þá var ég á Hálsi í
Kjarnar — Nr. 13
91