Helgarpósturinn - 05.12.1985, Page 8
Af þessum ástæðum voru t.d. reikn-
ingar Hafskips USA fyrir 1984 án
áritunar, þótt þessir sömu reikning-
ar séu undirreikningar í árituðum
reikningum Hafskips h/f fyrir árið
1984. í bréfi frá Coopers og Lybrand
til Hafskips er tekið fram að það sé
slík óreiða á bókhaldinu að það
varði við bandarísk lög."
Hafskip borgadi bifreiö-
ir og einkabílaflutning
forstjórans
— En löggiltur endurskodandi
Þegar forráöamenn Hafskips h/f
lögöu á ráöin um aö hefja beinar
siglingar milli Bandaríkjanna og
Európu og kynntu hugmyndir sínar
í fyrra voru fáir sem viröast hafa
þoraö aö gagnrýna þessar fyrirœtl-
anir beint innan félagsins. Tveir
menn sátu ekki á skoöunum sínum.
Þetta voru þeir Björgvin Björgvins-
son sem starfaöi á skrifstofu Haf-
skips í New York og Gunnar Ander-
sen rekstrarhagfrœöingur sem þá
var framkvœmdastjóri dótturfyrir-
tœkis Hafskips, Cosmos sem er
flutningamiölunarfyrirtæki.
Björgvin varaði við þessu ævin-
týri í símtölum og skriflega þar sem
hann benti á vonleysi þessarar starf-
semi. Á þessa gagnrýni og efasemd-
ir var ekki hlustað og lýstu stjórn-
endur Hafskips yfir því að þeir
Björgvin og Gunnar væru úrtöiu-
menn og neikvæðir.
Gunnar segir við HP að hann hafi
lýst efasemdum sínum um Atlants-
hafssiglingarnar við Björgólf
Guömundsson forstjóra Hafskips í
júlí 1984 og kveðst hafa sagt að
hann teldi enga framtíð fyrir skipa-
félag sem Hafskip sem ekki byggi
yfir neinu markaðskerfi til að selja
þjónustuna og liði fyrir ýmiss konar
vanþekkingu sem þegar hefði kom-
ið fram í rekstri fyrirtækisins.
Þá talaði Gunnar einnig við Pál
Braga Kristjónsson, þáverandi fjár-
málastjóra og Helga Magnússon,
löggiitan endurskoðanda Hafskips á
fundi. „Þeir tjáðu mér að málið væri
mjög vel unnið, að um væri að ræða
svartsýnisspá o.s.frv." segir Gunnar.
Höfundar áætlunarinnar um N-
Atlantshafssiglingarnar voru þeir
Baldvin Berndsen, forstjóri Hafskips
USA og Þorvaldur Bergmann
Björnsson, hægri hönd Björgólfs
Guðmundssonar, forstjóra.
„í júlí 1984 spurði Sigurþór Guö-
mundsson, aðalbókari fyrirtækisins
mig að því hvað mér fyndist um
þetta N-Atlantshafssiglingaævintýri
sem var í burðarliðnum," segir
Gunnar Andersen við HP. „Ég svar-
aði því með spurningu og sptirði
Sigurþór: „Hvaðan koma forsend-
urnar?" Hann sagði að þær kæmu
frá Þorvaldi og Baldvin. Og þá sagði
ég: „Þarf ég þá nokkuð að svara
þessu?" „Nei," sagði hann og hristi
Hafskips á íslandi hefur látiö þessa
óárituöu reikninga duga og tekiö þá
góöa og gilda?
„Einmitt. Og þetta sýnir, svo vægt
sé til orða tekið, að atvinnu-
mennska þessa endurskoðanda
heima á Islandi virðist vera á lágu
stigi," segir Björgvin.
„Það má nefna mörg dæmi um
misferli og lögleysur hjá Hafskip
USA, einkum af hálfu forstjórans.
Eitt dæmið snýr að innflutningi
hans á bílum frá Evrópu handa sjálf-
um sér og vinum sínum. Þennan
innflutning borgaði Hafskip, bæði
hausinn. Hann var mjög efasemda-
fullur um vinnubrögð þessara
manna enda hafði hann kynnst
þeim mjög vel,“ segir Gunnar. „Nú,
síðan byrjaði þetta ævintýri og mað-
ur var orðinn mjög hræddur um
framtíð fyrirtækisins. Og ég vissi
náttúrulega að um leið og Hafskip
sykki, færi Cosmos á hausinn einn-
ig. Rekstur Cosmos var á þessum
tíma mjög erfiður enda ekki að hon-
um staðið eins og menn höfðu hugs-
að sér.
í janúar 1985 fór ég heim til ís-
lands og kynnti þar skýrslu sem ég
hafði tekið saman um stöðu Cosmos
og benti forráðamönnum Hafskips
á, að dæmið gengi ekki upp; að það
þýddi ekki að reka Cosmos eins og
það var rekið áður, en það var keypt
án breytinga, sem höfðu verið fyrir-
hugaðar en voru aldrei fram-
kvæmdar. Eftir þriggja daga funda-
höld og endalausar „plastíkformúl-
ur“ frá framkvæmdastjórn fyrirtæk-
isins fengusl engin skýr svör eða
ákvarðanir fyrir utan eina sem gekk
út á það að blekkja fyrrverandi eig-
anda Cosmos sem var enn starfandi
innan fyrirtækisins. Mér ofbuðu
þessi vinnubrögð, var óhress með
allt þetta mál og mótmælti þessari
ráðstöfun ásamt öðru en fékk ein-
göngu gagnrýni fyrir það. Ég kvart-
aði m.a. yfir samstarfinu við Hafskip
andvirði bílanna sem voru m.a. not-
aðir Mercedes Benz og BMW, og
sjálfan flutninginn, og allt þetta fór
sem kostnaður í bókhald Hafskips,"
segir Gunnar.
Þá tóku þeir Gunnar og Björgvin
sem dæmi skúffufyrirtæki Baldvins
Berndsens sem nefnist Georgia
Export Import. Það hefur áður verið
minnst á þetta „fyrirtæki" í HP.
Heimilisfang þess var m.a. á heimili
Baldvins og tók hann fyrst 900 doll-
ar (36000 kr. ísl.) og síðar 1000 doll-
ara (40000 kr. ísl.) fyrir veitta þjón-
ustu við skip Hafskips sem komu
USA og frammistöðu Baidvins
Berndsen forstjóra þess, og fékk þá
heldur betur gusu yfir mig fyrir að
virða ekki Baldvin og hans mörgu
góðu verk sem hann hefði unnið í
þágu féiagsins.
Þessi fundahöld enduðu með því
að á síðasta fundinum stóðu þeir
Björgólfur Guðmundsson, Páll Bragi
Kristjónsson og Jón Hákon Magnús-
son, framkvæmdastjóri markaðs-
og flutningadeiidar, upp og sungu
sálminn „Áfram Kristmenn kross-
menn". Ragnar Kjartansson stjórn-
arformaður, Sigtryggur Jónsson, þá-
verandi forstjóri Cosmos á íslandi
og ég, sátum stjarfir í sætum okkar
og vissum aldeilis ekki hvaðan á
okkur stóð veðrið.
Og þó. í rauninni kom þetta mér
ekki svo mjög á óvart, því Björgólfur
var oft búinn að segja við mig haust-
ið 1984 að maður ætti ekki að vera
svartsýnn; æðri máttarvöld myndu
alltaf hjálpa manni."
— Ertu aö gefa í skyn aö Hafskip
hafi veriö rekiö á einhverjum slíkum
forsendum?
„Já, á forsendum forlagatrúar og
sú trú var undirstrikuð."
— Áttu þá viö aö Hafskip sé fórn-
arlamb forlagatrúar?
„Hafskip er fórnarlamb mikil-
mennskubrjálæðis, græðgi einstakl-
inga og tækifærismennsku."
Björgvin Björgvinsson fv. starfsmaður
Hafskips USA. •
inn til hafnar í New York.
Hins vegar liggur fyrir að þessi
þjónusta var aldrei veitt enda keypti
Hafskip hana frá bandarískum aðilj-
um. Georgia Export Import var
þannig pappírsfyrirtæki, nptað til
þess að mjólka Hafskip. í þessu
dæmi er um að ræða einhverja tugi
þúsunda dollara sem þannig munu
hafa verið sviknir út úr Hafskipi.
„Ef við lítum á þetta á einfaldan
hátt, sést strax að fyrirtæki forstjór-
ans stenst ekki, því 1. júní 1982 var
opnuð skrifstofa Hafskips í Banda-
ríkjunum til þess að sjá um hafnar-
þjónustuna og að mestu leyti til þess
og einskis annars. Sölustarfsemin á
þessum tíma var ákaflega lítil, örfáir
viðskiptavinir og svo viðskiptin við
herinn, þannig að aðalverkefni
skrifstofunnar í New York, þ.e. Haf-
skips USA, var að sjá um afgreiðslu
skipa hér í borg og hafa samband
við umboðsmann félagsins í Nor-
folk," segir Björgvin Björgvinsson.
Forráöamenn Hafskips
vissu um skúffufyrir-
tækið
„Ég vissi fyrst af þessu fyrirtæki,
Georgia Export Import í ágúst 1982
og það var að minnsta kosti í gangi
fram að þeim tíma er ég var rekinn
frá fyrirtækinu." Björgvin var rek-
inn frá Hafskip fyrir að vera grunað-
ur um að vera heimildarmaður
Helgarpóstsins þegar blaðið fjallaði
fyrst um málefni Hafskips.
Björgvin kveðst hins vegar ekki
hafa verið nógu kunnugur skipa-
rekstri í upphafi til að átta sig á því
hvað væri á seyði í raun og veru..
Það gerði hann fyrst löngu síðar.
— En er hugsanlegt aö forstjórinn
hér í New York hafi getaö rekiö þetta
skúffufyrirtœki án vitundar forráöa-
manna Hafskips á Islandi?
„Nei, það liggur alveg ljóst fyrir
og var alls ekki leyndarmál að þetta
var gert með fullri vitneskju Haf-
skips í Reykjavík þar sem ég og ann-
ar starfsmaður Hafskips hér úti fett-
um fingur út í þetta," segir Björgvin.
„Við bentum snemma á þetta vegna
þess að okkur þótti þessi fyrirtækja-
rekstur ekki réttur en þá var okkur
bent á það, að þetta væri gert með
fullri vitneskju stjórnar félagsins.
Auðvitað minnkaði álit okkar á Haf-
skipi strax vegna þessa, og það þarf
ekki skarpan mann til að sjá í gegn-
um svona hluti. Við vissum að það
hlaut að liggja fyrir annað hvort
samþykki Björgólfs Guömundsson-
ar forstjóra eða Ragnars Kjartans-
sonar stjórnarformanns, eða
beggja. Þetta var eitt af þeim málum
sem Sigurþór Guömundsson aðal-
bókari félagsins kannaði og honum
var bent á, áður en hann fór frá Is-
landi til Bandaríkjanna að það væri
í lagi með reikningana frá Georgia
Export Import. Honum hafði verið
sérstaklega bent á þetta, áður en
hann hélt hingað vestur til þess að
fara yfir bókhaldið, að einmitt þessir
reikningar væru í lagi. Hann sagði
mér þetta sjálfur. Það var Páll Bragi
Kristjónsson þáverandi fjármála-
stjóri sem skýrði honum frá þessu."
— Þú ert aö segja aö þessir for-
ráöamenn Hafskips heima hafi
Gunnar Andersen fv. framkvæmdastjóri
Cosmos í New York.
samþykkt svindl? Ertu kannski aö
gefa í skyn aö þeir hafi þá hugsan-
lega hagnast á þessu einnig?
„Já, það má segja að ég sé að gefa
í skyn að menn hafi samþykkt
svindl og ég er reyndar líka að gefa
í skyn að þeir hafi hagnast á þessu.
En það var ekki einungis þessi hafn-
arþjónusta sem Georgia Export
Import fékk greidda þóknun fyrir,"
segir Björgvin Björgvinsson. „Þetta
skúffufyrirtæki fékk líka greitt fyrir
svokallað „sale coverage" (þ.e. sölu-
ferðir) m.a. til Flórída, Norfolk, Kali-
forníu og kannski fleiri staða."
Á aðra milljón í
launauppbót
— Fyrir nákvœmlega hvaö var
Hafskip aö greiöa Baldvin Bernd-
sen?
„Ja, Baldvin fór í ferðalög og
Georgia Export Import gat þá sent
inn reikninga vegna þeirra og feng-
ið greidda. Án þess að geta staðfest
nokkuð um þetta, þá er það mín til-
gáta að Björgólfur og Ragnar hafi
hugsað þetta sem einhvers konar
tekjuauka ofan á laun Baldvins. En
á hinn bóginn er ég sannfærður um
að þegar ferðunum fór að fjölga
vegna N-Atlantshafssiglinganna þá
hljóti peningarnir að hafa endað í
höndunum á fleiri en Baldvin," segir
Björgvin Björgvinsson.
„Þá má nefna að Baldvin Bernd-
sen fékk rösklega 42 þúsund dollara
(1,6 millj. ísl.kr.) í fyrirframgreiðslu
launa á árinu 1984 ofan á sín föstu
laun sem eru u.þ.b. 50 þúsund doll-
arar á ári (2 millj. ísl. kr.).“
— Hér á undan hafiö þiö nefnt
dœmi um hugsanlegt misferli og
furöusögur úr rekstri Hafskips hér
fyrir vestan. En hvaö meö almenn-
an rekstur fyrirtœkisins og þaö sem
aö starfsfólkinu snýr?
„Ég minntist áðan á endurskoð-
endafyrirtækið Coopers og Ly-
brand, og afstöðu þess til rekstrarins
og bókhaldsins. Því má bæta við, að
bókhaldari Hafskips USA, kínversk
Bandaríkjakona, sagði upp störfum
hjá fyrirtækinu, vegna þess að sam-
viska hennar bauð henni að hætta.
Hún gat ekki haldið áfram að færa
bækurnar eins og til var ætlast. Hún
gaf upp aðrar ástæður fyrir uppsögn
sinni, en þetta var ástæðan. Hún
sagði mér það sjálf," segir Björgvin.
Samtrygging
vitleysunnar
— En hvernig getur staöiö á því
aö Baldvin Berndsen hafi fengiö aö
halda starfi sínu sem forstjóri Haf-
skips USA ef öllum voru Ijósar þœr
staöreyndir sem þiö eruö aö segja
núna?
Gunnar: „Þegar svona mikið mis-
ferli er í rekstri og þetta mikið vafa-
samt í sambandi við færslur og
greiðslur, sem þarf að útskýra fyrir
stjórninni, þá er mjög þægilegt að
hafa svona mann sem getur bakkað
mann upp í vitleysunni. Staðfest til-
búnar útskýringar."
— Þú átt viö aö Björgólfur hafi
notaö Baldvin í þetta hlutverk?
„Ég vil halda því fram, að Baldvin
hafi verið mjög lipur og samvinnu-
ÞEGAR REKSTUR OG ÁÆTLANIR HAFSKIPS OG DÓTTURFYRIR-
TÆKISINS VAR GAGNRÝNTINNAN FÉLAGSINS, STÓÐ
FRAMKVÆMDASTJÓRNIN UPP OG SÖNG:
ÁFRAH
KRISTMENN
KROSSMENN!
„HAFSKIP ER FÓRNARLAMB MIKILMENNSKUBRJÁLÆÐIS,
GRÆÐGIEINSTAKLINGA OG TÆKIFÆRISMENNSKUT SEGIR
GUNNAR ANDERSEN
8 HELGARPÓSTURINN