Helgarpósturinn - 21.08.1986, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST
HVALAMÁLIÐ tók nokkuð
óvænta kúvendingu á rokkhljóm-
leikum á Arnarhóli á þriðjudags-
kvöldið og ætlum við að ónota-
hrollur hafi farið um Halldór sjáv-
arútvegsráðherra Asgrímsson.
Þarna var orðhákurinn Bubbi
Morthens að troða upp ásamt
hljómsveit. Bubbi gat ekki á sér
setið að halda yfir fjölmenninu á
hólnum (og þeim sem á horfðu í
sjónvarpi) stutta tölu um hvalamál-
ið. Þar kom fram að Bubbi er
ákafur hvalfriðunarsinni, líkt og
löngu burtkaliaður stórmálari sem
hann vitnaði í, enda hét lagið sem
hann flutti og fjallar um hvaladráp
,,Er naudsynlegt að skjóta þá. . .“
Þarna þykir okkur sýnt að popp-
goðið hafi snúið þúsundum ís-
lenskra ungmenna, aðdáendum
sínum heitum, á band með græn-
friðungum.
HÁSKÓLINN hefur yfir að
ráða húsnæði víðsvegar um bæinn
sem kunnugt er. Nokkrar deildir
hafa aðsetur að Nóatúni 17, þ.á.m.
matvælafræðin. Þaðan berast nú
sárar kvartanir, bæði frá stúdent-
um svo og starfsliði skólans, um
ónæði. Þannig er mál með vexti
að Jón Óttar Ragnarsson næring-
ardoktor og framkvæmdastjóri
Hins íslenska útvarpsfélags not-
færir sér grimmt starfsaðstöðu
sína í húsakynnum háskólans til
að ganga erinda Útvarpsfélagsins.
Stundum hefur hann verið í Nóa-
túninu með eina þrjá starfsmenn
félagsins sem lögðu undir sig ljós-
ritunarvél, tölvu og síma Háskól-
ans. Einhverju sinni auglýsti Út-
varpsfélagið eftir starfskröftum og
var umsækjendum beint á skrif-
stofu Jóns Ottars og hlykkjuðust
þeir í röð út um alla ganga, stúd-
entum til mikillar gremju. Að sögn
eru þeir hættir að skilja kaffibrús-
ana sína eftir á glámbekk því
brögð hafa verið að því að kaffi-
þyrstir útvarpsáhugamenn hafi
tekið þá til handargagns. ..
VIÐ KRÝNINGU fegurðar-
drottningar Islands í vor var boðið
hingað til lands sem heiðursgesti
við athöfnina Zach nokkrum
Galligan sem hefur unnið það sér
til frægðar að hafa leikið eitt aðal-
hlutverkið í Gremlins Stevens
Spielbergs. En hann kom ekki
einn. Með honum kom blaðamað-
ur New York tímaritsins Details,
Stephen Saban að nafni. Blaðið
heldur sig við Manhattan í New
York með útbreiðslu. En í sumar-
hefti blaðsins í ár er löng grein
um ísland, fimm síðna grein. Þar
segir Saban frá för þeirra félaga til
íslands og ber landi og þjóð al-
mennt vel söguna, af lestrinum
má sjá að maðurinn hafi heillast
af landinu. En hann var ekki eins
hrifinn af þeim sem sátu við há-
borðið við krýningarhátíð ungfrú-
arinnar ísland. Orðrétt segir hann
um setunautana: ,,Davíd Oddsson
yrti aldrei á okkur, þar sem hann
var alltof upptekinn við að hafa
ofan af fyrir tveimur fallegum
konum. Ónnur var kona hans
Ástríöur Thorarensen. /. . ./ Einnig
var við borðið fulltrúi ferðaskrif-
stofu, Ingólfur Guöbrandsson og
útgáfa íslands af Steven Spielberg,
Hrafn Gunnlaugsson. Hrafn varð
fýlulegur á svipinn strax og það
ágerðist eftir því sem á kvöldið
leið.“ Svo mörg voru þau orð. . .
VIÐ SÖGÐUM fyrir skemmstu
frá hneykslun kvenréttindakonu,
sem fékk afhent flugstjórabarm-
merki handa syni sínum í innan-
landsflugi, eftir að flugfreyjan
hafði fullvissað sig um að barnið
væri örugglega karlkyns. Að þessu
tilefni fengum við upphringingu
frá fjölskylduföður, sem fór með
tvo stráka og eina stelpu í flugferð
með Flugleiöum og varð fyrir
svipaðri reynslu. Þegar maðurinn
bað flugfreyjuna um að láta stelp-
una einnig fá flugsí/óramerki eins
og strákana, harðneitaði hún að
verða við þeirri ósk. Sagði hún, að
það myndi áreiðanlega ekki líða á
löngu þar til barnið vildi skipta
um og fá flugfrey/'umerki og hún
væri með þessu að forðast slíkt
umstang síðar í flugferðinni. Ein-
mitt það, já. ..
KÚLUTORFUHVERFI er nú
vœntanlegt í okkar tvöhundruö
ára borg. Þeir Tryggvi Hanssén
torfhleðslumaður og Einar Þor-
steinn kúluhúsamaður hafa tekið
höndum saman og ætla í samein-
ingu að kenna landsmönnum að
hlaða torfi í hvolflaga byggingar
eftir svipaðri forskrift og írsku
borghúsin sem þekktust um aldir
meðal íslendinga, sem fjárhús og
smalaskálar. Hvor í sínu lagi hafa
þessir tveir sérstæðu byggingar-
forkólfar barist fyrir útbreiðslu
sinnar byggingarstefnu um árabil.
Nýlega námu þeir svo land í
sameiningu í Vatnsmýrinni, niður
undir gamla Tívolí. Þar kennir nú
þegar vísis að þorpi og er ætlunin
að fyrir haustið verði þar fjórar
torfhlaðnar hvelfingar auk skúlp-
túra. Almenningi gefst að hafa
nasasjón af þessum fram-
kvæmdum á námskeiðum næstu
tvær helgar —■ þurfa ekki annað
en að mæta í Vatnsmýrina
klukkan tíu á laugardag...
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Afmælisóður
Oft líkist hundur herra „Annars kemur fólki þetta ekkert við. Þaö eru
í hinu betra sem verra: allir orönir hundleiöir á þessari vitleysu sem hvalamáliö er oröiö. . ."
Eins og Davíð er borgin dávíð, en dálítið skortir á að hún geti — Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., þegar DV innti hann eftir því hvort Japanir þyrðu að kaupa hvalafurðir af ótta við refsiaðgerðir
talist smáfríð. Bandaríkjamanna.
Niðri.
Ert þú varðhundur
flokksforystunnar?
Þráinn Bertelsson
„Nei."
— Er þetta þá enn eitt dæmið um sigur lýðræðiskyn-
slóðarinnar?
„Nú kem ég hreinlega af fjöllum. Þessar skilgreiningar um
einhver stríðandi öfl í Alþýðubandalaginu tek ég ekki mjög
alvarlega. Og . . . ég er ekki fulltrúi eins né neins þarna nema
hins óbreytta alþýðubandalagsmanns."
— Ertu neyðarúrræði?
„Aðrir verða nú að svara því en hins vegar hef ég það fyrir
satt að í leitinni að nýjum ritstjóra hafi mitt nafn komið tiltölu-
lega snemma upp."
— En hvernig stendur eiginlega á því að þú ert orðinn
ritstjóri?
„Nú verður þú að spyrja þá sem réðu mig."
— Var þér boðin staðan af því að þú ert góður og
gegn alþýðubandalagsmaður?
„Það eru nú svo margir góðir og gegnir alþýðubandaglags-
menn. Ætli það hafi ekki komið inn í myndina að allt mitt ævi-
starf er á einhvern hátt tengt fjölmiðlum."
— Hvaða reynslu hefur þú af blaðamennsku?
„Ég hef nú unnið hjá tveimur ágætum mönnum sem blaða-
maður, hjá Matthíasi Johannessen á Morgunblaðinu og Jónasi
Kristjánssyni þegar hann var á Vísi, og ég held að ég hafi lært
heilmikið af þeim báðum. Ég hef líka alla tíð skrifað töluvert í
blöð og vann líka sem dagskrárgerðarmaður á sjónvarpinu,
sem er ein tegund blaðamennsku."
— Telur útgáfustjórn Þjóðviljans þá sumsé vera
heppilega lærifeður?
„Ég hef nú bara ekki spurt þá, né nokkurn annan, að því
hvort þeir væru heppilegir lærifeður. Ég sé ekki betur en að
þeim hafi gengið mjög vel að reka sín blöð."
— Kom það þér á óvart að þér skyldi vera boðið að
setjast í ritstjórastól?
,Já."
— Af hverju?
„Ég hafði bara hreinlega ekki leitt hugann að því að taka þátt
í pólitísku starfi nema bara eins og hver annar og . . . hafði ein-
hvern veginn ekki leitt hugann að því að helga tíma minn stjórn-
málaumræðunni."
— Ertu sleipur í pólitíkinni?
„Ég væri nú ekki sleipur í henni, ef ég segði já."
— Var það sérstaklega tekið fram við þig að þú yrðir
pólitískur ritstjóri?
„Mér var ekki boðið starf með neinum sérstökum titli áföst-
um við ritstjórastarfið, þ.e. hvorki sérstaklega pólitíkur né sér-
staklega menningarlegur. Ég legg vonandi hæfilega mikla
áherslu á hvort svið."
— IMú eruð þið össur báðir sterkir persónuleikar og
hafið gaman af því að vera í sviðsljósinu. Er pláss fyrir
ykkur báða á blaðinu?
„Þá verður bara að stækka plássið. Þjóðviljinn er vaxandi
blað, það verður nóg pláss, biddu fyrir þér."
— En þarf þrjá ritstjóra á sextán síðna blað?
„Því betur sem hlutunum er stjórnað, þeim mun meiri ár-
angri skila þeir. Þar að auki veit maður aldrei hvað blöð geta
stækkað. Þegar ég var blaðamaður á Vísi var hann tólf síður, og
eitthvað sýnist mér hann hafa stækkað síðan. Það er nóg vaxt-
arrými í þessu þjóðfélagi okkar."
— Leggst vel í þig að fara inn á Þjóðviljann?
,Já, mér finnst þetta ákaflega spennandi verkefni."
— Ætlarðu þá að láta kvikmyndagerðina lönd og
leið?
„Ekki aldeilis. Það verður nóg svigrúm til að kvikmynda líka.
Því miður er nú ekki mikla atvinnu að hafa í kvikmyndagerðinni
hér og ekki hafa mér boðist nein aukastörf hjá útvarpi eða sjón-
varpi á mínu sviði. Ég vonast fastlega til að geta eitthvað látið
að mér kveða í kvikmyndagerðinni í framtíðinni. Ég er einmitt
að Ijúka þeim undirbúningi að íslenskri mynd sem ég fékk styrk
til að undirbúa og ég vona að ég geti framleitt hana á næsta
ári eins og draumurinn hefur verið."
— Þú færð þá frí til að skreppa í kvikmyndagerðina?
, úá, ég er að hugsa um að fá að skjótast frá þegar ég hef öðr-
um hnöppum að hneppa. Svo á maður þar að auki lögboðið
sumarfrí."
Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður var á mánudag ráðinn rit-
stjóri Þjóðviljans. Stjórn útgáfufélags blaðsins var á einu máli um ráðn-
ingu hans en flestum munu enn i fersku minni deilur flokksbrotanna í
Alþýðubandalaginu um ritstjórnarstefnu Þjóðviljans sem náði hámarki
laust eftir borgarstjórnarkosningarnar þegar setja átti Svavar Gestsson
í þriðja ritstjórastólinn við hlið össurs Skarphéðinssonar og Árna Berg-
mann. Þráinn fæddist árið 1944 og hefur, auk kvikmyndagerðarinnar,
skrifað og þýtt skáldsögur, stundað blaðamennsku um hrfð og dag-
skrárgerð við sjónvarpið. Framkvæmdastjórn flokksins mun sam-
kvæmt hefð leggja blessun sína yfir ráðninguna næst þegar hún kemur
saman.
ÁRNI BJARNASON
HELGARPÓSTURINN 3