Helgarpósturinn - 21.08.1986, Side 11
hafði umtalsverða reynslu af rann-
sóknarstörfum og hafði einn um-
sækjenda aflað sér sérmenntunar í
þeim. Helst eru menn á því að Þórir
hafi átt fáa velyrðismenn í dóms-
málaráðuneytinu. Rannsóknarlög-
reglan hefur að undanförnu höggv-
ið í frændgarð Jóns dómsmálaráð-
herra og honum svíður það sjálf-
sagt. Fyrst var Erlendur Einars-
son, SÍS-forstjóri og mágur Jóns tek-
inn til rannsóknar í kaffibaunamál-
inu og grunaður um alvarleg brot.
Þar næst var Kristján Torfason,
bæjarfógeti í Vestmannaeyjum og
náfrændi Jóns, tekinn til rannsókn-
ar og síðar fundinn sekur um fjár-
drátt. Þetta þykir náttúrlega ekki
par fínt fyrir dómsmálaráðherra og
því ekki furða þó andi köldu frá hon-
um til rannsóknarlögreglunnar. Þá á
Þórir ekki upp á pailborðið hjá skrif-
stofustjórum dómsmálaráðuneytis,
þeim Jóni Thors og Hjalta
Zóphóníassyni, eftir deiluna um
Interpol telexið. Þórir beitti sér fyrir
því að telexið yrði flutt til RLR þar
sem vakt er allan sólarhringinn í
stað þess að geyma það í dómsmála-
ráðuneytinu þar sem enginn er um
nætur og helgar. Hinsvegar fylgja
telexinu tvær boðsferðir á vegum
Interpol á ári og af þeim vildu þeir
Jón og Hjalti ekki missa. Mönnum
getur því hefnst fyrir að gera á hlut
annarra þó um síðir sé. Þriðji um-
sækjandinn, Asgeir Friðjónsson,
átti heldur ekki upp á pallborðið hjá
dómsmálaráðuneytinu þrátt fyrir
stuðning Steingríms Hermanns-
sonar. Fíkniefnadómarinn hefur
orðið vís af því að gagnrýna ráðu-
neytið fyrir slælega stjórn dóms-
mála. . .
M eira um RLR-stjórann.
Menn hafa verið að spyrja sig hvers
vegna Bogi Nilsson, gagnmerkur
sjálfstæðismaður, er svona kær
framsóknarmönnum. Fyrst skipaði
Ólafur Jóhannesson Boga sýslu-
mann í N-Múlasýslu og síðan skipar
Jón Helgason hann rannsóknar-
lögreglustjóra. Þetta er víst alveg
óvart, eins og börnin segja. Óli Jó
skipaði Boga á síðustu stundu þegar
kandidat Framsóknarílokksins í
stöðu sýslumanns í N-Múlasýslu
reyndist ónothæfur þegar til kom.
Þar missti Framsóknarflokkurinn af
embætti er hann taldi sig eiga og því
er Jón nú að bæta fyrir mistök Öla
Jó með því að losa um þessa stöðu
til þess að koma góðum og gegnum
framsóknarmanni að. Sjálfstæðis-
menn sóttu einnig mjög stíft að Jóni
að veita Boga stöðuna og ekki síst
Ólafur G. Einarsson þingflokks-
formaður, en honum er málið skylt
þar sem hann og Bogi eru náskyld-
ir. . .
lilllert B. Schram, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins með meiru,
þykir afar veikur fyrir þeirri hug-
mynd að stofna nýjan, frjálslyndan
stjórnmálaflokk hér á landi, eins og
m.a. hefur mátt sjá á skrifum hans í
DV. Nú fregnum við, að ákveðinn
áhrifamaður í þjóðfélaginu hafi tek-
ið Ellert á orðinu og heimsótt hann
með viðræður í þessum dúr í huga.
Um var að ræða Pétur Valdimars-
son, fyrrum framsóknarmann, sem
nú er í forsvari fyrir Samtök um
jafnrétti milli landshluta. Ef eitt-
hvað yrði úr stofnun frjálslynds
flokks fyrir næstu kosningar, myndi
núverandi pólitískt munstur eflaust
riðlast hressilega og næsta kosn-
inganótt gæti orðið verulega spenn-
andi. . .
l sumar tók Innheimtustofnun
sveitarfélaga upp á því, sam-
kvæmt skipun fjármálaráðuneytis,
að innheimta dráttarvexti af
ógreiddum meðlögum. Allt til þessa
dags hefur verðbólgan hjálpað feðr-
um þessa lands við að éta upp
barnsmeðlögin, sem hafa verið
bæði vaxtalaus og óverðtryggð.
Aukinheldur eru meðlögin aldrei
innheimt, þeim sem eiga að borga er
sagt að það geti þeir gert með því að
senda greiðsluna inn á ákveðinn Út-
vegsbankareikning en gíróseðlar
verið óþekktir og innheimtuaðgerð-
ir vægast sagt fátíðar. En nú eru
lagðir vextir á meðlögin, þeir hæstu
lögleyfðu, þannig að sá sem skuldar
litlar 100 þúsund krónur fær nú sem
samsvarar þriðja krakkanum til við-
bótar og hjá öðrum getur vaxta-
greiðslan ein numið tugum þús-
unda. Einhverjir hafa samt haft á
orði að einmitt meðlagsgreiðendur
hafi gott af því að borga þessa drátt-
ar-vexti, eða þannig.. .
TOYOTA
P. Samúelsson & Co. hf. hefur rekið
bílasölu fyrir notaða bíla samhliða sölu nýrra
Toyota bifreiða að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi.
Nú hefur verið gerð breyting þar á og sala
notaðra bifreiða flutt í nýtt húsnæði í
Skeifunni 15. Þar er öll aðstaða eins og best
verður á kosið fyrir þá sem eru að kaupa,
vilja selja, eða skipta notuðum bíl.
Sýningarsalurinn er nokkuð stór á íslenskan
mælikvarða, enda mun þægilegra að skoða
bifreiðar innan húss en utan.
Bifvélavirki tekur alla okkar bíla í söluskoðun
áður en þeir eru settir í sölu. Með því
móti getur kaupandi kynnt sér mun betur en
áður ástand hverrar bifreiðar.
Sölumennirnir eru þaulvanir og leggja sig
fram um að veita góða þjónustu.
P.S.
Við seljum ekki eingöngu góðar, notaðar
Toyota bifreiðar, því við höfum flestar
tegundir bíla á söluskrá.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK S(Ml'(91) 687120
Sækjum
og sendum
Greiðslukorta
þjónusta
Sími 688177
HELGARPÓSTURINN 11
essemm s(a