Helgarpósturinn - 21.08.1986, Blaðsíða 20
Síldarbærinn Siglufjörður horfir á eftir síðasta toppi Síldarverksmiðja ríkisins á leið suður:
Siglfirdingar eru uggandi um það
þessa dagana að síðasti anginn af
yfirstjórn Síldarverksmiðja rtkisins,
sem enn er á Siglufirði, verði af
þeim tekinn. ílögum um verksmiðj-
urnar segir að höfuðstöðvar þeirra
skuli vera á Siglufirði en undanfarin
6 ár hefur þetta ákvœði verið huns-
að og höfuðstöðvar SR verið I
Reykjavík. Undanfarin 5 ár hefur
forstöðumaður tœknideildar þó set-
ið á Siglufirði, enda kom fram mikiU
þrýstingur frá Siglfirðingum í þá
veru að farið vœri að lögum. Geir
Zoéga, forstöðumaður tœknideild-
ar, hefur nú hœtt störfum hjá SR en
nýr tekið við, Þórður Jónsson, og
stjórn verksmiðjanna ekki ákveðið
hvar hann á að sitja.
„Af hverju á hann endilega að
sitja á Siglufirði frekar en einhvers
staðar annarsstaðar? Til dæmis bara
Seyðisfirði eða Raufarhöfn," sagði
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR, þegar HP bar
þessi mál undir hann. „Siglufjörður
er ekki nafli alheimsins,... nei, nei,
ég er ekkert að segja að Reykjavík
sé það heldur."
— En lög gera ráð fyrir því að aö-
alskrifstofur SR séu einmitt á Siglu-
firði.
„Það er kannski hægt að túlka
þau á þann veg, já. En þar er líka
sagt að stjórnarmenn eigi að sitja á
Siglufirði og af hverju er Alþingi þá
að kjósa í stjórn fyrirtækisins menn
sem búa hér fyrir sunnan? Þetta er
gamalt mál og fyrnt og ég get ekki
séð af hverju skrifstofan á yfirleitt
frekar að vera á Siglufirði heldur en
til dæmis á Raufarhöfn, Skaga-
strönd eða Húsavík. Við erum með
verksmiðjur á öllum þessum stöð-
um, Seyðisfirði og Siglufirði líka."
— Þannig að það er þá best að
hafa skrifstofurnar í Reykjavík .. . ?
*v
PIZZAHÚSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga í þægiiegu umhverfi
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
„Ja, já . . ., við sjáum hér um sam-
skipti við alla þessa staði og það hef-
ur að minnsta kosti verið auðveld-
ara að safna saman upplýsingum
hingað til Reykjavíkur en Siglufjarð-
ar.
Jú, við urðum varir við óánægju
með þessa ákvörðun að flytja aðal-
skrifstofuna suður þegar það var
gertsagði Jón Reynir Magnús-
son, framkvæmdastjóri SR.
Óttar Proppé, bæjarstjóri Siglu-
fjarðar, sagði í samtali við HP að
bæjarstjórnin væri mjög óánægð
með allt þetta mál og að flutningur
forstöðumanns tæknideildar frá
bænum myndi ekki bæta samskipti
Siglfirðinga við forsvarsmenn SR.
Nokkur styr hefur staðið á Siglufirði
um staðsetningu bræðslu SR þar í
bænum. „Líkast því að Alverið í
Straumsvík væri komið inn í miðjan
Hafnarfjarðarbæ." Aðspurður hvort
Siglufjarðarbær hygðist láta reyna á
lagaákvæði um staðsetningu aðal-
skrifstofa SR, dró Óttar það í efa og
vildi ekki spá fyrir um hver við-
brögð bæjaryfirvalda yrðu.
Síldarverksmiðjur ríkisins voru
stofnaðar með lögum frá Alþingi
árið 1938 og þá kveðið á um að yfir-
stjórn verksmiðjanna skyldi hafa
aðsetur og varnarþing á Siglufirði.
Engin ný lög hafa verið sett um
þetta atriði en næstu ár á eftir voru
byggðar fleiri verksmiðjur og nú
starfa síldar- og loðnubræðslur SR á
5 stöðum í landinu. Þrátt fyrir gild-
andi lög voru höfuðstöðvar SR flutt-
ar til Reykjavík fyrir 5 til 10 árum,
þannig að nú er þar ekki annað
skrifstofufólk en tvær stúlkur sem
vinna launaútreikninga á tölvur,
verksmiðjustjóri og títtnefndur
tæknideildarforstöðumaður. Sigl-
firðingar, sem HP ræddi við, töldu
að flutningur Geirs Zoéga norður
hefði komið til fyrir þrýsting frá
heimamönnum. Jón Reynir benti
aftur á móti á að fyrir því hefðu ver-
ið eðlilegar ástæður þar sem mikil
uppbygging hefði átt sér stað á allri
Siglufjarðarverksmiðjunni. Þeirri
uppbyggingu er nú að mestu lokið
og er Siglufjarðarverksmiðjan nú sú
alfullkomnasta af bræðslum fyrir-
tækisins.
-b.
Pétur Valdimarsson, formaður Samtaka
um jafnrétti milli landshluta:
Bærinn á að fara í
mál við verksmiðjuna
„Ef þeir flytja embættið suð-
ur þá eru þeir enn og aftur að
brjóta lög og spurning hvort Siglu-
fjarðarbær eigi ekki bara að fara í
mál við Síldarverksmiðjur ríkis-
ins,“ sagði Pétur Valdimarsson, for-
maður Samtaka um jafnrétti milli
landshiuta. „Það var náttúrlega al-
rangt hjá þessum mönnum að
flytja skrifstofurnar til Reykjavík-
ur og líka óeðlilegt, því í lögum
segir að hún eigi að vera á Siglu-
firði."
— En nú segja forsvarsmenn SR
að ómögulegt sé að skrifstofur,
sem eiga að safna gögnum víðs
vegar af landinu, séu til húsa á
Siglufirði.
„Þetta er náttúrlega bara um-
sögn starfsmanns sem vill vera á
höfuðborgarsvæðinu. Það er ná-
kvæmlega jafn gott símasamband
við þessa staði alla frá Siglufirði og
frá Reykjavík, og Siglufjarðarverk-
smiðjan er þá við bæjardyrnar. Frá
Siglufirði er hægt að ferðast allan
ársins hring, hvort sem er með
flugi eða bíl.
Opinberir starfsmenn eru bara
starfsmenn þjóðarinnar og ef þeir
vilja ekki vinna hjá stofnun af því
að hún er úti á landi, eða flytja
með henni þegar hún er flutt, þá
segja þeir bara starfi sínu iausu.
Alþingi setur lög um svona lagað
og við verðum að hlíta þeim. Það
er alveg jafn auðvelt að stjórna
Síldarverksmiðjum ríkisins frá
Siglufirði og að stjórna Byggða-
stofnun frá Akureyri eða Isafirði —
sem hefði alls ekki verið neinn
vandi, ef menn hefðu bara viljað
það. Við munum standa með Sigl-
firðingum í þessu og berjast með
oddi og egg fyrir því að reynt verði
að jafna aðstöðu manna í landinu."
RAMMA
MIÐSTOÐIN
SIGTON 20 -105 REVKJAVlK - SlMI 25054
Álrammar 15 stærðir
Margir litir
Smellurammar 20 stærðir
Plaköt mikið úrval
Innrömmun
Opið á laugardag
20 HELGARPÓSTURINN