Helgarpósturinn - 16.10.1986, Side 21

Helgarpósturinn - 16.10.1986, Side 21
HP-leiðbeiningar um hvernig hinn almenni borgari getur sigrast á svifaseinum og ókurteisum opinberum starfs- mönnum. alúðlegur, samviskusamur, kurteis og sýna lipurð og réttsýni, en má heita afbrotamaður ella. En ef hinn almenni borgari telur sig ekki fá þennan „pakka" stoðar lítt að ráðast á hinn seka, skamma eða móðga til að fá vilja sínum fram- gengt. Gæti orðið spennandi augna- blik þar sem hinn opinberi og hinn almenni standa hvor frammi fyrir öðrum gráir fyrir járnum og íhuga næsta leik. Hinum almenna gæti dottið í hug að liðka fyrir með því að lofa þeim opinbera gulli og grænum skógum til að flýta erindinu. En það er auð- vitað bannað. „Hver sá, sem gefur, lofar eda býdur opinberum starfsmanni gjafir eda annan ávinning til þess ad fá hann til ad gera eitthvaö eöa láta eitthvad ógert, er hann meö þv't bryti gegn starfsskyldu sinni, skal sœta fangelsi allt að 3 árum eða, séu málsbœtur fyrir hendi, varðhaldi eða sektum." Ekki dugar heldur hin leiðin fyrir hinn almenna, að bjóðast til að framkvæma erindið sjálfur. „Hver, sem tekur sér eitthvað opinbert vald, sem hann ekki hefur, skal sœta sektum eða varðhaldi eða, ef miklar sakir eru, fangelsiallt að 2 árum." Ef hinn opinberi gefur sig ekki, getur sá almenni náttúrulega storm- að á skrifstofu forstöðumanns við- komandi stofnunar. Hann mun að sjálfsögðu hlýða á kvartanirnar kurteis og réttsýnn. En hann er þó mun líklegri til að taka upp málstað undirmanns síns en þinn, hins nöldrandi almenna borgara. Er nokkuð eðlilegra en að vinnuféiag- ar standi saman gegn utanaðsteðj- andi ógn? TROMPIÐ: ÚTVARPS- ERINDI ÁN ENDUR- GJALDS í fljótu bragði mætti því ætla að hinn almenni borgari standi eftir með gjörtapaða stöðu. En svo er ekki. Síðasta tromp hans er sterkt og óvænt. Hann horfir beinskeytt- um augum framan í forstöðumann- inn og segir: „Nú, ef svo er, þá fer ég beint í útvarpsráð!" í lögum um opinbera greinargerð starfsmanna ríkisins frá 1932 segir: „Skylt er embœttismönnum landsins og sýslunarmönnum án endurgjalds að flytja árlega eitt eða tvö erindi, eftir ákvörðun útvarps- ráðs, í útvarp ríkisins um stofnun þá eða starfsgrein, er þeir veita for- stöðu." í erindinu á forstöðumaðurinn að veita almenningi yfirlitsfræðslu um unnin störf og fyrirætlanir í fram- kvæmdum í stofnun sinni. Hvað gæti verið forstöðumanni óhugnan- legra en að semja og flytja í útvarpi erindi um störf sín og sinnar stofn- unar — án endurgjalds? Björninn er unninn. Erindinu sinnt. BAUKURINN, KJÖRBÓKIN OG LANDSBANKINN HJÁLPA ÞÉR AÐNÁENDUM SAMAN Þegar lítið fólk ræðst í stórar fjárfestingar er gott að minnast þess að margt smátt gerir eitt stórt. Smámynt sem safnað er í sparibauk og síðan lögð á Kjörbók stækkar og ávaxt- ast hraðar en þig grunar. Bangsa baukurinn fæst í öllum sparisjóðsdeildum Lands- bankans. Þegar spariféð úr honum er lagt inn er Kjörbók- in vísasta leiðin að settu marki. Barnið, baukurinn og bankinn leggjast á eitt; tölurnar hækka og að lokum ná endar saman. Kennum börnunum okkar að spara peninga og ávaxta þá, það er gott veganesti og gagnlegt. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna f 100 ár HELGARPÖSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.