Helgarpósturinn - 16.10.1986, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 16.10.1986, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR Umdeildur árangur leiötogafundarins í Reykjavík Viðræðum Ronalds Reagan, forseta Bandaríkjanna, og Mikhails Gorbachevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í Höfða lauk um klukkan sjö á sunnudagskvöld, aó afloknum aukafundi þeirra, án þess að samkomulag tækist um afvopnunarmál og engin ákvörðun var tekin um annan fund þeirra. Verulega miðað í samkomulagsátt um stórfellda fækkun langdrægra eldflauga og meðaldrægra flauga í Evrópu og Asíu, en skerið sem samkomulag steytti á var ágreiningur um geimvarna- áætlun Bandaríkjastjórnar. Á blaðamannafundi sem Gorba- chev hélt síðar um kvöldið í Háskólabíói sagði hann aö með þessu vildu Bandaríkjamenn ná hernaðaryfirburðum og það væri samsteypa herforingja og iðnjöfra sem þar réðu ferðinni en ekki forsetinn. Reagan forseti og talsmenn Hvíta hússins halda því hins vegar fram að viðræðurnar í Reykjavík hafi ver- ið árangursríkustu afvopnunarviðræður sögunnar. Skoðanir á árangri viðræðna fulltrúa stórveldanna hafa og verið mjög skiptar víða um heim, en þó munu flestir hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigóum. Mikil ánægja meó frammistöðu íslendinga Þáttur íslendinga í undirbúningi og framkvæmd fundar leiðtoga stórveldanna hefur tekist mjög vel að mati erlendra fréttamanna sem hingaó komu. Þeir voru t.d. mjög ánægðir með þá vinnuaðstöðu og þjónustu sem þeim var veitt í Mela- og Hagaskóla. Tækifærió var m.a. notað til að kynna þeim ís- lenskar vörur og þjónustu. ísland fékk gífurlega umfjöllun í erlendum fjölmiðlum vegna leiðtogafundarins og er hún met- in á um 20 milljarða íslenskra króna eóa sem samsvarar hálf- um fjárlögum Alþingis fyrir næsta ár. Ýmsar uppákomur í tengslum vió leiótogafundinn Fulltrúar ýmissa samtaka komu hingaó til lands í tengslum við leiðtogafundinn til að notfæra sér fréttamannaskarann vió að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þar má nefna fulltrúa ýmissa friðarsamtaka, Greenpeace-menn og baráttusamtök sovéskra gyðinga. Á laugardagskvöld stóðu ýmis friðarsam- tök fyrir friðarfundi á Lækjartorgi og þá hélt bandaríska söngkonan og friðarsinninn Joan Baez sérstaka tónleika í Gamla bíói. Gert ráö fyrir gífurlegum fjárlagahalla Alþingi Islendinga var sett sl. föstudag og frumvarp til fjár- laga lagt fram á mánudag. Það gerir ráð fyrir að 1.583 milljóna króna rekstrarhalli verði á ríkissjóði á næsta ári. Steingrímur fer fram á Reykjanesi Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra tilkynnti á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi í Hafnarfirði á þriójudagskvöld aó hann hefði ákveðið að gefa kost á sér til framboðs í kjördæminu ef flokksmenn óskuðu þess. Steingrímur hefur verið þingmaður Framsóknarflokks- ins á Vestfjörðum í 15 ár og í framboði þar síðan 1968. Sagði Steingrímur á fundinum að hann yröi að láta persónulegar til- finningar víkja fyrir skyldum sínum sem formaður flokksins. Byrjunarörðugleikar hjá Stöó 2 Stöö 2 hóf sjónvarpsútsendingar sl. fimmtudag. Skömmu fyrir útsendingu kom upp bilun á tækjaútbúnaði sem olli því að ekki reyndist unnt að hefja fréttaútsendingar fyrr en á mánudag. Stöð 2 mun ekki senda út fréttir um helgar til að byrja með. Minnkandi fylgi Framsóknar Framsóknarflokkurinn fær slæma útreið í skoðanakönnun frá Hagvangi sem opinberuð var á Stöó 2 á þriðjudag og hefur samkvæmt nióurstöðum hennar tapað þriðjungi fylgist síns í síðustu kosningum. Fylgi flokkanna var sem hér segir: Al- þýðuflokkur 16,5%, Framsóknarflokkur 13,6% BJ 1,8%, Al- þýðubandalag 16,7% og Kvennalisti 6,9%. Kristín Kvaran fellir konur út úr nefndum Innganga Kristínar Kvaran, fyrrum þingmanns BJ, í þing- flokk Sjálfstæðisflokksins á dögunum hefur valdið mikilli röskun í nefndaskipan frá því sem var í fyrra, einkum í þá veru að Kvennalisti missir aöild að 5 nefndum. Alþýðubanda- lag og Alþýðuflokkur létu Kvennalista eftir sitt sætið hvor í allsherjarnefnd Sameinaðs þings og í landbúnaðarnefnd neðri deildar við nefndarkjör á alþingi á þriðjudag. Kvenna- listinn hélt nefndarsætum sínum í efri deild og í fjárveitinga- nefnd sem er 9 manna nefnd, en missti aðild að 5 nefndum öðrum, þar á meðal utanríkismálanefnd. Fréttamolar • í umræðum um fjárhagsáætlun á Alþingi á þriðjudag kom fram að ríkisstjórnin telur aó svigrúm til kauphækkana á næsta ári sé aðeins 2% sem í 4—5% verðbólguspá þýðir minna en ekki neitt. Því er greinilega óáran framundan í launamálum þrátt fyrir góðæri og auknar þjóðartekjur. • Röskur fimmtugur þeirra sem mælast með eyóniveiruna í blóði hérlendis, eða sex alls, eru eiturlyfjaneytendur sem sprauta sig. Alls eru nú 29 íslendingar með veiruna og af þeim eru fjórir meó eyðni á hástigi. • Stefán Baldursson hefur ákveðið aó hætta störfum sem leik- hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur haustið '87. Staðan hefur þegar verið auglýst og þrír sóttu urn hana, þau Þórhildur Þor- leifsdóttir, Hallmar Sigurðsson og Árni Ibsen. • Samkvæmt fjárlögum munu fjárveitingar til Kvikmynda- sjóðs rúmlega þrefaldast, en ráðgert er aó verja til hans 55 milljónum á næsta ári, þar af 8 milljónum króna til kaupa á hentugu húsnæði fyrir Kvikmyndasjóð og Kvikmyndasafn. • Guðrún Helgadóttir og þrír aðrir þingmenn hafa lagt til að börnum verð tryggður sérstakur málsvari í embættismanna- kerfinu meö því að stofnaó verói embætti umboósmanns barna í dómsmálaráðuneytinu. Verktakastarfsemi —Húsbyggingar Sæmundargötu 3—5. Borgartúni 1—3 LÍTTU INN Gerum gömul hús sem ný. Framleiðum á verkstæði. Útihurðir innihurðir og ýmiskonar innréttingar. Verðtilboð ef óskað er. Vönduð vinna. Þrjátíu ára reynsla. BYGGINGAFÉLAGIÐ Slll SÍMI (95)5211, 5841 OG 5090 - 550 SAUÐÁRKRÓKI Beckers Búðin ÁRMÚLA 8-108 REYKJAVÍK S 685710 - 6857J1 NAFNNR.: 9345-2267 sandspartl er sparnaður DALASPACK „S“: Alhliða sprautuspartl, 25 kg sekkir DALASPACK „SFU: Sama og „S“, nema fínni kornastærð, og hefur hvltara yfirborð ákomið. 25 kg sekkir. DALASPACK „SW“: Mjög gott sprautuspartl fyrir votherbergi (baöherbergi, þvottahús o.þ.h.) Vatns- helt. 25 kg sekkir. DALASPACK „H“: Handspartl til viðgeröa á steinveggjum innanhúss, jafnt á stóra sem litla fleti. 20kg.fötur. DALASPACK „F“: Fínkornað handspartl til viðgerða og spörtlunar á samskeytum á spónaplötum o.þ.h. 20, 7'h kg fötur + 750 m. túpur. DALASPACK „W“: Vatnshett handspartl i votherbergi (þvottahús, bað o.þ.h.) 20,7'h og 1 kg fötur. DALASPACK „A“: Akrylspartlmálning til handspörtlunar á Ath. Allt tilbúið spartl. Höfum einnig samskeytaborða, handáburð, sandpappír, slípiáhöld, tape o.fl. til spörtlunar. Bjóðum einnig uppá spartlsprauturtil leigu eða sö!u. hurðumo.__________________ Rr* kg fötur, 750 ml, 200 ml túpur. DALASPACK „P“: Tilbúin hraunmálning sem inniheldur marmarasand og tilbúna málningu. Þarf ekki að mála á eftir. Borið á með spaöa eða rúllu. 18, og 7 'h kg fötur. DALASPACK „X“: Léttspartl til viðgerða á stein. Þolir þykkt allt aö 3 sm, án þess að innfalla og springa eins og venjulegt sandspartl. 10, 4 og 0,6 itr. fötur. DALASPACK „X-FIN“: Sama og „X“, nema minni kornastaarð og þolir að vera boríö á grynnri misfellur. 10,4 og 0,6 Itr. fötur. DALASPACK „XW“: Sama og „X" en líka vatnshett og hægt að nota til sprunguviðgerða utanhúss. 4 og 0,6 Itr. fötur. DALASPACK „G“: Grunnspartl til sprautunar og hefur sömu eiginleika og „X“. 18 kg sekkir. Einnig hin heimsfræga Beckers-málning Dala HELGARPÖSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.