Helgarpósturinn - 16.10.1986, Blaðsíða 29
s
^^^slagurinn um þriðja sætið a
lista sjálfstæðismanna á Norður-
land eystra harðnar eftir því sem
nálgast prófkjörsdag. í fyrstu var tal-
ið, að slagurinn stæði fyrst og fremst
á milli Stefáns Sigtryggssonar og
Tómasar Inga Olrich. Nú hefur
Vigfús á Laxamýri reynt að vekja
athygli á sér með því að auglýsa tals-
vert í Morgunbiaðinu.auk þess sem
hann hefur gefið út bækling með lit-
myndum af sér með fjölskyldunni,
búfénaðinum og við laxveiði. Þá
hefur Vigfús „stolið" hrárri hug-
mynd Stefáns Sigtryggssonar um
lausn á vanda landbúnaðarins. Til-
laga Stefáns felst í stofnun eins kon-
ar úreldingarsjóðs bænda, sem
gerði illa stöddum bændum kleift að
bregða búi með sæmd. Nú mun Vig-
fús aka um sveitir og kynna þessa
tillögu sem sína hugmynd. Halldór
Blöndal þingmaður í fyrsta sæti
hefur ekki viljað gefa upp opinber-
lega hvern hann styður, en Björn
Dagbjartsson í öðru sæti hefur gef-
ið ótvírætt í skyn sterkan stuðning
við Stefán. Þá mun það einnig
hjálpa Stefáni að margir telja brýna
nauðsyn á því að fá ungan mann í
þriðja sætið, en Tómas Ingi og Vig-
fús eru báðir orðnir „old boys". . .
ÍlEnda þótt formannsstaðan í
utanríkismálanefnd Alþingis þyki
að sama skapi virðuleg og hún er
eftirsótt, hefur ríkissjónvarpið
sjaldan séð ástæðu til að fá þann
mann, sem stöðunni gegnir hverju
sinni, í umræðuþætti^ um erlend
málefni og samskipti Islands út á
við. Þetta á reyndar líka við um rík-
ishljóðvarpið, og er þetta þeim
mun furðulegra sem það er ljósara
að formaður utanríkismálanefndar
er einmitt sá maður sem liggur á
hvað mestum upplýsingum í þess-
um málaflokki á hverjum tíma. Nú
bregður hinsvegar svo við að ekki
líður svo vika að sjónvarpið leiti
ekki álits formanns utanríkismála-
nefndar. Hann kemur fram í hverj-
um umræðuþættinum af öðrum
sem fjalla um heimspólitíkina.
Hann, Eyjólfur Konráð Jónsson,
er reyndar í hörku prófkjörsslag
sjálfstæðismanna í Reykjavík um
þessar mundir, þótt það sé náttúr-
lega önnur saga og komi þessu máli
örugglega ekkert við. . .
A
iM Ulþingi var sett 1 siðustu
viku og éitt af því sem sextíumenn-
ingarnir fengu í upphafi þess var
pilla frá fyrirtækinu Heilsa hf. í
orðsins fyllstu merkingu, því Heilsa,
sem er innflutningsfyrirtæki
Heilsuhússins við Skólavörðu-
stíg, útbjó þriggja mánaða skammt
handa hverjum þingmanni af heilsu-
lyfinu gericomplex, sem þeir
verða svo sjálfsagt að maula eitt-
hvað fram eftir vetri. Með þessari
gjöf voru Heilsuhússmenn náttúr-
lega jafnframt að vekja þingmenn-
ina til umhugsunar á lögum um inn-
flutning á allskyns heilsuefnum,
sem innflytjendur í þeim geira telja
vera orðin úrelt fyrir margt
löngu...
TEÍugatitringurinn vegna próf-
kjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík
ágerist með hverjum deginum og að
því er sumir segja; með hverjum
klukkutímanum sem nær dregur
helgi. Nú munu t.d. Albertsmenn
vera æfir út í þá Vilhjálm Egilsson
og Geir.Haarde sem þeir væna um
að hafi staðið fyrir lista sem sendur
var inn á öll elliheimili borgarinnar,
en þar var kynnt „heppileg" niður-
staða kjörsins: Birgir ísleifur í
fyrsta, Friðrik Sophusson í öðru,
því þriðja Ragnhildur Helgadóttir
og fjórða og fimmta Geir Haarde og
Vilhjálmur Egilsson. Þessi elliheim-
ilissending fannst Albertsmönnum
skiljanlega ósniðug og eru þeir nú
að hugsa mótleik eftir því sem okk-
ur er sagt. Annars eru prófkjörspæl-
arar á einu máli um það að gengi
Alberts Guðmundssonar í prófkjör-
inu muni mikið til ráðast af því
hvernig framboðsfundurinn sem
hann heldur á Hótel Sögu í kvöld,
fimmtudagskvöld, muni takast og
vísa þessir menn þá sérstaklega til
frammistöðu Alberts sjálfs á fundin-
um og þó aðallega mætingarinnar á
hann. Hún gefi vísbendinguna. . .
|U|
■ MÍ ýtt nafn hefur bæst í hóp
þeirra umsjónarmanna sem verða
með sjónvarpsþáttinn sem tekur við
af „A líðandi stundu" á miðviku-
dagskvöldum í vetur. Það er Jón
Hákon Magnússon sem var upp-
lýsingasjeff á meðan á leiðtogafund-
inum stóð. . .
sem
Pegar efnt er til veislti bjúðast ötal
mögnleikar. Átthagasalarinn hentar við
öil hugsanleg tilefni. Sölustjóri
veitingadeildar t st'nia 29900 veitir
upplýsingar, tekttr pantanir
og léttir af þér öllutn áhyggjum,
hvort sem þœr varóa þjónustuna,
matseöilinn, skemmtikrafta eða annan
undirbúning. r-—
)%X
r.ii ni .
w ( . Y K 'í/. /jB L - ym 1», •<' P? ■ W , Tf Ví, KL f m
m 'A ’ H W -r- M|
H H / ÆUL MÉL' wPI ni »=. 11 Æ 1 1
Þú boigar alltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum!
Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbil.
Hringdu i okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
UREVFIU.
68 55 22
HELGARPÓSTURINN 29