Helgarpósturinn - 16.10.1986, Blaðsíða 40
A
Vestfjörðum er rikjandi
mikil heift í garð Steingríms Her-
mannssonar vegna þeirrar
ákvörðunar að bjóða sig fram í
Reykjaneskjördæmi og ekki á Vest-
fjörðum, eins og hann hafði heitið
Vestfirðingum. Þetta kemur m.a.
fram í því, að Magnús Reynir Guð-
mundsson, varaþingmaður
Steingríms, tekur ekki sæti forsæt-
isráðherra n.k. mánudag eins og til
stóð, en þá fer Steingrímur til Kína í
þrjár vikur. Telja kunnugir innan
Framsóknarflokksins að „Grímur
verkstjóri“, eins og erlendu blaða-
mennirnir kölluðu Steingrímsson á
dögunum, eigi eftir að bíta úr nál-
inni með ákvörðun sína um fram-
boð á Reykjanesi. ..
TTtringurinn fyrir væntanlegt
prófkjör Alþýðubandalagsins í
Reykjavík er farinn að gera vart við
sig. Reiknað er með að Ólafur
Ragnar Grímsson lendi í einvíginu
í höfuðborginni ásamt Guðrúnu
Helgadóttur við Svavar Gestsson
og Asmund Stefánsson. Meðal Al-
þýðubandalagsmanna er þeirri
sögu dreift að Ólafur Ragnar hyggi á
framboð í öðrum kjördæmum og er
þá oftast nefnt Reykjaneskjördæmi,
— en þetta er lalinn söguburður til
að veikja þingmannsefnið í höfuð-
borginni þarsem stærsti slagurinn
verður. . .
^Hitlir kærleikar eru með kon-
unum sem slást í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins um helgina. Ragnhild-
ur Helgadóttir þykir alveg örugg í
eitthvert efstu sæta framboðslistans,
en mikil áhöld eru um hvaða konur
nái næstmestum árangri. Flestir
nefna til sögunnar Maríu E. Ingva-
dóttur, en á síðustu dögum hefur
fylgi Bessíar Jóhannsdóttur farið
vaxandi. Pá er sagt að Sólveig Pét-
ursdóttir sem fékk fljúgandi start
— og hefur síðan dalað nokkuð — sé
á lokasprettinum að sækja í sig
veðrið. Færri nefna nú Esther Guð-
mundsdóttur til sögunnar en áður.
Annars segja sjálfstæðismenn að
ómögulegt sé að segja til um gengi
hvers og eins frambjóðanda, Jjví í
fyrsta lagi séu viðhorf stöðugt að
breytast og meginþorri kjósenda
ákveði sig ekki endanlega um sæti 5
til 12 fyrr en á kjörstað. En milli
stuðningsmanna kvennanna fara
kaldar kveðjur þessa dagana og
stuðningsmenn einnar ásaka
áhangendur hinna um að draga úr
möguleikum kvenna ...
Wm angaveltur manna í veit-
ingabransanum snúast nú m.a. um
það hverjum Geir Zoega leigi út
veitingaaðstöðuna í Naustinu, en
sem kunnugt er komst Ómar Halls-
son í þrot með rekstur staðarins fyr-
ir nokkrum vikum. Geir Zoéga á
húsnæðið ásamt fjölskyldu sinni, en
hann er sem kunnugt er jafnframt
eigandi Tryggingar hf. að miklum
hluta sem hann og stýrir. Heyrst hef-
ur að Pétur Sveinbjarnarson hjá
gamla Aski sé eitthvað að hugsa sér
til hreyfings í þessum efnum og jafn-
vel sjálfur Kristinn Finnbogason,
þó menn telji hins vegar líklegra að
hann vilji fyrst treysta grunninn
undir rekstri Tímans, þar sem hann
gegnir nú framkvæmdastjóra-
stöðu. . .
Rk|
■ úverandi framkvæmda-
stjóri BYGGUNG, Guðmundur
Karlsson, þarf á fundi með félög-
um í Byggung í kvöld að svara fyrir
margt sem gert var áður en hann
réðst til starfa hjá fyrirtækinu. Hann
tók ekki við framkvæmdastjóra-
stöðunni af Þorvaldi Mawby fyrr
en um síðustu áramót en áður hafði
Guðmundur verið framkvæmda-
stjóri NT. Hann tók við þeirri niður-
stöðu af Siguröi Skagfjörð eftir að
rekstur NT var ailur kominn í kalda
kol. Guðmundur ætti því að vera
orðinn reyndur í að fást við erfið-
leika og vafalaust þarf hann á þeirri
reynslu að halda er hann þarf að
kljást við 129 bálreiða íbúðakaup-
endur er telja sig illa svikna af stjórn
félagsins. . .
■ prófkjör sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum var sérstakt fyrir
margra hluta sakir. 360 manns tóku
þátt í prófkjörinu á ísafirði, 220 í
Bolunjgarvík og aöeins 60 á Patreks-
firði. I heild tóku 1170 manns þátt í
prófkjöri flokksins á Vestfjörðum.
Matthías Bjarnason, sem hreppti
fyrsta sæti, fékk aðeins 470 atkvæði
í þetta sæti. Þorvaldur Garðar
Kristjánsson fékk 318 atkvæði í
fyrsta sæti og Einar Kristinn fékk
160 atkvæði í fyrsta sætið. Matthías
fékk því aðeins rúm 40% í fyrsta
sætið, en ekki yfir 50% eins og
haldið hefur verið fram. Mesta at-
hygli vakti það hins vegar í þessu
prófkjöri, að Guðmundur Ingólfs-
son sem lengi hefur verið atkvæða-
mikill í röðum sjálfstæðismanna
vestra skuli ekki hafa fengið nema
230 atkvæði — alls, Guðjón Krist-
jánsson, formaður Farmanna- og
fiskimannasambands íslands, fékk
álíka mörg atkvæði. Báðir voru
þessir menn stuðningsmenn Sigur-
laugar Bjarnadóttur við síðustu
Alþingiskosningar. Báðir hafa rekist
illa í flokki miðstýringarmanna
Sjálfstæðisflokks á Vestfjörðum og
gjalda þess nú að hafa látið ófrið-
lega í „sjálfstæðisléni" Matthíasar
Bjarnasonar...
Prófkjör
Fstæðisflol<l<
Þegar menntun, reynsla og
þekking á þjóðmálum fara sam
þá er auðvelt að velja A
40 HELGARPÓSTURINN