Helgarpósturinn - 16.10.1986, Síða 22

Helgarpósturinn - 16.10.1986, Síða 22
EINAR KARL HARALDSSON, FYRRUM RITSTJORI ÞJÓÐVILJANS OG FRAM- KVÆMDASTJÓRI ALÞÝÐUBANDALAGS- INS LÍTUR UM ÖXL í VIÐTALI VIÐ HP: ÉGVAR SÁLGÆSLU FLOKKSINS Einar Karl Haraldsson kvaddi ís- land fyrir rúmu ári og hélt til Stokk- hólms þar sem hann tók viö starfi ritstjóra Nordisk Kontakt sem Norrœna rádherranefndin gefur út. Einar Karl var fréttastjóri og ritstjóri Þjóöviljans í tíu ár og framkvœmda- stjóri Alþýdubandalagsins í rúmt ár. Hann segir viö Helgarpóstinn ad hann hafi legiö undir feldi í Svíþjód og hugsað öll mál upp á nýtt. I við- talinu sem fer á eftir deilir hann hugsunum sínum rneð lesendum Helgarpóstsins: Um innanflokks- átökin íAlþýðubandalaginu, starfs- aðferðir flokksforystunnar fyrr og nú, stöðu Svavar Gestssonar sem formanns, vantraust og tortryggni í flokknum, árin á Þjóðviljanum, eig- ið hlutverk í flokksvélinni og fram- tíðina. „Ólafur Ragnar Grímsson sagði í Helgarpóstinum fyrir tveimur ár- um, fyrstur flokksmanna, að það væri kreppa í Aiþýðubandalaginu," segir Einar Karl. „Það þarf ekki mikla glöggskyggni til að sjá, að hann hefur reynst sannspár. Átök þurfa ekki að vera vond í sjálfu sér. Þau geta verið flokki til framdráttar. Hins er það vandi Alþýðubanda- lagsins að flokknum hefur ekki tek- ist að sýna fram á að deilunum inn- an hans sé lokið. Á sama tíma hefur Jóni Baldvin tekist að ná BJ inn í Al- þýðuflokkinn, leiða saman Hanni- bal og Gylfa og tekist að fram- kvæma loforð sín. Það er því enginn ástæða til að rengja Jón Baldvin þegar hann segir að verkalýðsleið- togarnir munu einnig koma til hans.“ ÁSMUND OG ÓLAF RAGNAR Á ÞING — Hvað heldur þú? „Það er ekkert nýtt að samein- ingarhugmyndir Alþýðuflokks- manna og Alþýðubandalags komi upp. í kringum 1979 voru hugmynd- ir um stofnun Verkamannaflokks. Samstarf milli þessara tveggja flokka hefur alitaf verið fyrir hendi; skemmst að minnast samstarfs- ins frá 1978. Hins vegar gætu átökin í Alþýðubandalaginu leitt til þess að einhverjir áhrifamenn úr verkalýðs- hreyfingu færu yfir til Alþýðuflokks- ins.“ — Þar með talin ASÍ-forystan? „Það fer mikið eftir því hvernig Alþýðubandalaginu tekst að leysa sín framtíðarmál." „Svavar er alinn upp i andrúmslofti kalda stríösins.“ „Eg var ekki ritstjóri Þjóð- viljans heldur blaðafulltrúi hreyfingarinnar.‘ ‘ ,, Eftir ríkisstjórnarþátttökuna stóð Svavar einn og einangraður‘ „Þjóðviljinn er ekki sjálfstœtt blað.“ ,,Ef Alþýðubandalagið heldur áfram að ýta út óþœgu og óþœgilegu fólki, geng ég úr flokknum.“ 22 HELGARPÓSTURINN eftir Ingólf Margeirsson myndir Jim Smartl

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.