Helgarpósturinn - 16.10.1986, Síða 26

Helgarpósturinn - 16.10.1986, Síða 26
EITUREFNUM DÆLT EFTIRLITSLAUST ÚT í UMHVERFIÐ HÆTTULEGUM EFNA- SAMBÖNDUM HENT Á HAUGANA EFNAMENGUN SÍST MINNI EN í ÖÐR- UM LÖNDUM MENGUNARVARNIR HÉRLENDIS í ÓLESTRI EFTIR STÓRU SLYSI / sumar var rarmsökud hola í vatnsbóli Keflavíkurftugvallar. Ein af tólf vatnsholum Vallarins. Niöur- stödur sýndu ad vatn var mengad óvenjulegum efnum. Tríklóretylen og 1,1,1 tríklóretan voru efnin sem mœldust í drykkjarvatninu. Hvoru tveggja lífrœn leysiefni, sem borist hafa í vatnsból Vallarins frá sorp- haugum innan girdingar, eda frá Sorpeydingarstöd Suðurnesja. Þetta eru mögulegir mengunarvaldar. Enn hefur ekki fengist úr því skorið hvaðan mengunin kemur, en rann- sóknir standa yfir. Rannsóknastofa tHáskólans í lyfjafrœði hefur greint sýni úr vatnsbólinu og jafnframt því hafa verið lögð drög að þvíað senda sýni til Danmerkur til frekari skoð- unar. Þá eru Bandaríkjamenn einn- ig að láta rannsaka sýni tekin úr vatnsbólinu. Efnamengunin kom á óvart Efnamengunin í vatnsbóli Vallar- ins kom mönnum á óvart, enda koma áður tilgreind efni ekki fyrir í vatnsbólum yfirleitt. Liklegast hafa efni þessi — affitunarefni — borist í grunnvatn frá sorphaugum. Þeirra varð vart þegar dælt var úr holunni, en annars er talið að grunnvatnið leiti til sjávar. Sýni voru tekin úr öll- um holum á Vellinum, en ekkert kom fram sem bendir til þess að efnamengun sé að finna t öðrum holum. Þá hafa sömuleiðis verið tekin sýni úr öllum vatnsbólum utan girðingar og bendir ekkert til þess að efnamengun sé í vatnsbólum Suðurnesjamanna. Hún takmarkast við þessa einu holu. Efnin, sem áður voru nefnd, eru einkum notuð til affitunar og til að ieysa upp önnur efnasambönd. Áð- ur fyrr var tríklóretylen notað á svæfingarvélar, en það síðarnefnda notað við framleiðslu á „instant kaffi“. Var því hætt eftir að rann- sóknir í Bandaríkjunum gáfu til kynna, að efnið gæti valdið krabba- meini. Andi menn að sér þessum efnum geta áhrifin orðið alvarleg. Menn finna til höfuðverkjarj vanlíðanar og kasta jafnvel upp. í alvarlegum tilvikum geta þessi efni leitt til trufl- unar á starfsemi hjarta og valdið skemmdum á lifur og nýrum. Við sí- fellda snertingu getur síðarnefnda efnið valdið útbrotum á húð. Efnin eru einkum notuð til að þrífa vélar og vélarhluta og eru algeng í bletta- vatni sem notað er á heimilum. Þeir sem hafa verið í snertingu við þessi efni um margra ára skeið geta átt á hættu lifrar- eða nýrnaskemmdir. Innan Vallarsvæðisins er ýmislegt grafið í jörðu — eins og utan þess. Þar er að finna vélar, olíuúrgang o.fl. Flugvélaflök eru grafin í jörðu og margt fleira, sem menn hafa ekki fram til þessa gefið sérstakan gaum. Er nú unnið að því innan Vallar að kortleggja alla sorphauga og alla staði þar sem grunur leikur á að sorpi og hættulegum efnum hafi verið fargað. Eins og áður sagði kom mengun þessi heilbrigðisyfirvöldum á óvart. Má telja fullvíst, að þetta dæmi af Keflavíkurflugvelli sé aðeins það fyrsta hérlendis og að fleiri og e.t.v. alvarlegri mengunardæmi eigi eftir að koma upp. Eiturefni á haugana ,,Ég hef miklar áhyggjur af þess- um málum almennt á Islandi," sagði Magnús H. Guðjónsson, heilbrigðis- fulltrúi Suðurnesja, þegar HP leitaði til hans vegna mengunarinnar á Vellinum. „Eg tel mjög brýnt, að þetta vandamál verði leystaðsið- aðra þjóða hætti — strax. Það er mjög alvarlegt að ekki skuli vera til upplýsingar um þessi hættulegu efni — notkun þeirra og umfram alit förgun. Það er nauðsynlegt að hér verði sett upp móttökustöð fyrir hættuleg efni, eins og gert er í öllum nágrannalöndum okkar, annað hvort til að að senda efnin úr landi eða þá til að farga þeim á öruggan hátt. Flest þessara efna eru hættu- leg í því formi, sem þeim er hent í, en hægt að gera þau hættulaus með brennslu eða efnaúrfellingu. Ég hef miklar áhyggjur af þessu, eins og ég sagði, og mér finnst eins og að menn bíði eftir stóra óhapp- inu í þessum efnum," sagði Magnús H. Guðjónsson. Fjölmörg eiturefni og hættuleg efni eru notuð hvunndags og notar almenningur mikið af þessum efnum. Oft án þess að gera sér grein fyrir því. Notkun blettavatnsins er ágætt dæmi um það. Hættuleg efni er einnig að finna í málningarvör- um og hreinsilegi af ýmsu tagi. Þau eru notuð við iðnframleiðslu hvers- konar. Málningarfyrirtækin nota m.a. blýsambönd, kobaltsambönd, járnoxíð, titanoxíð, zinkoxíð og mangan, svo dæmi séu tekin. Rann- sóknastofur — inná spítölum og annars staðar — ncta einnig mikið af hættulegum efnum. Og eru sum þeirra krabbameinsvaldandi. Sút- Skólp er ekki það eina sem streymir útí umhverfi okkar. Eiturefnum frá fyrirtækjum er hleypt niðrum skólpræsi. Enginn veit ( hve miklu magni. unarverksmiðjur nota mikið af krómsamböndum við sína fram- leiðslu, sem þeir þekkja sem fá út- brot af skinnfatnaði. Þá nota lyfja- verksmiðjur mikið af hættulegum efnum við framleiðslu sína. Almenningsfræðsla um hættuleg efni er í molum, enda telja sérfróðir menn að almenningur losi sig yfir- leitt við hættuleg eiturefni með því að fleygja þeim í rusl. Sama gildir um afgangslyf. Sama gildir um fyrir- tækin, sem losa sig við þessi efni beint útí náttúruna. Efnin, sem fundust í vatnsbólinu á Keflavíkurflugvelli hafa t.d. verið notuð lengi á vélaverkstæðum hér- lendis og til skamms tíma hefur úr- gangsefnunum verið sturtað niður í holræsi og þannig hafa þau að end- ingu endað í sjónum úti fyrir strönd- ínni Ekkert eftirlit Ekkert eftirlit er meðhættulegum efnum og eiturefnum á íslandi. Starfandi er eiturefnanefnd, sem gefur út tilkynningar um eiturefni og hættuleg efni. Berast þær upplýs- ingar til Vinnueftirlits ríkisins, en fyrst og síðast til Hollustuverndar ríkisins, sem ætti að hafa eftirlit með losun úrgangsefna útí náttúr- una. Sú stofnun hefur ekki viðbún- að til eftirlits eða mælinga og er því fyrirtækjunum það í sjálfsvald sett hvernig þau farga þessum efnum. Og HP hefur heimildir fyrir því, að víða leynist í fyrirtækjum eiturefni, sem hefur verið safnað saman í tölu- verðu magni og eru bráðhættuleg. Fyrirtæki í efnaiðnaði og önnur fyrirtæki sem nota hættuleg efni við framleiðslu sína hafa tvær aðferðir leftir Helga Má Arthursson við að farga eiturefnum. í fyrsta lagi fara þau með efnin á haugana og í öðru lagi hella þau efnunum í nið- urföll og þar með útí náttúruna. Til undantekninga heyrir að fyrirtæki komi úrgangsefnum sínum úr landi til förgunar eða til endurvinnslu. Efnamengun er af hálfu hins opin- bera ekki skilgreind sem vandamál. Sérfróðir menn telja hins vegar að efnamengun sé hérlendis síst minni en í öðrum löndum. Er talið fullvíst að á sorphaugum sé mikið um hættuleg úrgangsefni, enda hefur þeim verið hent á haugana. Má í þessu sambandi gera ráð fyrir því, að á sorphaugum Reykjavíkurborg- ar sé mikil efnamengun, sem meng- ar sjóinn undan ströndinni — steinsnar frá íbúðarbyggð. Engin eiginleg mengunarlöggjöf er til í landinu. Um þessar mundir er verið að semja mengunarreglugerð í Hollustuvernd ríkisins, en undir þá stofnun heyra þessi mál eins og áður er getið. Fyrirtæki, sem talin eru menga umhverfi sitt, þurfa að sækja um starfsleyfi til Hollustuverndar ríkis- ins. Og í þessum starfsleyfum eru ákvæði um það, hvað gera skuli við úrgangsefni og hvernig staðið skuli að mengunarvörnum. Reglur um förgun eiturefna eru hins vegar eng- ar til og því er eftirlit og mælingar á mengun vegna eiturefna í lágmarki. Eftirlit og mælingar eru það eina sem gefið getur vísbendingu um það að hve miklu leyti eiturefnum er dælt útí umhverfið. Hollustuverndin veit í grófum dráttum hvaða efni eru notuð í sumum fyrirtækjum, en eng- ar upplýsingar um það hvernig fyr- irtækin farga þessum efnum. Hafa mynd: Jim Smart menn þar litlar, eða engar, upplýs- ingar um magn og útbreiðslu hættu- legra efna. Hreinsunarstöðvar nauðsynlegar Mikil áhersla hefur verið lögð á það erlendis að koma í veg fyrir að eiturefni berist út í umhverfið. Hafa víðast hvar verið settar strangar reglur um losun úrgangsefna og fyr- irtækjum gert að farga, eða eyða, eiturefnum þeim sem verða til í framleiðslunni. Reistar hafa verið sérstakar móttökustöðvar eða hreinsistöðvar í þessu sambandi. Þangað á að safna öllum eiturefnum til eyðingar. Fyrirtækjum er gert skylt að gefa upplýsingar um notk- un hættulegra efna og sömuleiðis að gera grein fyrir úrgangsefnum. Stofnanir hefur þurft að setja á legg til að hafa eftirlit með því að lög og reglur séu haldnar og eru ströng viðurlög við því að brjóta þessar reglur. Hér eru þessi mál í mesta ólestri. Eiturefnum — jafnvel skólpi er dælt í hafið án þess svo mikið sem upp- fylla lágmarksreglur sem settar hafa verið, en skólpræsi ná sjaldnast út- fyrir stórstraumsfjöru eins og reglur segja til um. Hreinsunarstöð, eða móttökustöð fyrir eiturefni, er nauðsynleg hér eins og í öðrum löndum. Þetta er samdóma álit viðmælenda HP og þeir bæta við, að opinberir aðilar verði að setja samræmdar reglur um eiturefni og eftirlit með hættu- legum efnum. Verði það ekki gert, þá sé hætt við mengunarslysi — stóru slysi, eins og heilbrigðisfulltrú- inn á Suðurnesjum óttast. 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.