Helgarpósturinn - 16.10.1986, Side 37

Helgarpósturinn - 16.10.1986, Side 37
s, Þ urfi ég að velja á milli þess að hafa mínar eigin skoðanir og að fá atkvæði þá vel ég frekar mínar skoðanir og færri atkvæði — segir Asgeir Hannes Eiríksson í kosn- ingablaði sem dreift er í tíu þúsund eintökum til sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ásgeir Hannes fer óvenjulega Ieið að væntanlegum kjósendum sínum í blaðinu, þarsem m.a. er útlistað nánar við hvað er átt með auglýsingunum sem vakið hafa athygli á þingmannsefninu: „Penn- inn er sterkasta vopnið í pólitík" og „Einn af okkur á þing”. Meðal þess klókasta sem sést hefur í áróðrinum er opna blaðsins, þar sem ævisaga frambjóðandans er rakin, aðallega með því að telja upp nöfn á fólki sem maðurinn hefur umgengist. Þá hefur frambjóðandinn fengið að láni form frá HP í blaðinu: yfir- heyrslu yfir honum sjálfum, þar sem hann segist vera á móti flokksræði. Meðal þess helsta úr lífshlaupi Ás- geirs Hannesar er að hann hefur verið formaður svo ólíkra félaga sem Sambands dýraverndunarfé- laga á íslandi og Karatefélags Reykjavíkur. Þá hefur hann m.a. set- ið i stjórnum íþróttafélagsins Leikn- is og Langborðsnefnd vegna 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar... L bara á kostnað Landsbankans í Reykjavík. .. laxveiðivertíðin er liðin og ku hafa verið ánægjuleg. Þeir hafa vafalaust skemmt sér konunglega klúbbsmenn sem skruppu í veiði í Ölfusá með Jónasi Haralz banka- stjóra Landsbankans nú í ágúst. Eftir fiskeríið var slegið upp mikilli kok- teilveislu í veiðihúsinu þar og telja kunnugir að keyptar hafi verið vín- birgðir fyrir hátt á annað hundrað þúsund krónur. Á kostnað Lands- bankans að sjálfsögðu — aðalbank- ans að hálfu og Selfossútibús að hálfu. Að veiðiferð lokinni var síðan öllum boðið á Hótel Örk og þar gert vel við menn — að þessu sinni E litt af því sem vakti athygli manna við komu sovésku sendi- nefndarinnar sem fylgdi Gorbat- sjoff á íslandsheimsókninni var allur sá rosalegi farangur sem fylgdi mannskapnum austan af Volgu- bökkum. Sömu menn tóku líka eftir því við brottför Rússanna, að far- angurinn til baka var miklu minni um sig en við komuna. Við spáum ekkert frekar í málið, svo friður haldist, en þetta er haft eftir ekki óábyrgari aðilum en lögreglunni.. . Norðurlandskjördæmi vestra hefur staðið styr um utankjörstaða- atkvæðagreiðslu í Alþýðuflokkn- um. Birgir Dýrfjörd vildi hafa þriggja vikna frest, en Jón Sæ- mundur Sigurjónsson keppinaut- ur hans um þingsæti vildi einungis viku frest. Skyndilega breyttu stuðningsmenn Jóns Sæmundar um afstöðu og féllust á að hafa þriggja vikna frest. Ástæðan er talin vera sú, að nokkrir skipverjar á Skaga- strandartogaranum Örvari ætla að taka þátt í prófkjörinu og einn helsti stuðningsmaður Jóns Sæmundar ætlar að halda partí. Leynigestur kvöldsins í partíinu verður: Jón Sæmundur Sigurjónsson... 'tuðningsmenn Alberts Guð- mundssonar hafa unnið gífurlega vinnu í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins, sem verður um helgina. Þeir hafa hringt í alla kjörskrána, um 9000 manns, og talið er að hundruð manna muni ganga í flokkinn til að kjósa Albert — þar af margir úr trú- arsöfnuðunum. Andstæðingar Alberts skjálfa á beinunum af því þeir óttast að hann nái 1. sætinu ef svo heldur sem horfir ... rruii m Hábora u ÁLogPLAST F - SÉRSMÍÐI tekur viö af ál og pfastdeild Nýborgar LiMiJkfJH S V S T E IVI INNRÉTTINGAR ÚR ÁLPRÓFILUM ÓTRÚLEG FJÖLBREYTNI ODÝR LAUSN ACRYL PLASTGLER FRAMLEIÐSLA ÚR PLASTGLERI GEFUR ENDALAUSA MÖGULEIKA Háborg H ÁLogPLAST F - SÉRSMÍDI Skútuvogi 4 -Simi 82140 STURTUKLEFAR SÉRSMÍÐAÐIR EFTIR ÞÖRFUM HVERS OG EINS NÝTJ OG, GIÆSILEGT HOTEL A SELFOSSI Glæsilegir samkomu- og ráðstefnusalir á annari hæð fyrir allt að 400 manns í sæti. Allar veitingar, fyrsta flokks matur í veitingabúð á 1. hæð. í hótelinu eru snyrtistofa og snyrtivöruverslun, hárgreiðslustofa, gleraugnaverslun, minja- gripaverslun og umferðamiðstöð. Gisting í 20 herbergjum. Viö gerum okkar ýtrasta til að uppfylla allar þínar óskir. Vió sjáum um fundi og ráöstefnur fyrir þig. Allt í einum pakka - ferðir til og frá Selfossi (leigubílar/ langferðabílár) fundaaðstaða, veitingar og gisting. Vertu velkominn á Selfoss í vinarlegt umhverfi! kóPel SELFOSS EYRAVEGI 2, 800 SELFOSSI, SÍMI 99 2500 HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.