Helgarpósturinn - 28.05.1987, Blaðsíða 4
' '
'
'
%|*Y4
■r <--"*• :
m-4
gwíwr+i
Davlð borgarstjóri og Ástrlður borgarstjórafrú ganga upp tröppur Höfða eftir að hafa stigið úr kádiljáknum nýja, sem sést fyrir aftan ásamt Jóni Árnasyni bllstjóra. Sumir
flokksbræðra Davlðs sögðu: Það er sama hversu bdlinn er dýr, bara að hann sé ekki frá Sambandinu!
Var spenntur fyrir Benz
HP skreppur í könnunarferð í Cadillac-bifreið borgarstjórans og ræðir við Davíð um djásnið
Davið Oddsson borgarstjóri uar
að fá sér nýjan kádilják fyrir
embættið og þad vakti athygli eins
og endranœr, þegar bílar og stór
embœtti fara saman. Fyrir borgar-
stjórann var keyptur Cadillac Fleet-
wood 60 special og verðið sagt kr.
2.876.635. Hér er auðuitað um ueg-
lega bifreið aö rœða, 182 sentimetr-
ar á breidd, 511 sentimetrar á lengd
og eigin þyngd 1519 kíló (sem þýöir
að kílóið af bílnum kostar 1894
krónur!) Blaðamaður HP skrapp í
könnunarferð með Jóni Arnasyni
bílstjóra borgarstjórans. Niðurstað-
an var í grófum dráttum sú að bif-
reiðin vœri þœgileg og uegleg en
samt fábrotin og furðulega lítil um
sig! Þarna uar enginn bar, ekkert
sjónuarp. Nánast bara sími og tölvu-
kerfi sem sýndi hitastigið úti og
bensíneyðsluna. Kveikjararnir tueir
aftur í eru auðuitað til einskis, því
eins og allir uita er bannað að reykja
á opinberum stöðum! Fyrir utan
dúnmýktina að innan vakti mesta
athygli blaðamanns að aftur í voru
speglar, sem Kaninn kallar afhrein-
skilni „Vanity-mirrors" og þýða má
yfir á íslensku sem fordildarspegla!
Jón bílstjóri sagði að það væri
ákaflega gott að keyra bílinn, hann
væri mun fyrirferðarminni en for-
verinn, Buick-inn. Jón sagði okkur
m.a. frá því að númerið, R-612, hefði
fylgt bíl borgarstjóra um árabil og
hefði á sinum tíma verið tekið af
öskubíl og sett á borgarstjórabílinn.
Það eru aðallega liturinn og borg-
armerkið sem gera bílinn áberandi
og varla að hann beri nafn með
rentu, það laumast jafnvel að manni
sá grunur að SÍS hafi látið Davíð
borga allt of mikið! Og væri þá nær
að beina athyglinni að slíku svindli
en að Davíð væri að fá sér ósköp
venjulega og lítilmótlega drossíu,
ekki einu sinni límósínu. En borgar-
fulltrúar hafa gagnrýnt Davíð mjög
fyrir kaupin og Þjóðviljinn segir
nær að veita fé til fatlaðra.
Sjálfur er Davíð hinn brattasti og
þegar HP ræddi við hann í kokkteil-
boði í Höfða var hann hinn ánægð-
asti með bílinn og lét hneykslan
blaða og manna sem vind um eyrun
þjóta: „Ég tek svona umtal óskap-
lega lítið nærri mér. Það hefur alltaf
verið þannig að blaðaskrif snerta
mig tiltölulega lítið. Þess vegna
kemur það mjög sjaldan fyrir að ég
svari einhverju sem um mig er sagt.
Þess má þó geta hérna, af því rætt
hefur verið um verðið á bílnum, að
það lækkaði vegna þess hversu
gengi dollarans hefur lækkað mikið,
um einar 300 þúsundir króna.“ ,
— Þú hefur þá ualið bíl frá SIS.
Fœrðu ekki skömm í hattinn frá
flokksbrœðrum, sem vœntanlega
benda þér á Benz frá Hallgríms-
sonum eða einhvern flottan frá
Heklu?
„Ég verð að viðurkenna að ég
var dálítið spenntur fyrir því að
keyptur yrði Benz. En hann var dýr-
ari í þessum klassa og því var bíll frá
Sambandinu keyptur. Það eru fleiri
rök fyrir því, svo sem að hann er
framhjóladrifinn, það kemur sér
betur og við verðum að sýna for-
dæmi þessir sem ráðleggjum öðrum
að keyra ekki á nöglum. En ég
heyrði það vissulega aðeins, að
menn sögðu sem svo: „Það er sama
hvað þú kaupir dýran bíl, bölvaður,
en ekki versla við Sambandið"! En
málið er það, að ég hef ekki áhuga
á því að mínar stjórnmálaskoðanir
komi fram í því hvaða bíl ég ek með-
an ég er í þessu starfi. Ég myndi ef
til vill gera það ef ég væri að kaupa
bíl fyrir sjálfan mig, þá myndi ég
kannski hafa meiri áhuga á því frá
hvaða fyrirtæki bíllinn kæmi.“
— En nú var það uinstri borgar-
stjórnin sem skipti yfir frá Benz til
SÍS. Maður hefði haldið að þú uildir
umturna öllu frá þeim tíma?
„Jú, en sjáðu til, þannig stóð á að
þýska markið hafði hækkað alveg
gríðarlega og Benz var mun dýrari
en amerískur bíll. Því var ekki stætt
á því að skipta um. En auðvitað velti
maður þessu fyrir sér, t.d. þegar
Buick-inn var keyptur og einnig nú.“
— En eru suona „drossíur“
embœttinu virkilega nauðsynlegar
— og ef svo er — af huerju fórstu
ekki út í flottari,,límósín"?
„Reykjavík er eins og þú veist
höfuðborg landsins og hún vill auð-
vitað halda uppi vissri reisn. Við get-
um til dæmis spurt um þetta hús,
Kádiljákurinn er sæmilega veglegur og rúmgóður, en eins og þessi mynd ber meó sér
er samt dálítið þröngt um Davlð þegar hann stlgur út!
Bfllinn að innan aftur f. Fótaskemlar fyrir farþegana og sætin dúnmjúk. Að öðru leyti
„fátt um fína drætti", nema lestrarljós og fordildarspeglar I loftinu!
eftir Friðrik Þór Guömundsson
myndir Jim Smartl
4 HELGARPÓSTURINN