Helgarpósturinn - 28.05.1987, Blaðsíða 35
FRÉTTAPÓSTUR
Jarðhræringar
Sterkasti jarðskjálfti sem orðið hefur á Suðurlandi frá því
árið 1912 varð skömmu fyrir hádegi á mánudag. Mældist
hann 5,8 stig á Richter og átti upptök sín skammt undan
Heklu. Jarðskjálftinn fannst greinilega um allt Suðurland,
og léku hús í Rangárvallasýslu á reiðiskjálfi. Skjálftans varð
einnig vart á Reykjanesi, á höfuðborgarsvæðinu og allt vest-
ur á Rif. Ekki varð tjón á húsum. Jarðskjálftinn á mánudag
er sterkasti skjálfti sem mælst hefur frá árinu 1976. Jarð-
hræringar þessar munu ekki endilega benda til goss í Heklu
en ástæða er þó talin til að Almannavarnir verði í viðbragðs-
stöðu. Skjálfti fannst á þriðjudagskvöldið í Krýsuvík og
mældist hann 2,0 stig og um sexleytið í gærmorgun mældist
2,5 stiga skjálfti við Vatnafjöll.
Burðarþoli ábótavant
Úttekt á burðarþoli ýmissa stórbygginga í Reykjavík leiddi
í ljós að burðarþoli fjölda nýbygginga er stórlega ábótavant.
Ýmsir aðilar sem fest hafa kaup á nýlegu atvinnuhúsnæði
óttast mjög að verðgildi fasteignanna falli í verði meðan ekki
er ljóst hvort þær standast kröfur um burðarþol. Meðal til-
lagna sem embætti borgarverkfræðings lagði fyrir borgar-
stjórn um úrbætur á meðferð byggingarmála er tillaga þess
efnis að burðarþolshönnuðir leggi undantekningarlaust
fram allar teikningar með húsum sínum, óháður aðili gefi
umsögn um burðarþol og hönnun allra stærri bygginga og
að allar teikningar sem lagðar eru fyrir byggingarnefnd
verði með áritun burðarþolshönnuðar um að hann treysti
sér til að hanná burðarþol í þá byggingu sem nefndin f jallar
um hverju sinni.
Verkfræðinganefnd sem kannaði burðarþol nokkurra
bygginga komst að þeirri niðurstöðu að ekkert þeirra húsa
sem könnuð voru stóðst að öllu leyti settar kröfur um burð-
arþol. Athuguð voru tíu hús á Reykjavíkursvæðinu sem öll
eru nýleg, annaðhvort verslunar- og skrifstofuhús eða
skólahús. í flestum tilfellum vantaði burðarþolsteikningar
og útreikninga. í sumum tilfellum var ljóst af teikningum
að húsin væru það léleg að þau stæðu vart undir sjálfum sér,
hvað þá heldur jarðskjálfta. í kjölfar burðarþolsskýrslunn-
ar hefur komið í ljós að trúnaðarbrestur hefur orðið milli
ákveðinna starfsmanna hjá embætti byggingarfulltrúa
Reykjavíkur. Á borgarráðsfundi í fyrradag var samþykkt
tillaga sjálfstæðismanna um fjóra óháða aðila sem taki út
allar stórbyggingar í borginni. Ákveðið var að fresta tillög-
nm stjórnarandstöðunnar um að embætti byggingarfull-
trúa borgarinnar verði endurskoðað.
Fréttapunktar:
• Hvalkjötið sem kyrrsett var í fríhöfninni í Hamborg er á
leið til íslands, þaðan sem það verður sent til Japans. Ríkis-
stjórn íslands hefur ákveðið að mótmæla meðferð þessa
máls af hálfu vestur-þýskra yfirvalda.
• Ófremdarástand ríkir víða varðandi brunavarnir á sum-
ardvalarheimilum barna. Ekki verður mælt með leyfi til
rekstrar staða sem ekki uppfylla sett skilyrði. Af tuttugu
umsóknum sem borist hafa Barnaverndarráði íslands um
rekstur sumardvalarstaða hefur aðeins ein verið afgreidd.
• Eyðnismituð kona var fyrir skömmu sett í stofufangelsi
og er íbúðar hennar gætt af lögreglumönnum. Heilbrigðis-
ráðherra gaf á sínum tima heimild til að farsóttarlögunum
yrði beitt í tilvikum eyðnisjúklinga.
• í síðustu viku var gerð tilraun til að smygla stóðhesti úr
landi. Það voru tveir menn sem stóðu að stóðhestssmyglinu
og greiddu þeir farmgjöldin með innistæðulausri ávísun.
Þeir félgar fluttu alls út 20 hross og hefur hópurinn verið
kyrrsettur í Belgíu.
• Tveir fulltrúar í verðlagsráði sjávarútvegsins eru andvígir
hugmyndinni um frjálst fiskverð og er því talið að fiskverð
verði ekki gefið frjálst um mánaðamótin eins og spáð hafði
verið. Það er einkum fulltrúi SÍS sem setur sig á móti frjálsu
fiskverði.
• Hannes Hlífar Stefánsson, 14 ára, varð heimsmeistari
unglinga 16 ára og yngri á heimsmeistaramótinu í skák sem
haldið var í Innsbruck í Austurríki.
• Ómar Ragnarsson og fjórir farþegar hans sluppu nær
ómeiddir eftir að Ómar nauðlenti flugvél sinni á Reykja-
hlíðarafrétti á sunnudaginn. Vélin er mikið skemmd.
0 Breskir sjómenn rösuðu út á íslandi I síðustu viku og hót-
uðu meðal annars starfsmönnum veitingastaðarins Gauks
á Stöng lífláti með stórri eldhússveðju. í áflogum sem fylgdu
brotnuðu glös og diskar auk þess sem starfsfólk hlaut
minniháttar áverka.
• Sverrir Hermannsson menntamálaráherra setti í síðustu
viku Ólaf Guðmundsson, skólastjóra á Egilsstöðum,
fræðslustjóra Norðurlands eystra til eins árs. Tveir aðrir
umsækjendur voru um stöðuna,-Sturla Kristjánsson og
Guðmundur Ingi Leifsson. Fræðsluráð kjördæmisins hafði
sent frá sér meðmæli með Sturlu Kristjánssyni. Starfsfólk
fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra samþykkti
á fundi sínum í fyrradag að skora á Ólaf Guðmundsson að
draga sig til baka.
• Hópur islenskukennara á höfuðborgarsvæðinu hélt fund
á föstudaginn i siðustu viku um samræmda prófið í is-
lensku, sem þeir telja að hafi verið of þungt. Kennarar vilja
að prófið verði endurmetið og kröfurnar miðaðar við þroska
þess nemendahóps sem verið er að fjalla um, þ.e. grunn-
skólabarna, en ekki að þær séu eins og á framhaldsskóla-
stigi eða ofar. Fall í íslenskuprófinu í sumum skólum var
30—50%.
Spurning
um eyðni?
SÍMI 91-622280
Á LANDSPÍTALANUM
|P
GEGN EYÐNI
BÍLALEIGAN
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræðraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiöslukorta
þjónusta
Sími 688177
Sumarpeysur Iðunnar eru framleiddar úr ítölsku bómullargarni.
Hér sjáið þið sýnishorn af dömu- og herrapeysum, en mikið
úrval er af sumarpeysum á dömur, herra og börn í verslun
okkar á Nesinu.
Einnig eru
seldar í
verslun
okkar:
Dömubuxur frá
Gardeur í
V -Þýskalandi.
Dömublússur og
skyrtur frá
Oscar of Sveden
og Kellermann
í Svíþjóð.
Komið
sjáið og
sannfærist.
> f _L_ PRJÓNAST0FAN
Uduntu,
v/Nesveg, Seltjarnamesi.
HELGARPÓSTURtNN 35