Helgarpósturinn - 28.05.1987, Qupperneq 5
Höfða; er ástæða fyrir borgina að
halda uppi og reka svona hús? Það
má alltaf deila um slíka hluti og sjálf-
sagt mætti gera eins og í gamla
daga, að taka á móti erlendum gest-
um í skólum, það var t.d. gert í Mela-
skóla mikið. Annars finnst mér það
mjög skemmtilegt að þessi bílamál
skuli tengjast mér núna, því ég hef
mjög sjaldan átt bíl. Ég var t.d. bíl-
laus síðasta eitt og hálft árið áður en
ég varð borgarstjóri, ég var nýbúinn
að kaupa mér húsnæði og hafði selt
bílinn minn og fór þá um í strætó
eða leigubíl þegar mikið lá við. Síð-
asta mánuðinn fyrir kosningarnar
leigði ég síðan gamlan bíl í mesta
erlinum."
— Þú ert þá greinilega ekki hald-
inn bíladellu?
„Nei, það hef ég aldrei verið.
Fyrsti bíllinn sem við eignuðumst
var gamall Bronco sem ég keypti
notaðan af tengdaföður mínum. Svo
keyptum við okkur íbúð eftir að
hafa leigt í 5 ár og þá var sá gamli
seldur og við bíllaus í eitt ár. Um það
leyti tók kona mín bílpróf, sem rann
ónotað út af því við keyptum engan
bíl, og nú 17 árum síðar var hún að
taka prófið fyrst aftur!"
— Hvad segir þú mér nánar af
kádiljáknum. Hvad er svona sér-
slakt vid hann?
„Það var öllu meiri reisn yfir
Buicknum, sem nú er til sölu, hann
er stærri og þegar forstjóri Vélamið-
stöðvarinnar kom til mín með tillög-
ur spurði ég hvort við ættum ekki
bara að fá eins bíl. En þá var hætt að
framleiða þá og sagt að þessi væri
einna líkastur af þeim sem í boði
voru. Nú, nafnið Cadillac, það
hljómar eitthvað svo fínt hér á landi
að menn rekur í rogastans og benda
á allt annað, bara að það sé ekki
Cadillac. En það er afskaplega gott
að keyra þennan bíl og það er það
sem skiptir rnáli."
— Bíllinn er frá Sambandinu. En
kaupir þá bensín frá ESSO-stödvum
Sambandsins eda hvad?
„Hingað til, fram að þessum bíl,
höfum við keypt bensín aðallega hjá
Bœjarleiöum á Langholtsvegi, sem
byggðist á því að þeir skrifuðu. Ég
hef enn ekki keypt bensín á þennan,
en mér skilst á Jóni bílstjóra að hann
versli við SHELL á Mikiubraut, því
þar sé skrifað. Annars erum við með
sérstakan tank hérna ef svo ber
undir."
— Neytendaspurning. Veistu hvað
bensínlítrinn kostar í dag?
„Nei, þó skömm sé frá að segja þá
veit ég það ekki. Svei mér þá, hvað
skyldi hann kosta? Er það 25-kall
eða eitthvað svoleiðis? Hann Jón
hlýtur að vita þetta, þú verður að
spurja hann!"
— Lokaspurning. Glápir fólk mik-
ið á bílinn og þig þegar þú keyrir
um?
„Eg keyri gríðarlega mikið um
borgina og ég tók eftir því fyrsta ár-
ið sem ég var borgarstjóri að fólk
var að horfa. En allt kemst upp í
vana og ég verð ekki mikið var við
þetta núna. Mér er sagt þegar ég er
að keyra einhvern í bílnum að þá
taka þeir eftir því, en ég er orðinn
ónæmur fyrir þessu sjálfur."
Hér má sjá bflinn að innan frammi (. Davíð
keyrir bflinn mikið sjálfur þó hann hafi bfl-
stjóra, hann segist sjaldan hafa átt bfl,
enda ekki haldinn bíladellu. Stminn er
þarna til staðar og tölvustýrður upplýs-
ingabanki segir meðal annars frá bensín-
eyðslunni á hverri stundu og frá hitastig-
inu úti.
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
hús
Smiðshöfða 9
Sími 68-56-99.
næstkomandi föstudag, 29. maí, og laugardag, 30. maí,
kl. 13-18 til kynningar á vörum okkar sem
við framleiðum og erum umboðsaðilar, eða
söluaðilar fyrir svo sem: fV-T-
is! " \
Kaffi
á
könnunni
Verið
velkomin
rennur og fittings
m Lindal
loftræstivörur, rör og fittings o.fl
& f &
Hita- og kæli „element"
o
r IS
ristar og loftdreifarar
Stokkalyftur
smáblésarar
og viftur
camfil
pokasíur, eldhússíur,
dúksíur
■=->®
£ GEBHARDT
blásarar
BUKKSMIflJftK HE HB
hitablásarar fyrir hitaveitur
Hitasamstæður
Sorpílát fyrir fyrirtæki
Sorpskápar fyrir íbúöarhús
Smiðshöfða* 9
Sími 68-56-99.
HELGARPÖSTURINN 5