Helgarpósturinn - 28.05.1987, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir,
Friðrik Þór Guðmundsson,
Gunnar Smári Egilsson,
Jónína Leósdóttir,
Kristján Kristjánsson og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útlit: Jón Öskar Hafsteinsson
Prófarkir:
Sigríður H. Gunnarsdóttir.
Ljósmyndir: Jim Smart
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Auglýsingar:
Bergþóra Sigurbjörnsdóttir,
Sigurrós Kristinsdóttir.
Dreifing: Garðar Jensson
(heimasími: 74471),
Guðrún Geirsdóttir.
Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir.
Sendingar: Ástríður Helga.
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
681511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, simi 681511.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot: Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Hvar er heilbrigðisráðherrann?
Í Helgarpóstinum í dag er sagt frá salmon-
ellusýkingu í kjúklingum, sem orðið hefur í kjúkl-
ingabúi eða sláturhúsi ísfugls í Mosfellssveit. Við
matreiðslu kjúklinganna í veislu í Búðardal voru
gerð mistök, þannig aöfjöldi fólks fárveiktist. Marg-
ir eru enn veikir og gætu verið frá vinnu svo mánuð-
um skiptir. Gífurlegt fjárhagstjón hefur orðið vegna
þessa máls, fólk og fyrirtæki í Dalasýslu orðið fyrir
stórskaða. Kjúklingafyrirtækið isfugl hefur einnig
orðið fyrir áfalli sem og matvælaframleiðsla þjóðar-
innar öll.
Mál þetta sýnir að eftirlit með matvælafram-
leiðslunni er ónógt, það sýnir einnig vanhæfni kerf-
isins að bregðast við með tilhlýðilegum hætti þeg-
ar upp kemst um sýkingu af þessum toga.
Veislan var haldin 19. apríl. Strax á fyrstu dögum
beindist grunur að salmonellusýkingu úr matvæl-
um. En það var ekki fyrr en um mánaðamótin april/
maí að tekin voru sýni úr hrámeti á veitingastaðn-
um, þar sem upp komst um salmonelluna. Innkall-
anir á kjúklingakjötinu bæði af hálfu heilbrigðis-
nefnda og fyrirtækisins tókust ekki betur en svo, að
( einum fjölsóttasta stórmarkaði Reykjavíkur var
kjúklingur með sama framleiðslunúmeri til sölu sl.
laugardag, 23. maí. Það er ótrúleg handvömm.
Hvers konar háttalag er þetta eiginlega?
Boðskapurinn sem neytendur hafa fengið frá
ýmsum embættismönnum er í stuttu máli sá, að
það sé alltaf við því að búast að kjúklingar séu
salmonellusýktir. Það er því ekki nema von að tals-
menn neytenda bregðist hart við: Allt þetta mál er
gjörsamlega óþolandi fyrir (slenska neytendur, við
sættum okkur ekki við þetta slugs og fúsk, við
krefjumst þess að komið verði í veg fyrir sýkingu,
segir formaður Neytendasamtakanna.
Lögum og reglum samkvæmt eiga héraðsdýra-
læknir og yfirdýralæknir að sjá um eftirlit með kjúkl-
ingabúum og sláturhúsum. Þetta eftirlit var fram-
kvæmt þannig fyrir hálfu ári að tekin voru tilviljunar-
kennd sýni úr fuglunum. Þegar svo kemst upp að
kjötið hafi verið mengað salmonellu er farið að
kanna kjúklingabúið og sláturhúsið upp á nýtt.
Hver framkvæmir þá rannsókn? Enginn annar en
sami héraðsdýralæknir og átti að sjá um eftirlitið.
Hvers konar kerfi er þetta? Vanhæft kerfi, vont kerfi.
Á neytendaumbúðunum utan um kjúklinga er
sérstaklega tekið fram að viðkomandi fugli hafi ver-
ið „slátrað undir eftirliti heilbrigðisyfirvalda". Hvers
konar eftirlit er það? Sýnishorn úr hálsaskinni kjúkl-
inga öðru hvoru, það er allt og sumt. Nær væri að
merkja þessar umbúöir með varúðarupphrópun:
þessi kjúklingur gæti verið mengaður salmonellu!
Kjúklingum á Islandi er nefnilega ekki slátrað undir
eftirliti heilbrigðisyfirvalda, heldur er þeim slátrað
með samþykki heilbrigðisyfirvalda.
íslenskt atvinnu- og efnahagslíf byggir að miklu
leyti á matvælaframleiðslu. Ein ástæða velgengni
okkar er sú, að við flytjum vöruna á markað (lönd-
um, þar sem mengun er mikil og náttúrleg afurð
sérlega eftirsóknarverð. Það gefur augaleið að ís-
lensk matvælaframleiðsla verður að vera um allt til
fyrirmyndar. Það er þess vegna ekkert eðlilegt að
vísa til mengaðrar matvöru erlendis til að afsaka
mengaða matvöru hér á landi.
Að undanförnu hefur hvert stórmálið rekið ann-
að, sem hvert fyrir sig kostar þjóðarbúið tugmilljón-
ir eða hundruð milljóna króna. Sameiginlegt ein-
kenni þeirra er þó það, að viðkomandi stjórnvöld
hika við að taka á vandanum með skeleggum og
viðeigandi hætti. Gömlu stjórnmálaflokkarnir sem
búið hafa til íslenska valdakerfið hafa ekki getað
tekið á vandamálum síðustu árin, þeir sópa þeim
undir teppið Eins er um stjórnkerfið þeirra, það
reynir að stinga vandanum undir stól, svo embætt-
ismennirnir fái að sitja rólegir ( sínum hæga sessi.
En slfk vandamál eru oftar en ekki eins og kjarn-
orkusprengja sem gæti sprungið þegar minnst var-
ir. Þetta á við um byggingarþolsmálið í Reykjavíkur-
borg og þetta á við um salmonellumálið.
Eftir japl, jaml og fuður í margar vikur virðist kerf-
ið um síðir að átta sig á að hér er um stórmál að
ræða og Hollustuvernd rlkisins hefur nú loks óskað
eftir opinberri rannsókn málsins.
Yfirstjórn heilbrigðismála í landinu hefur ekkert
gert sem neytendur hafa orðið varir við. Eðlilegustu
viðbrögðin hefðu einmitt verið að heilbrigðis- og
tryggingaráðherra skipaði sjálfur rannsóknarnefnd
og fyrirskipaði lögreglurannsókn, léti kanna hvern-
ig hægt væri að koma í veg fyrir sýkingu af þessum
toga og hvernig hægt væri að koma sjúklingunum
til hjálpar. í landinu situr rikisstjórn, sem ekki hlaut
traust í kosningum, en hún er engu að síður starfs-
stjórn, sem á að sinna verkum af þessum toga.
Hvar er heilbrigðisráðherrann? Gegnir enginn því
embætti lengur?
Helgarpóstinn vantar sölubörn í öll
hverfi.
Góð sölulaun
Vinsamlega hringiö eda komiö og
látið skrá ykkur.
HELGARPOSTURINN
SÍMI: 681511
ÁRMÚLA 36-2. HÆÐ
A
aðalfundi Álafoss á mánu-
daginn var öll stjórn félagsins látin
víkja. I stað hennar var skipuð sann-
köiluð stjörnustjdrn. Hana skipa
Sigurður Helgason eldri, stjórn-
arformaður Flugleiða, Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Granda hf.,
Gestur Jónsson, lögmaður og bú-
stjóri í þrotabúi Hafskips, Garðar
Ingvarsson, hagfræðingur hjá
Seðlabankanum, og Guðjón Hjart-
arson, framkvæmdastjóri rann-
sóknar- og þróunarsviðs Álafoss.
Það á eftir að reyna á hvort þessi
stjórn getur bjargað Álafossi frá
gjaldþroti af eigin rammieik, eða
með aðstoð Sambandsins. A.m.k.
eru þarna saman komnir vænlegir
stjórnarmenn í samrunafyrirtæki
Álafoss og Iðnaðardeildar Sam-
bandsins, sem verður með stærstu
fyrirtækjum landsins. ..
ppsláttur Tímans um að
fiotinn væri skjálfandi af smygli
vakti nokkra athygli í síðustu viku.
Talnafróðir menn tóku sér vasa-
tölvu í hönd og komust að því, að
smygl áhafnar Álafoss næmi sem
samsvaraði tæplega tveimur flösk-
um í túr á þeim tæpu tveimur árum
sem rannsóknin náði yfir. Það gerir
tæplega helmings viðbót við
skammtinn. Eftir að Rannsóknar-
lögreglan, tollgæslan og ljósmynd-
ari Tímans tóku á móti Eyrarfossi
bíða menn í óþreyju eftir fréttum af
því, hvort hið hásicalega met Álafoss
hafi verið slegið. . .
R
■ míó-tríóið góðkunna er síður
en svo dautt úr öllum æðum. Eftir
að hafa gert ,,come-back“ í Broad-
way um árið og fylgt því eftir með
plötu hafa þeir félagar verið stans-
laust á ferðinni og nú hefur hljóm-
plötuútgáfan Steinar ákveðið að
gefa út plötu með tríóinu, þar sem
þeir syngja gömul og góð íslensk al-
þýðulög sem ekki hafa verið sett á
plötur um langa hríð. Platan er
væntanleg með haustinu...
B
laðaskrif um stóðhests-
smyglið til Þýskalands hafa verið
kölluð ,,rugl“ af mörgum hesta-
mönnum. Segja þeir að stóðhestur-
inn hafi verið skoðaður af dýra-
lækni og með honum hafi fylgt
pappírar þess eðlis að um væri að
ræða stóðhest en ekki gelding.
Dýralæknirinn hafi hins vegar haft í
nógu öðru að snúast en lesa pappír-
ana og að auki sé það venjan að
hægt sé að treysta hestamönnum
sem standa í útflutningi til að gefa
réttar upplýsingar að fyrra bragði.
Ástæða þess að útflytjandinn sagði
ekki frá því að hér væri um stóðhest
að ræða var sú að hann ætlaði að
spara sér að greiða af honum
50.000 króna toll þar sem hann
átti ekki fyrir tollinum á þessum
tíma. Hestamennirnir segja því að
þetta hafi alls ekki verið „smygl“
heldur hafi tímaskortur orðið til
þess að hesturinn var ekki grand-
skoðaður, enda sé þess ekki
krafist...
fi
^^^^ifurleg átök eru nú innan
Sambands ungra sjálfstæðismanna
vegna formannskjörs SUS, sem
verður í ágústmánuði. Flokkadrætt-
ir hafa verið með mönnum vegna
málsins, en lengi þótti óljóst hvar
Vilhjálmur Egilsson fráfarandi
formaður myndi standa. Hann er nú
sagður gefa sig upp á Sigurbjörn
Magnússon þénara þingflokksins.
Stjórn SUS er sögð standa með Sig-
urbirni, sem m.a. hefur sent út
kynningarbréf. Hinn aðalframbjóð-
andinn er Árni Sigfússon borgar-
fulltrúi, sem nýtur stuðnings Þórs
Sigfússonar bróður síns (formanns
Heimdallar) og ættarinnar allrar í
flokknum (Johnsen-ættin úr
Eyjum). Menn Sigurbjarnar telja sig
sporna við ættarveldi í flokknum,
en menn Árna telja sig einnig vera
að sporna við ættarveldi (Sigur-
björn er talinn vera hallur undir
Engeyinga). Margir óttast að fyrst
svo snemma er byrjað að berast á
banaspjót muni þurfa málamiðl-
unarmann. Heyrst hefur talað um
eitthvern niðja Matthíasar Á.
Mathiesen, en hann nýtur nú mik-
illa vinsælda í flokknum eftir að
hafa náð hvalnum frá þýskum. En
þessa samsærissögu kunnum við
ekki lengri. . .
N
■ ý kaffistofa verður opnuð í
miðbæ Reykjavíkur í júní. Það er
Gerður í Flónni sem ætlar að ráð-
stafa hluta af húseigninni Þing-
holtsstræti 2 undir kaffistofurekst-
ur og eru þegar hafnar framkvæmd-
ir við breytingar á húsnæðinu. Það
eru hjónin Guðrún Óskarsdóttir
og Gunnar Gunnarsson sem
munu reka kaffistofuna en þau hafa
um nokkurra mánaða skeið rekið
Bíslagið gegnt Óperunni. Kaffi-
húsagestum mun þó ekki auðnast
að horfa yfir borgina því útsýni er
aðeins beint upp í himininn og hafa
eigendur stofunnar pantað til lands-
ins sérhannað glerþak. Þá er bara
að vona að ekki rigni í allt sumar...
i|
■ ú hefur Fjárfestingarfé-
lag íslands tilkynnt, að það ætli að
bjarga Húsnæðismálastofnun og
leysa þann hnút sem nýja húsnæðis-
lánakerfið er komið í. Þeir hafa boð-
ið þeim sem hafa fengið lánsloforð
frá stofnuninni að kaupa það af
þeim. Fyrir ómakið reiknar Fjárfest-
ingarfélagið sér um 16% ársvexti,
umfram verðbólgu. Þetta hefur ekki
mælst vel fyrir meðal keppinauta
Fjárfestingarfélagsins. Ekki fyrir
það að þeir sjái eftir hagnaðinum,
heldur þykir það ansi svart, jafnvel
á gráa markaðinum, að tæla launa-
fólk út í það glapræði að ætla sér að
standa undir 16% vöxtum. Sigurð-
ur Guðmundsson hjá húsnæðis-
stofnun hefur lýst því yfir að hann
skilji ekki hvað Fjárfestingarfélagið
er að fara með þessu. Eins og menn
muna hótaði hann á sínum tíma að
setja þá í straff sem seldu lánsloforð
sín. Nú bíða menn eftir því hvort
það taki Sigurð jafnlangan tíma að
skilja Fjárfestingarfélagið og stofn-
unina hans að afgreiða lánslof-
orðin...
LAUSN Á
SKAKÞRAUT
53 Forsberg
Lausnin er glettnisleg:
1 Kg6 glD+ 2 Bg5 mát
1 - glR 2 Bf4 mát
1 - Kgl 2 Be3 mát
54 Barda
1 Hb4 glD 2 Hb7+ Kg8 3 Hc8 mát
Þessi þraut var óvenjulega auð-
veld. Eini vandinn er að gæta þess
að Hc6 verði ekki leppur þegar
svartur hefur vakið upp drottn-
ingu.
10 HELGARPÓSTURINN