Helgarpósturinn - 28.05.1987, Blaðsíða 11
engið hefur verið frá við-
bót við hlutafé Steinullarverk-
smiðjunnar á Sauðárkróki.
Hlutaféð var aukið um 72 milljónir
króna og féllust allir hluthafar á þá
afgreiðslu. Ríkissjóður þarf að
greiða 29 milljónir króna til verk-
smiðjunnar til viðbótar þeim 28
milljónum er hann lagði fram sem
stofnfé að fyrirtækinu. Sauðár-
króksbær þarf að leggja fram 13
milljónir króna á þessu ári til viðbót-
ar stofnframlagi sínu. Aðrir hluthaf-
ar eru SÍS, Kaupfélag Skagfirð-
inga og Oy Partek, finnskt stein-
ullarfyrirtæki, og greiða þessir aðil-
ar einnig til verksmiðjunnar í sam-
ræmi við stofnframlag sitt. Eftir
hlutafjáraukninguna fékk verk-
smiðjan 18,5 milljón króna lán frá
Iðnþróunarsjóði og sömu upphæð
að láni frá Iðnlánasjóði. Sjóðirnir
höfðu krafist aukins eigin fjár sem
skilyrði fyrir lánveitingunum. Meira
þurfti þó að koma til því allar eignir
Steinullarverksmiðjunnar eru veð-
settar upp í topp og því þurfti að
færa veð til og frá svo sjóðirnir
fengju tryggingu fyrir lánum sínum.
Með tímanum kemur í ljós hvort
hlutafjáraukningin og auknar lán-
veitingar halda verksmiðjunni á
floti, en hún er skuldum vafin. Verk-
smiðjan skuldar um 450 milljónir
króna og árlega þarf hún að standa
undir um 45 milljónum króna í af-
borganir og vexti af þessum lánum.
Við þetta bætist gengistap, sem
verksmiðjan hefur þurft að þola að
undanförnu, en gengistap síðasta
árs nam 110 milljónum króna...
E
linn stærsti lánardrottinn
Steinullarverksmiðjunnar á
Sauðárkróki er Norræni fjárfest-
ingabankinn en án aðstoðar hans
hefði verksmiðjan sjálfsagt aldrei
risið né getað starfað. Samstarfið
varð reyndar það náið að fyrrver-
andi framkvæmdastjóri verksmiðj-
unnar, Þorsteinn Þorsteinsson,
gerðist svæðisstjóri bankans, þegar
hann vék fyrir núverandi fram-
kvæmdastjóra, Þórði Hilmars-
syni. Þorsteinn hefur meðal annars
umsjón með lánveitingum til Islands
fyrir Fjárfestingabankann. . .
...aela hœglega endaö
meö hrœöilegri martröó!
VAKNADU MAÐUR!
Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku-
manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin,
verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar
skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá
slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend-
um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niðurstaða úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umferðarslysa).
5AMVINNU
TRYGGINGAR
-gegngáleysi
MALL
Síðustu sætin 13. júní - 110 daga eða 3 vikur.
Brottfarardagar:
Júní 1., 13., 22.
Júlí 4., 13., 25.
Ágúst 3., 15., 24.
Sept. 5., 14., 26.
Okt. 5.
Fjölskylduafsláttur
Einn borgar fullt
aðrir í fjölskyldunni minna
í 10 daga ferð kr. 17.400.-
í 3 vikur kr. 27.300.-
Verð á mann miðað
við hjón og 2 börn
yngri en 16 ára
Umboö á islandi tyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
OfifXVfHC
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarsfigl. Símar 28388 og 28580
HELGARPÓSTURINN 11