Helgarpósturinn - 28.05.1987, Page 15
Ríkir ágreiningur milli göngugarpa og hlaupagikkja?
heldur sig ákveðin Scháfer-klíka svo
dæmi sé nefnt," sagði Marínó. Og
krakkarnir spurðu hvenær mynd af
þeim birtist í blaðinu.
Skokkarar hlaupa framhjá með
reglulegu millibili og innan um eru
hjólreiðatrimmarar og göngugarp-
ar. Hressilegur göngugarpur var
tekinn tali og spurður að því hvers
vegna í ósköpunum hann hlypi ekki
eins og aðrir sómakærir trimmarar.
„Það er beinlínis hættulegt ef mað-
ur er ekki í góðu formi! Og það jafn-
vel þó formið sé í lagi, sjáðu t.d. for-
Sigurður Andri og Titó á klósettinu. Þaö
skal tekiö sérstaklega fram að Siguröur
auösýndi lofsverða snyrtimennsku, hann
heldur þarna á plastpoka, hirti í hann
stykki Títós og kom fyrir á sómasamleg-
an hátt. Hundaeigendur taki Sigurð og
Tító til fyrirmyndar, takk.
mann bandaríska skokksambands-
ins, sem nýlega fékk hjartaslag í
miðju skokki og hné niður örendur.
Það er ekkert á við röskan göngutúr
og sund.“ Aðvífandi hlaupagikkur
var spurður hvort hann væri að
hætta lífi sínu og ekki hélt hann það
nú. Haukur Jacobsen nemi var að
hlaupa með sunddótið í poka á bak-
inu og sagðist hafa skemmt sér ær-
lega við skokk á hverjum degi síð-
astliðinn hálfan annan mánuð og
væri búinn að létta sig um 10 kíló á
þeim tíma. „Breytingin er gífurleg,
maður er allur miklu léttari og
hressari. Við stundum fótbolta
nokkrir félagarnir og ég finn mjög
hversu léttari ég er og sneggri og
betri," sagði hann.
Og í góða veðrinu var umhverf-
ið við Ægisíðuna ægifagurt
ásýndar, Skerjafjörðurinn
lygn. Fjaran falleg, grásleppuskúr-
arnir rómantískir í einmanalegri
hrörnun sinni. Götur og stéttir
hreinar og Ægisíðuhúsin eru tign-
arleg og tilheyra greinilega þeim
húsum sem teljast hafa sál. Við ann-
an endann standa hús, sem eru eldri
en svo að þau tilheyri almennilega
gildandi götuheitakerfi, teljast til
Starhagans en heita Adalból, Brúar-
endi, Lambhóll, Sudurhlíd og Túns-
berg. Síðan eru það gráslepputrill-
urnar og skúrarnir, karlarnir að
koma í land með sorglega lítinn afla
og vonsviknir rauðmagaunnendur
snúa frá og verða að bíða betri dags.
Ægisíðuhúsin vísa okkur síðan
hálfa leið inn í nútímann, sem segja
má að birtist síðan við Hofsvalla-
gatnamótin, þar sem orkuþyrstir
bílar geta fengið þjónustu á nýrri
bensínstöð Esso.
Trimmið við Ægisíðuna hefur
þennan kost umfram marga aðra
staði; augun fá virkilega mikið að
gera meðan líkaminn streðar. Og
það er ekki bara fólk úr götunum í
kring sem hoppar þarna og skoppar.
Tilvalið er fyrir fólk úr öðrum hverf-
um að skreppa á Ægisíðu og skoða
fallega garða og hús „betri borgar-
anna“. Við Ægisíðu býr nefnilega
urmull af frægu og ríku fólki.
Heilsubótarfólkið þaut framhjá,
skokkandi, röltandi, hjólandi og al-
mennt geislandi af lífskrafti (eða
löngun til að öðlast hann). En
skyndilega beinast augu blaða-
manns að letilegum ungum náunga
sem situr makindalega á steini við
fjöruna. Með skjalabunka á lærum
sér, niðursokkinn í skýrslur — talna-
flóð í fjörunni! Þegar saumað var að
honum kom enda í ljós að um Breta
var að ræða, lan Pike kvaðst vera að
leggja síðustu hönd á skýrslu sína
um framtíðarhorfur á markaðssetn-
ingu lýsis og fiskimjöls! Ian er nær-
ingarfræðingur að mennt, en hér
var hann staddur á vegum Síldar-
verksmiðja ríkisins og Alþjóðasam-
taka fiskimjölsframleiðenda, hvorki
meira né minna. Og að hvaða niður-
stöðu hafði hann komist í blíðviðr-
inu í Ægisíðufjörunni? „Markaður-
inn verður erfiður næsta ár, en til
lengri tíma eru horfurnar mjög góð-
ar,“ sagði Pike.
Ekki svo slæmar horfur. Og blíð-
viðrið eykur á alla bjartsýni
og ekki verra að hafa þokuna
sem ríkt hefur að undanförnu. Því
trimmararnir geta treyst hinni
gömlu trú landans, að mikil þoka í
maí, sérstaklega yfir sjó, viti á gott
og sólríkt sumar. . .
Fjölskyldustemmning við Ægislðuna. Marinó Þorsteins, dóttirin
María Hrund, heimilisvinurinn Alfreö Gíslason og grasvöndullinn
Píla. „Þetta er dásamlegt svæði og hér getur Píla hlaupið um óhindr-
að. Á veturna er líka ágæt lýsing frá götuljósunum."
Ægisíðuskokkararnir voru á öll-
um aldri. Hér er einn sem kom-
inn er af léttasta skeiði, en er
greinilega ungur (anda og held-
ur sér 1 virðingarverðu formi.
eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart
HELGARPÓSTURINN 15