Helgarpósturinn - 28.05.1987, Qupperneq 18
eftir Kristján Kristjánsson myndir Jim Smart
Ágúst
Silja
Einhvern tíma veröur allt fyrst og
þaö fyrsta er gjarnan þaö erfiöasta.
Þetta er nokkuö sem margir hafa
reynt og geta veriö sammála um.
Gildir þá einu hvort menn eru ad
koma fram í fyrsta sinn eöa gera eitt-
hvaö fyrsta sinni, syngja lag á
skemmtun, syngja inn á hljómplötu,
halda rœöu, leika á sviöi eða tala á
fundi. Allt veitist þetta flestu fólki
erfitt aö gera í fyrsta sinn en veröur
síöan viöráöanlegra þegar meiri
reynsla er fengin. Meö ámóta hug-
leiöingar aö bakgrunni haföi HP
samband við fjórar manneskjur og
baö þœr aö greina frá reynslu sinni
af því aö koma í fyrsta sinn fyrir al-
menningssjónir, hvort sem þaö var
á skemmtun eöa í rituöu máli eöa
hvaö annaö sem flokkast gœti undir
aö draga athygli aö sér, vera í sviös-
Ijósinu.
ÁGÚST ATLASON VAR FENGINN
TIL AÐ SYNGJA Á BARNAPLÖTU
10 ÁRA GAMALL:
HÉLT ALLAVEGA LAGI
Ágúst Atlason, sem í seinni tíma
hefur sungið með hinu þjóðþekkta
Ríó-tríói, hóf sinn feril með því að
syngja inn á barnaplötu sem Jan
Morávek hafði umsjón með og hét
14 barnalög. Ágúst söng þar lagið
Siggi var úti og hann rifjaði þetta
upp í stuttu samtali við HP.
„Strákarnir í næsta húsi voru eitt-
hvað tengdir Jan Morávek og þeir
komu mér á framfæri, þeir vissu að
ég var eithvað að syngja. Ætli ég
hafi ekki verið 9 eða 10 ára, ég man
það ekki. Morávek sat bara með gít-
ar inni í herbergi hjá sér og spilaði
undir meðan ég söng lagið inn á
gamalt segulband sem hann var
með. Ég söng þetta bara einu sinni,
renndi mér í gegnum lagið og þar
með var þetta búið. Þetta var svona
frekar stutt stúdíóvinna, afar fljót-
gert. Undirspilið var svo sett á síðar
og það var óneitanlega dálítið gam-
an að heyra lagið þegar það var
komið. Annars á ég plötuna og hef
stundum spilað hana. Það er bara
gaman að heyra þessa barnsrödd,
ég hélt allavega lagi.“
SILJA AÐALSTEIN SDÓTTIR SÖNG
Á ARNARHÓLI 17DAJÚNÍSEM
UNGLINGUR:
KLAPP OG VIÐHLÁTUR
Silja Aöalsteinsdóttir, bókmennta-
frœöingur og ritstjóri Tímarits Máts
og menningar, kom fram á Arnar-
hóli 17da júní 1957 eöa 8, hún
mundi ekki alveg hvort var, hún var
þá 13 eöa 14 ára og söng gamanvís-
ur. Jafnframt henni kom fram söng-
kona sem seinna átti eftir aö hasla
sér völl á þessu sviöi, Sigríöur Ella
Magnúsdóttir. Silju segist svo frá:
„Eg var í Laugarnesskólanum á
þessum árum, sem var alveg æðis-
legur skóli, mjög barnmargur og
ótrúlega lifandi. Þar var mikið gert
fyrir krakkana og þeir gerðu líka
mikið sjálfir. Á hverju vori var hald-
in páskaskemmtun, þar sem leikin
voru alvöru leikrit og margir fleiri
komu fram, spiluðu, sungu, lásu upp
o.s.frv. Ég tók þátt í þessum skemmt-
unum alveg frá því ég flutti til
Reykjavíkur 10 ára gömul og þegar
ég var í fyrsta bekk í gaggó. Það
gæti að vísu hafa verið annar bekk-
ur fíka, þá söng ég á þessari
skemmtun gamanvísur eftir einn
kennarann, það voru eiginlega níð-
vísur um kennara. Þær voru lagðar
í munn gífurlega mikilli skvísu sem
var með tyggjó og gerði allar
hundakúnstir í skólanum. Nú, þegar
skólanum lauk um vorið lagðist ég i
pest, eins og maður gerði gjarna við
þau tímamót. Og þegar ég lá í henni
kom Gestur Þorgrímsson, sem var
skemmtanastjóri í bænum á 17da
júní, ég man það eins og það hefði
gerst í gær að hann kom bara beint
inn til mín, í pestarbælið, og bað
mig að koma fram á 17da júní. Ég
sagði bara já strax, enda alltaf verið
frökk og ekki látið ganga á eftir mér.
Þetta gekk alveg prýðilega, ég man
ekki annað, engir erfiðleikar eða
taugaóstyrkur. Mig rekur líka minni
til þess að það hafi eitthvað verið skrif-
að um hátíðarhöldin í Morgunblaðið
og sá sem það gerði hafi átt falleg
orð um þessar tvær ungu drósir sem
þarna sungu. Sigríður fékk alvar-
legri umfjöllun, man ég, enda söng
hún þjóðlög og fleira í þeim dúr, ég
fékk svona meira viðhlátur og klapp
á bakið. Annars vorum við látnar al-
veg í friði, fjölmiðlarnir ginu ekki yf-
ir okkur á sama hátt og þeir myndu
sennilegast gera núna.“
ÓLAFUR HAUKUR KOM FYRST
FRAM MEÐ KVÆÐI OG SÖGUR í
GAGGÓ VEST:
ÖSKAPLEGA VOND KVÆÐI
Ólafur Haukur Símonarson, rit-
höfundur með meiru, birti fyrst eftir
sig sögur og kvæði í 13 ára bekk
unglingaskóla, þeim fræga Gaggó
Vest, sem hann seinna gerði skil í
texta við alkunnt dægurlag:
„Ég birti nokkrar sögur og kvæði
í skólablaði sem mig minnir að hafi
heitið Fjaðralausi háðfuglinn. Við
gáfum þetta út við Steindór Guð-
mundsson verkfræðingur sem hafði
mikinn áhuga á fögrum listum í þá
daga og hann skrifaði í blaðið líka.
Þetta voru óskaplega vond kvæði
og ég man að blaðið þótti svo slæmt
að það var gert upptækt og kallað á
sal þar sem skólastjórinn benti nem-
endum á að þetta væri vont blað og
hættulegt. Skólastjórinn hét Óskar
Magnússon og var kenndur við
Tungunes, hann var mikill strang-
leikans maður og þar að auki ljóð-
skáld sjálfur og það hefur sennileg-
ast ekki hjálpað upp á sakirnar að
honum þótti kveðskapurinn ekki
dýr. Annars var í þessu eitthvert flím
INNRÖMMUN
ALHLIÐA INNRÖMMUN, SMELLURAMMAR,
TILB. ÁLRAMMAR
LAUGARDAGA TIL KL. 16.00
NÆG
BÍLASTÆÐI
18 HELGARPÓSTURINN