Helgarpósturinn - 28.05.1987, Side 31
Dagbókin hennar Dúllu
Kæra dagbók.
Það er allt brjálað í skólanum út af
þessu samræmda prófi í íslensku.
Þar kom að því að fólk fattaði hvað
við krakkarnir þurfum að ganga í
gegnum í lifinu! Þetta er sko ekkert
grín. (Eg meina að vera í skóla og
svoleiðis... að maður tali nú ekki um
að burðast með skilningslausa for-
eldra og geta átt von á stærðar graft-
arbólum í andlitið rétt fyrir árshátíð-
ir, skíðaferðir og aðra mikilvæga
daga.) Þess vegna er það vægast
sagt fyndið að sjá allt í einu kennar-
ana fara á fundi dag eftir dag til þess
að tala um OF ÞUNGT próf. Ég hélt
nú að það hugtak væri ekki til í
þeirra orðaforða, en þeir eru rosa
æstir og reiðir út í þetta lið sem
samdi prófið. Einn kennari var
meira að segja fenginn í útvarpið og
hún sagði, að fólk sem byggi til
svona hrylling fyrir lítil börn væri
bara ekki starfi sínu vaxið! Váá,
maður. Ég vildi næstum búa uppi í
Mosfellssveit (hún kennir víst þar) til
þess að geta verið hjá þessum æðis-
lega kennara.
Það er kominn ,,dóni“ í Breiðholt-
ið líka, eins og í Hvassaleitinu. Bella
vinkona lenti meira að segja í hon-
um! Hún hélt hún myndi deyja á
staðnum og varð alveg lömuð í fót-
unum. Svona líkt og í martröð, þeg-
ar maður þarf að hlaupa en getur
hvorki hreyft legg né lið. Grey stelp-
an sat á gangstéttinni fyrir utan
sjoppuna og var að borða frostpinna
og bíða eftir mér, þegar kall um þrí-
tugt kom gangandi framhjá með
hund í bandi. Ekkert merkilegt við
það. En...
Allt í einu fer jörðin bara að hrist-
ast til og frá undir Bellu, hún verður
alveg stjörf af hræðslu og hvað held-
urðu að maðurinn geri, sem er beint
fyrir framan hana á gangstéttinni?
Sko, buxurnar duttu niður um hann!
Og hann var ekki í neinum nærbux-
um. Ég meina það, maður! Bella
fékk meiriháttar sjokk og gat ekkert
gert nema öskrað. Hún hefði ekki
getað hlaupið burt frekar en að fá 10
á íslenskuprófinu!
Kellingin í sjoppunni kom sem
betur fer hlaupandi út til hennar og
sá ógeðið hlaupa burt, en hristing-
urinn á jörðinni hafði reyndar ekk-
ert með þetta að gera. (Það var bara
venjulegur jarðskjálfti.) Sjoppukon-
an hringdi á lögguna og þeir fundu
dónann strax. Hann gaf nú þá brjál-
uðustu skýringu, sem ég hef heyrt.
Sagðist hafa verið í megrun og bux-
urnar þess vegna orðnar of stórar á
hann. Þær hefðu svo bara dottið
niðrum hann við jarðskjálftann.
Glætan... Ég er viss um að þetta hef-
ur verið einn af þeim sem semja
samræmdu prófin, hann er svo vit-
laus. (Hann sagðist líka ekki hafa átt
neinar hreinar nærbuxur. Ég bara
meina það!)
Mamma sagði að þetta með dón-
ann væri allt fjölmiðlunum að
kenna. Þegar farið væri að skrifa
um svona tippakalla fengju allir hin-
ir fiðring og hermdu eftir. Þannið
upphófst enn eitt rifrildið á heimil-
inu, því pabbi var nærstaddur, og ég
flúði heim til Bellu. Hún þarf líka á
mér að halda núna á meðan hún er
að jafna sig.
Bæ, Dúlla.
D R O iii 1
10. J Ú N í
Upplag miða 100.000
Opnun sérstaldega fyrir
leikhúsgesti kl. 18.00.
Boröpantanir 1 síma 11340.
LOFTNETA- OG MYNDLYKLAÞJÓNUSTA
SJÓNVARPSKERFI - TILBOÐ SAMDÆGURS
ARSABYRGÐ A ALLRI VINNU OG EFNI
Traust, örugg
og góð
þjónusta
OQCCiNn
i\m cii iu
Ármúla 23, Sími 687870
HELGARPÓSTURINN 31