Helgarpósturinn - 28.05.1987, Page 36
l nterpol-fanginn í Þingholtun-
um, Jean-Pierre Fattman, sem
Helgarpósturinn sagði frá í desem-
ber síðastliðnum, hefur nú verið
ráðinn sem markaðsstjóri hjá
Nesco. Eins og greint var frá í Helg-
arpóstinum á sínum tíma var Fatt-
man leystur úr haldi í Lúxemborg
gegn tryggingu og fluttist til íslands,
reyndar eftir nokkrum krókaleið-
um. Gjaldþrotamál Fattmans og fyr-
irtækja hans er eitt það stærsta á
undanförnum áratugum í Lúxem-
borg. Eftir að Fattman hafði verið
framseldur frá íslandi sat hann inni
í níu mánuði meðan mál hans var
rannsakað. Málið er þó enn til með-
ferðar hjá dómstólum ytra. Þar kalla
menn það „gullas" og segja að í því
sé miklu meira af ótrúlegum svikum
og prettum en í Dalias. . .
Jð^^^ungo Jerry heitir
skemmtikraftur sem kemur hingað
á vegum Broadway og mun hann
skemmta Islendingum á tveimur
stöðum á landinu, fyrst á Akureyri,
dagana 12. 13. og 14. júní og svo í
Hollywood í Reykjavík næstu
fimm daga þar á eftir. Ólafur Lauf-
dal, eigandi staðanna, hefur áður
reynt að flytja skemmtikrafta af
þessari stærðargráðu norður í land
en eitthvað hefur aðsókn þar verið
dræmari en vonir stóðu til. Nú er því
bara að vita hvernig Akureyringar
og nærsveitamenn taka Mungo
Jerry. . .
A
föstudaginn verður úthlut-
að úr tónlistarverðlaunasjóði Ar-
manns Reynissonar og hefur HP
hlerað að Elín Óskarsdóttir sópr-
ansöngkona hafi hlotið vinninginn
að þessu sinni. í fyrra vann Mist
Þorkelsdóttir þessi verðlaun, og
sat hún í úthlutunarnefndinni ásamt
Ármanni, Þuríði Pálsdóttur,
Halldóri Hansen og Önnu
Snorradóttur. Mist Þorkelsdóttir
notaði verðlaunaféð í fyrra til að
semja barnaóperu, sem flutt verður
í haust. ..
BEiins og komið hefur fram í
Helgarpóstinum hefur Framsókn-
arflokkurinn fundið Ingvari
Gíslasyni stað í kerfinu til frambúð-
ar. Ætlunin er sú að gera hann að rit-
stjóra Lagasafnsins. Ingvar er nú
einn af ritstjórum Tímans, en þar
var hann til bráðabirgða. Annar rit-
stjóri Tímans, Níels Arni Lund, er
einnig á förum frá blaðinu. Flokkur-
inn hyggst gera Níels, eða Ninna,
eins og Steingrímur kallar hann,
að framkvæmdastjóra þingflokks-
ins. Þriðji ritstjórinn, Indriði G.
Þorsteinsson, réð sig aðeins til ára-
móta á blaðið. Framsóknarflokkur-
inn má því fara að líta í kringum sig
að nýjum ritstjóra, ef hann ætlar að
halda áfram að gefa út málgagn-
ið. ..
Flug, bíll, sumarhús!
<
s
ó
E
§
<
VUtu njóta Iífsins
við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í
stórborgarmenninguna?
Ertu kannski einn þeirra fjallhressu sem alltaf þurfa
að glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna
eitthvað nýtt / gamalt?
Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á seglbretta-
námskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar heim
kemur eða liggja á vel völdum vatnsbakka, grilla þig í
sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur"?
Ertu sælkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það
besta í mat og drykk?
Þá eru Biersdorf í Þýskalandi, Walchsee
eða Zell am See í Austurríki staðir fyrir þig
Þú getur haft bílaleigubíl til umráða og ekið hvert sem þú
vilt eða tekið þátt í skipulögðum skoðunar-
ferðum með okkar traustu og reyndu fararstjórum.
FLUGLEIDIR
fyrir þfg
Viltu fara þínar eigin leiðir?
Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta
ekki hugsað sér að ferðast eftir fyrirfram gefinni áætlun er
það að sjálfsögðu engin spurning hvað þú gerir. Þú hlýtur
að velja flug og bíl. Spurningin er bara: Hvar viltu byrja?
í Lux, Frankfurt, París eða Salzburg? Það er auðvitað þitt
mál en staðreyndin er sú að bílaleigubílarnir í Lux eru þeir
ódýrustu í Mið-Evrópu.
Leiðsögumappan og Mið-Evrópu
bæklingurinn Flug, bíll og sumarhús
eru komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða
ferðaskrifstofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um
sumardvalarstaðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram
gamla landakortið, ræddu málin við fjölskylduna í ró og
næði og hringdu svo í okkur.
LUXEMBORG:
Flug+bfll í 2 vikur frá kr. 11.903 á mann. SUPER-APEX verð.
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja—11 ára, og bíl í B-flokki.
WALCHSEE:
Flug+íbúð á Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 18.260* á mann.
Flogið til Salzburg.
ZELL AM SEE:
Flug+íbúð í Hagleitner í 2 vikur frá kr. 18.395* Flogið til Salzburg.
BIERSDORF:
Flug+íbúð í 2 vikur frá kr. 13.321* á mann. Flogið til Luxemborgar.
’Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja—11 ára.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Fiuglefða, umboðsmenn
um allt land og ferðaskrifstofumar.
FLUGLEIDIR ^
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasíroi 25 100
36 HELGARPÓSTURINN
I