Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 32
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYNDIR JIM SMART
FIMMTUGUR KARL
MEÐ HÁSKÓLAPRÓF
Alþingi íslendinga verdur sett laugardaginn 10. októ-
ber. Hinir 63 alþingismenn byrja að venju á því að sitja
guðsþjónustu í Dómkirkjunni, sér til blessunar. Við þetta
tækifæri munu allir þingmennirnir eiga það sameigin-
legt að skarta sínu fegursta og kannski steyptir að því er
virðist í sama mót. Hinn dæmigerði þingmaður um þess-
ar mundir er fimmtugur karlmaður með háskólapróf,
sem fyrir þingmennsku var í röðum æðstu yfirmanna,
sérfræðinga og stjórnenda. Slíka einstaklinga er að finna
í öllum flokkum, nema hvað karlmennskan er útlæg hjá
Kvennalistanum. En í raun hefur samt lítið breyst hvað
þetta varðar í gegnum árin.
Af hinum 63 þingmönnum hafa
33 eða 52% lokið 14 ára eða lengri
skólagöngu, háskólaprófi eða öðru
námi á háskólastigi. Hlutfallið er
hæst hjá Sjálfstæðisflokknum eða
67% og munar þar mest um lög-
fræðingana 9, en hinir eru 3 hag-
fræðingar, 3 búfræðingur, einn er
með verslunarskólapróf (Matthías
Bjarnason), einn er stúdent er hóf
háskólanám en hætti (Halldór
Blöndal) og einn hefur kvenna-
skólapróf (Salóme Þorkelsdóttir).
Hlutfall þingmanna með 11—13 ára
bók- eða verknám aö baki samsvar-
ar nokkurn veginn því hlutfalli sem
kom fram meðal Reykvíkinga á
kosningaaldri í jafnréttiskönnun
fyrir nokkrum árum, en óljóst er
hvernig skiptingin er á öllu landinu
um þessar mundir. Hlutfall þing-
manna með 10 ára eða styttri skóla-
göngu er síðan í engu samræmi við
hinn mikla fjölda sem enn fyllir
þennan flokk í landinu.
4 af 6 þingkonum Kvennalistans
hafa háskólapróf, þær Guðrún
Agnarsdóttir, Kristin Einarsdóttir,
Þórhildur Þorleifsdóttir og Danfríð-
ur Skarphéðinsdóttir, en Kristín
Halldórsdóttir er með kennarapróf
og Málmfríður Sigurðardóttir er
með kvennaskólapróf.
6 af 10 þingmönnum Alþýðu-
flokksins hafa háskólapróf. Jóhanna
Sigurðardóttir hefur verslunarskóla-
próf, Karl Steinar Guðnason kenn-
arapróf, Karvel Pálmason er gagn-
Kyn þingmanna
Listi (fj.) karlar (%) konur (%)
V( 6) 0% 100%
G( 8) 75% 25%
S( 7) 86% 14%
D (18) 89% 11%
A (10) 90% 10%
B (14) 93% 7%
Alls (63) 79% 21%
Landið 50% 50%
fræðingur og Árni Gunnarsson hef-
ur miðskólapróf ásamt flugnámi.
ÞINGMENN
FRAMSÓKNAR SKERA
SIG ÚR
Allir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins hafa 11 ára eða lengri skóla-
göngu, en hafa að öðru leyti stund-
að ólíkar fræðigreinar. Ragnar Arn-
alds er lögfræðingur, en Svavar
Gestsson hætti laganámi í miðjum
klíöum og hélt til Berlínar. Getur
enginn þingmaður flokksins í raun
talist beinn fulltrúi hins ómenntaða
almúga eftir að Guðmundur J. Guð-
mundsson hvarf af þingi. Þó er
Margrét Frímannsdóttir aðeins með
gagnfræðapróf, en hóf nám í öld-
ungadeild án þess þó að ljúka því.
Guðrún Helgadóttir er stúdent og
eins og allir vita er hinn samvinnu-
skólagengni Skúli Alexandersson
framkvæmdastjóri útgerðarfyrir-
tækis.
Þingmenn Borgaraflokksins hafa
einnig mismunandi skólagöngu að
baki. Leiðtoginn Albert Guðmunds-
son með samvinnuskólapróf, en
sonurinn Ingi Björn Albertsson með
verslunarskólapróf. Óli Þ. Guð-
bjartsson er með kennarapróf en
aðrir hafa háskólapróf utan hvað
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir hefur
aðeins lokið barnaskólaprófi. Telja
verður Aðalheiði hinn eina sanna
fulltrúa hins ómenntaða fjölda, auk
þess sem hún hefur um árabil verið
virkur verkalýðsforingi í Sókn.
Það eru þingmenn Framsóknar-
Menntun þingmanna
Listar 10 ára eöa 11—13 ára 14 ára og lengra
styttra nám bók- og verk- nám á há-
nám skólastigi
D 1 ( 5%) 5 (28%) 12 (67%)
V 1 (17%) 1 (17%) 4 (66%)
A 2 (20%) 2 (20%) 6 (60%)
S 1 (14%) 2 (29%) 4 (57%)
G 1 (12%) 3 (38%) 4 (50%)
B 1 ( 7%) 10 (72%) 3 (21%)
Alls 7 (11%) 23 (36,5%) 33 (52,5%)
Reykjavík '81 46% 37% 17%
Skýringar: 10 ára eða styttra nám er barna-, unglinga- og miðskólapróf og stysta nám framyfir skyldu, svo
sem gagnfræðapróf, húsmæðrapróf, sjúkraliða- og þroskaþjálfapróf. 11—13 ára bók- eða verknám er t.d.
iðnnám, búfræðinám, hjúkrunarnám, fóstrunám, verslunar- eða samvinnuskólapróf, kennaraskólapróf,
stúdentspróf og listnám. 14 ára nám eða lengra er háskólapróf almennt en einnig nám á „háskólastigi",
svo sem kerfisfræðipróf, kennara/kennaraháskólapróf og fleira.
Hinn dœmigeröi þingmaður þjóðarinnar hefur
lítið breyst, hann er miðaldra, háskóla-
menntaður karlmaður, sem fyrir þingsetu var í
hárri stjórnunarstöðu. Lítil breyting virðist
œtla að verða í þessum efnum, þótt 21 nýr
þingmaður komi nú til skjalanna og þó
konum hafi fjölgað talsvert. Beinir fulltrúar
hinna lítt menntuðu og ófaglœrðu eru fáir á
þingi — sem fyrr.
flokksins sem skera sig úr á áber-
andi hátt hvað menntunina varðar.
Aðeins 3 af 14 þingmönnum flokks-
ins (Stefán Valgeirsson er hér með
færður til föðurhúsanna) hafa há-
skólapróf, verkfræðingarnir Stein-
grímur Hermannsson og Guðmund-
ur G. Þórarinsson og löggilti endur-
skoðandinn Halldór Ásgrímsson.
Nýi þingmaðurinn Guðni Ágústson
hefur gagnfræðapróf, en aðrir þing-
menn flokksins fylla miðflokk
menntamanna, gjarnan búfræðing-
ar eða samvinnuskólagengnir, en
Stefán Guðmundsson er trésmíða-
meistari.
FJÖLMIÐLAMENN
FJÖLMENNA Á ÞING
í samræmi við hátt menntunarstig
koma þingmenn gjarnan úr röðum
æðstu yfirmanna, sérfræðinga og
stjórnenda áður en þeir eru kjörnir
á þing. Þetta er sérstaklega ein-
kennandi fyrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins og Borgaraflokks-
ins. Helstu undantekningarnar eru
bændurnir á þingi, 3 sjálfstæðis-
menn og 3 framsóknarmenn. Þá
skera sig úr Salóme Þorkelsdóttir,
sem var húsmóðir, Karvel Pálma-
son, sem var íþróttakennari og lög-
regluþjónn, og Málmfríður Sigurð-
ardóttir, sem var matráðskona. Að
öðru leyti eru það fjölmiðlamenn-
irnir sem setja svip sinn á þingið, því
úr fréttamennskunni á þing hafa
komið á einn eða annan hátt þau
Jón Baldvin Hannibalsson, Eiður
Guðnason, Árni Gunnarsson, Hall-
dór Blöndal, Þorsteinn Pálsson,
Svavar Gestsson, Steingrímur Sig-
fússon og Kristín Halldórsdóttir,
sem þó telst hafa verið húsmóðir
fyrir þingsetu. Nokkrir þingmenn
voru háttsettir sveitarstjórnarmenn
fyrir þingsetu. Birgir Isleifur Gunn-
arsson var borgarstjóri, Jóhann Ein-
varðsson var bæjarstjóri (og aðstoð-
í farvegi
hinna eldri
Þad er fulldjúpt í árinni tekiö ad
segja kynslódaskipti eiga sér stad ú
Alþingi. Samt er 21 þingmadur nýr
á þessu 110. löggjafarþingi Islend-
inga, þótt sumir þeirra hafi reyndar
sést á þingi fyrr, hafi kannski fallid
í millitídinni eda setid sem vara-
menn. Við völdum einn þingmann
úr hverjum þingflokki til að vera
fulltrúi fyrir nýja tíma á Alþingi.
Þetta eru Jón Sœmundur Sigurjóns-
son, Alþýðuflokki, Valgerður Sverr-
isdóttir, Framsóknarflokki, Geir
Haarde, Sjálfstæðisflokki, Stein-
grímur J. Sigfússon, Alþýðubanda-
lagi, Óli Þ. Guðbjartsson, Borgara-
flokki, og Danfríður Skarphéðins-
dóttir, Kvennalista. Allt eru þetta ný-
liðar á þingi, nema hvað Steingrím-
ur sat síðasta kjörtímabil.
Tæknikrati úr
ráðuneyti
Nafn: Jón SæmundurSigurjóns-
son.
Aldur 45 ára.
Lögheimili Suðurgata 16, Siglu-
firði.
Dvalarstaður Miðvangur 127,
Hafnarfirði.
Heimilishagir Eiginkona Birgit
Henriksen háskólanemi, ein
dóttir.
Menntun Doktor í hagfræði,
sveinn í prentiðn.
Fyrri störf Aðstoðarkennari við
háskólann í Köln, aðstoðarmað-
ur í sendiráði íslands í Bonn og
frá 1977 hagfræðingur í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Pólitrsk þátttaka: Varaformaður
FUJ á Akureyri á menntaskólaár-
unum, í flokksstjórn Alþýðu-
flokksins frá I977, í framkvæmda-
stjórn flokksins frá 1984. Á lista
flokksins í Norðurlandskjördæmi
vestra frá 1979.
Konan frá SÍS
Nafn: Valgerður Sverrisdóttir.
Aldur: 37 ára.
Lögheimili: Lómatjörn, S-Þing-
eyjarsýslu.
Dvalarstaður: Vallarbraut 6, Sel-
tjarnarnesi.
Heimilishagir: Eiginmaður Arvid
Kro bóndi, 2 dætur.
Menntun: Kvennaskólapróf.
Fyrri störf: Bóndi, leiðbeinandi
við Grenivíkurskóla og ritari. Hef-
ur ekki síður verið virk í störfum
innan samvinnuhreyfingarinnar,
á sæti í stjórnum KEA og SÍS.
Pólitísk þátttaka: í framboði fyr-
ir Framsóknarflokkinn frá 1974,
varaþingmaður 1983.
Frá Seðlabanka og SUS
Nafn: Geir Hilmar Haarde.
Aldur: 36 ára.
Lögheimili: Hraunbær 78,
Reykjavík.
Dvalarstaður: Sami.
Heimilishagir: Eiginkona Inga
Jóna Þórðardóttir lögfræðingur,
4 börn.
Menntun: Hagfræðingur.
Fyrri störf: Hagfræðingur al-
þjóðadeildar Seðlabankans
1977-1983, aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra 1983-1987.
Pólitisk þátttaka: Formaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna 1981-1985, varaþingmað-
ur frá 1983.
Þjóðlegur herstöðva-
andstæðingur
Nafn: Steingrímur Jóhann Sig-
fússon.
Aldur: 32 ára.
Lögheimili: Gunnarsstaðir,
N-Þingeyjarsýslu.
Dvalarstaður: Brekkusel 19,
Reykjavik.
Heimilishagir: Eiginkona Bergný
Marvinsdóttir læknir, 1 sonur.
Menntun: Jarðfræðingur.
Fyrri störf: Almenn störf til sjáv-
ar og sveita, aðallega þó vörubíl-
stjóri á sumrin með jarðfræði-
störfum og íþróttafrétta-
mennska.
Pólitísk þátttaka: Virkur her-
stöðvaandstæðingur. í framboði
fyrir Alþýðubandalagið frá 1978,
þar af í fyrsta sæti í Norðurlands-
kjördæmi eystra frá 1983. í mið-
stjóm flokksins frá 1978, sem og
í framkvæmdastjórn hans.
32 HELGARPÓSTURINN