Helgarpósturinn - 08.10.1987, Síða 38
DAGSKRÁRMEÐMÆLI
Föstud. 9. okt. 1987.
Kl. 20:40 Yoko Ono Lennon — Þá og
nú.
í myndinni segir Yoko Ono frá upp-
vexti sínum og talar hispurslaust um
líf sitt meö John Lennon. Skyggnst
er í myndasafn þeirra hjóna og sýnd
upptaka þar sem John Lennon flytur
lag eftir konu sína. Þá er einnig rætt
viö fy rrum samstarfsmenn Lennons.
Kl. 22:40 Tópas.
Bandarísk spennumynd frá árinu
1969 sem leikstýrt eraf Alfred Hitch-
cock. Þar segir af frönskum njósnara
sem ráöinn er á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar til aö fá upplýs-
ingar um þátttöku Rússa í stjórnmál-
um á Kúbu.
Laugard. 10. okt. 1987.
Þaö sem mesta athygli vekur er
tveggja klukkustunda langur þáttur
þar sem besta tónlistarmyndbandið
áriö 1987 er valið. I þessum þætti
koma fram margar frægar popp-
stjörnur og hljómsveitir. Sem dæmi
má nefna: Bon Jovi, Cyndi Lauper,
Aerosmith, Bryan Adams, Crowded
House, Run-DMC, The Bangles,
Whitesnake og Whitney Houston.
Laugardagsbíómynd sjónvarpsins
er bandarisk og nefnist Þefararnir.
Sunnud. 11. okt.
15:05 Hið Ijúfa líf.
Sígild itölsk bíómynd frá árinu 1960.
Blaðamaður nokkur umgengst fólk
úr yfirstétt Rómaborgar og hefur
það mikil áhrif á hann. Hann er ýmist
heillaður af lifnaöarháttum þess eöa
hefur megnustu óbeit á þeim.
21:25 Eins og þeim einum er lagiö
(fyrri þáttur).
Viö kynnumst ungum söngvurum
sem eru langt komnir i námi, um þaö
bil aö Ijúka því og nýbúnir — heima
og erlendis. Viö hlustum á þá syngja
í sjónvarpssal og skreppum líka í
heimsókn til þeirra. Þessir söngvarar
eiga þaö sameiginlegt aö hafa sjald-
an eöa aldrei komiö fram i sjónvarpi.
Gestir í fyrri þættinum eru: Signý
Sæmundsdóttir, Guöjón Óskarsson,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Sverrir
Guöjónsson.
Cyndi Lauper á dagskrá sjónvarpsins laugardaginn 10.10 ásamt öðrum frægum poppstjornum
Föstud. 9. okt. 1987.
Kl. 16:35 Youngblood.
Bandarisk bíómynd meö Rob Lowe i
aðalhlutverki. Myndin greinirfrá bar-
áttu hans viö aö ná toppnum í einni
erfiðustu íþróttagrein sem til er, ís-
hokkí. Sú barátta reynir á vináttu-
böndin og umfram allt ástina.
Kl. 20:25 ANS-ANS.
Þátttakendur frá Helgarpóstinum,
útvarpinu og Dagblaöinu leiöa sam-
an hesta sína í æsispennandi spurn-
ingaþætti.
Kl. 21:20 Hvalakyn og hvalveiöar.
Ný íslensk heimildamynd meö
leiknu ívafi sem sýnir nytjar og veiöi
hvala allt frá landnámsöld.
Kl. 22:15 Víg í sjónmáli.
Siöasta James Bond-myndin sem
Roger Moore lék í. Mynd sem eng-
inn ætti aö láta fram hjá sér fara.
Kl. 00:25 39 þrep.
Spennumynd frá 1978 eftir meistara
Hitchcock.
Laugard. 10. okt. 1987.
Kl. 14:50 Hlébaröinn.
Sagan greinir frá öldnum prinsi sem
áttar sig á aö veldi aðalsins er á
hverfanda hveli og nýtt þjóðfélagsafl
aö taka viö.
Kl. 00:10 Lögregluþjónn númer 373.
Spennumynd í sérflokki.
Lögreglan í Beverly Hills.
Axel Foley (Eddie Murphy) er sér-
lega fær leynilögreglumaður frá
Detroit, sem fylgir slóö morðingja
vinar síns til Beverly Hills. En áöur en
hann nær til morðingjans kemst
Söngleikir i New
Næsta sunnudag hefst þátta-
röðin „Söngleikir í New York“ á
rás tvö í umsjón Árna Blandon.
Þættirnir eru níu talsins og verð-
ur þeim útvarpað milli klukkan
þrjú og fjögur annan hvern
sunnudag. Fyrsti þátturinn er
yfirlitsþáttur, þar sem rakin er
staða söngleikjanna í dag á
Broadway og Off-Broadway.
Leikin eru lagasýnishorn úr
söngleikjunum sem kynntir
verða í þáttaröðinni svo og
nokkrum söngleikjum sem þeg-
ar hafa verið kynntir í hljóðvarp-
York á rás 2
inu og ganga enn á Broadway.
M.a. eru leikin lög úr söngleikn-
um „Dreamgirls", sem var end-
ursýndur á Broadway í nokkrar
vikur sl. sumar. Það var Michael
Bennett, einn virtasti leikstjóri
og dansahönnuður á Broadway
á þesum áratug, sem færði þenn-
an söngleik á svið upphaflega
árið 1981. Michael Bennett varð
frægur fyrir sýningu sína á
„Chorus Line“, sem er sá söng-
eða dansleikur sem hefur geng-
ið lengst samfellt á Broadway og
er enn i fullu fjöri.
Árni Blandon sér um þáttinn
„Söngleikir í New York", sem er á
dagskrá rásar 2 annan hvern
sunnudag.
hann á spor alþjóölegs eiturlyfja-
hrings. Stórkostleg mynd þar sem
spenna og grín fara saman.
Sunnud. 11. okt. 1987.
Kl. 23:30 Herréttur.
Sannsöguleg mynd sem gerist á
árunum eftir fyrri heimsstyrjöldina.
©
Á rás 1 hefjast þrír nýir þættir. Sá
fyrsti er á dagskrá á laugardags-
morgnum og nefnist Vikulok. Um-
sjónarmaöur er Einar Kristjánsson.
Þátturinn er nokkurs konar dagskrár-
kynningarþátturþarsem helgardag-
skráin er kynnt en einnig eru tekin
viötöl viö fólk sem tengist atburðum
liðandi viku.
„Spáð'í mig" er annar nýr þáttur
sem hefur göngu sína á laugardag. í
þættinum veröur fjallaö um hinar
grátbroslegu hliöar skemmtanalífs-
ins og samdrátt kynjanna. Umsjón-
armenn þáttarins eru Sólveig Páls-
dóttir og Margrét Ákadóttir.
Sunnudaginn 11. október hefur
göngu sína þátturinn „Örkin". Þetta
er þáttur um erlendar bókmenntir í
umsjá Ástráös Eysteinssonar. Fluttir
veröa pistlar um merk bókmennta-
verk sem út hafa komið erlendis á
síöustu árum, einstaka höfunda eöa
sérstaka bókmenntastrauma, ásamt
mörgu fleiru.
Um helgina.
Létt tónlistarútvarp meö fréttainn-
skotum og spjallþáttum þar sem allir
finna eitthvaö viö sitt hæfi. Við vilj-
um vekja athygli á nýrri þáttaröð á
rás 2 sem fjallar um söngleiki. Þætt-
irnir eru niu talsins og verður þeim
útvarpaö milli klukkan þrjú og fjögur
annan hvern sunnudag.
ÚTVARP
eftir Kristján Kristjánsson
Af Strindberg og dœgurmálum
Börnin mín bleiku og bláu / í sokkunum
ykkar háu / með ennin ykkar lágu / lokiö
þið nú augunum og opnið þau ekki aftur
fyrr en sólin skín í fyrramálið. Þessa hræði-
legu ambögu fann ég í gömlu blaðarifrildi
í Landsbókasafninu, þar sem ég var að
grauta í gömlum blöðum, sænskum. í
ónafngreindu lesendabréfi, sem í einu
þessara blaða birtist, var þessi vísa eignuð
Strindberg, hinu mikla skáldi Svía. Hinn
ónafngreindi skrifari lesendabréfsins sagði
í bréfinu að Strindberg þessi hefði sungið
eða raulað, hann var víst ekki mjög söngv-
inn eftir því sem í lesendabréfinu sagði (og
ég hef síðan fengið staðfest í ævisögu
skáldsins sem rituð er af hrútleiðinlegum
bókmenntafræðingi og á ekki skilið að
nafn hans sé nefnt), þessa vísu yfir börnun-
um sínum og einhverrar leikkonu sem
hann var lengi vel kvæntur. Þetta þótti mér
merkilegur fundur, enda veitti vísukornið
mér ákveðna innsýn í karakter skáldsins
og raunar allt hans líf. Það er afar mikils-
vert, enda vísindalega sannað, að það hef-
ur ekki nokkur maður áhuga á verkum
skálda nútildags, allra síst þeirra sem löngu
eru dauðir, heidur eru líf þeirra og hjóna-
bönd, sorgir og gleði, einkum þó sorgir,
mönnum almennt miklu hugleiknari.
Strindberg dvaldi síðan löngum stundum í
París. Sat í kaffihúsum með bræðrum sín-
um í hinni fögru list og drakk absint. Það
gerði hann geðveikan og þá fór hann heim
í hótelið sitt og skrifaði ódauðleg snilldar-
verk, sem hefðu náttúrulega aldrei orðið
snilldarverk, hvað þá ódauðleg, nema af
því að maðurinn sem skrifaði þau var geð-
veikur og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Nú eru
hins vegar aðrir tímar og löngu búið að
banna absintið. Enda hafa engin ódauðleg
snilldarverk verið gerð síðan, nema
kannski að stofna sjónvarpsstöðvar. I ný-
stofnuðu dægurmálaútvarpi RÚV var verið
að reyna að hengja einn höfund slíks snilld-
arverks um daginn, jafnvel þó hann hefði
ekki unnið sér til ófrægðar annað en að fá
góða hugmynd og vera maður til að fram-
kvæma hana. Það er tæplega synd að eiga
peninga og nota þá í eitthvað og það getur
því tæpast verið verkefni þeirra sem vinna
í RÚV að reyna að hanka menn á því. Jón
Ottar getur bara alls ekkert að því gert þó
hann eigi eitthvert fé og þó hann hafi skoð-
anir og setji þær fram í sínu eigin sjónvarpi.
Hvað er þá verið að ráðast á hann, blásak-
lausan. Þetta er varla saknæmt, nema sið-
ferðislega, en siðferði er absúrd og þess
vegna ekki til umræðu. Það væri nær að
ráðast á húsmæðurnar í vesturbænum sem
eiga enga peninga, en koma samt sínum
skoðunum á framfæri og þurfa ekki einu
sinni að segja til nafns. Um þetta hefur Jón
reyndar haft langt mál og mikið og var það
snilldarlega fram sett, jafnvel þó hann
drekki ekki absint. Gildir þá einu hvort ein-
hver tekur mark á nafnlausum húsmæðr-
um. Um það ætti ríkisútvarpið endilega að
fjalla miklu ítarlegar hver má hafa skoðan-
ir og hver ekki, hvort það sé ekki bara eðli-
legt að sjónvarpsstjórar og þeir sem standa
fyrir dægurmáladeilum séu ekki þeir einu
sem eiga að hafa skoðanir og þá helst hver
á öðrum og verkum hver annars. Allur al-
menningur gæti þá leitt það hjá sér og lesið
Strindberg í staðinn. Af ævisögu hans er
mér Ijóst að hann hefði stutt þessa tilhög-
un.
SJÓNVARP
Stöðin sigrar stepp
„Ertu búin að innrita mig í stepp og
jazz?" Svarið var auðvitað já: „Jazz á
þriðjudögum klukkan sex og stepp á mið-
vikudagskvöldum klukkan átta." Eftir að
myndlykillinn kom á heimilið er orðin
spurning hver er húsbóndinn. Bara það að
dansskólinn skyldi hafa stepp á miðviku-
dagskvöldum kostaði næstum mæðgna-
skilnað: „Mamma. Hvernig dettur þér í
hug að einhver geti verið í stepptímum
klukkan átta á miðvikudagskvöldum. Fylg-
istu ekkert með eða hvað??? Lastu ekki
vetrardagskrána? Sástu ekki að „Morð-
gáta" (Murder She Wrote, það á að nota ís-
lensku í íslenskum blöðum!) er að byrja aft-
ur á Stöð 2? Heldurðu að ég ætli að missa
af þættinum út á steppið?" Nú, þá ferðu
bara ekkert í stepp. „Ekkert í stepp? Eftir
margra ára nám? Nei, það verður bara að
breyta tímanum. Svo kemur „Úr bæ í borg"
(Perfect Strangers) líka aftur og þeir eru
líka á miðvikudagskvöldum og ég myndi
varla ná þeim heldur. Ætlarðu að eyði-
leggja allt fyrir manni, ha?“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slettist
upp á vinskapinn. Stöð 2 hefur alltaf vinn-
inginn. Allt lífið miðast við dagskrána þar.
Er furða þótt hvarfli að manni hvernig
börn nútímans eiga að læra borðsiði?
Nema bara að mæður geri eins og nauð-
synlegt virðist vera núna, að borða klukk-
an sex, helst fyrr. Ef það er þá ekki einhver
mynd sem „verður" að horfa á. Það er ekk-
ert uppörvandi fyrir uppalendur í dag að
horfa á börnin borða annaðhvort fyrir
framan sjónvarpið eða þá að manni er til-
kynnt að maturinn verði að vera akkúrat
milli sjö og fimm mínútur yfir. Samt hef ég
enga tillögu um hvernig á að breyta dag-
skránni. . .
Mér þætti líka gaman að hitta foreldri
sem man hvernig það er að eiga barn sem
sefur út um helgar og endurnýjar kraftana
fyrir skólavikuna. Vaknað rétt fyrir níu,
seinna má það ekki vera svo ekkert á Stöð-
inni fari framhjá unga fólkinu. Stundum
gleymir litla fólkið að stilla klukkuna, því-
líkur unaður. Annars á maður auðvitað
ekkert að vera að kvarta því meðari
mömmur eru ekki skyldaðar til að vakna
líka og horfa á sjónvarpið ætti þetta að vera
í lagi. Kannski á maður ekkert að hafa
áhyggjur af „svefnleysi" barna, að minnsta
kosti ekki meðan þess er ekki krafist að fá
að horfa á bíómyndir næturinnar líka.
Stundum kemur fyrir að aðrir á heimil-
inu setjast hjá litla húsbóndanum og horfa
á stóra húsbóndann. Ef sá litli bregður sér
frá er óðara skipt yfir á ríkissjónvarpið. Það
var gert eftir að „Hunter" og McCall,
frænka Bjargvættarinnar, fóru af skjánum á
þriðjudagskvöldið. Af því hafði nefnilega
frést að þátturinn „A ystu nöf" væri
assk...góður. En viti menn. Spólan biluð og
þrjár viðgerðartilraunir báru ekki árangur.
Hverslags var þetta eiginlega. Svo má fólk
bíða í viku. Tæknin lætur ekki að sér hæða.
Þess vegna er skrifari ekki dómbær á gæði
þessara þátta.
Ef einhver skyldi hafa áhuga á að vita
það þá sigraði Stöð 2 ekki aðeins móðurina
á bænum heldur líka heilan dansskóla.
Húsbóndinn á heimilinu er komin í stepp-
tíma fullorðinna á þriðjudagskvöldum og
er svo heppin að hún nær að sjá „Hunter",
Morðgátu og „Úr bæ í borg“. Kallar maður
það að fæðast undir heillastjörnu eða er
það bara heppni að mamma manns skuli
vera vinkona danskennarans manns sem
skilur alveg dálætið á ákveðnum sjón-
varpsþáttum?
38 HELGARPÓSTURINN