Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 135. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Fokker vélin utan brautar nokkrum mínútum eftir nauðlendingu í gær. Vinstri spaðinn er kengboginn. Ljósmynd Mbl. Ragnar Axelsson. IpF ' ' x ■■■■■ „Mikil gleði þegar hættan var liðin hjá“ Fokker með nítján manns nauðlenti á Keflavíkurflugvelli „ÉG REYNDI aðallega að hugsa um börnin mín tvö, því Anna Guðrún, sem er þriggja ára, var mikið hrædd. en það minna, sem er átta mánaða, var ró- legra. Þetta reyndi virki- Iega á mann, því ég vissi ekkert hvernig lendingin myndi takast, en það var mikil gleði þegar hættan var liðin hjá,“ sagði Svein- björg Friðbjörnsdóttir, einn farþeganna 16 í Flugleiðavélinni, sem nauðlenti á Keflavíkur- flugvelli um kl. 20 í gær- kvöldi, vegna bilunar í hjólabúnaði. Guðjón ólafsson, flugstjóri, lenti vélinni magalendingu og rómuðu starfsmenn á Keflavíkurflugvelli lend- inguna mjög og sögðu hana snilldarlega. Aðstoð- arflugmaður var Baldur Ingólfsson og flugfreyja var Elísabet Ilákonardótt- ir, sem farþegarnir kváðu hafa haft fullkomna stjórn á öllu í farþegarými fyrir og í nauðlendingu. Fokker-vélin TF-FLO fór frá Reykjavík um kl. 18 í gær, en þegar lenda átti í Eyjum, náðist annað hjólið ekki, niður. Vélin sneri þá við til Reykjavíkur og flaug þar nokkra hringi með snöggum rykkjum til þess að reyna að ná hjólinu niður. Sögðu farþegarnir í samtali við blaða- menn Morgunblaðsins á lend- ingarstað, að það hefði verið eins og að vera í rússíbana. Þegar flugmennirnir gáfust upp við að ná hjólinu niður var ákveðið að nauðlenda í Keflavík, en þar er beztur búnaður fyrir slíkar lend- ingar. Slökkviliðið á Keflavíkur- flugvelli, undir stjórn Sveins Ei- ríkssonar, sprautaði kvoðu á eina flugbrautina og síðan var heimil- uð lending og voru sjúkrabílar, slökkviliðsbílar, lögregla og fleiri aðilar tilbúnir til aðstoðar. Guð- jón flugstjóri lenti vélinni í kvoð- unni og notaði að nokkru annað hliðarhjólið og nefhjólið. Náðu flugmennirnir að stöðva vélina mjög fljótlega, og beygja henni út af flugbrautinni, tiltölulega mjúkri lendingu. Gekk fljótt og vel að koma farþegunum frá borði og meiddist enginn. Farþegarnir fóru síðan í rútu til Reykjavíkur og flugu með annarri vél til Eyja seint í gærkvöldi, allir nema móðirin með börnin tvö. Slökkvi- liðsmenn á Keflavíkurflugvelli fjarlægðu Fokkerinn af brautar- svæðinu í gærkvöldi, en mjög lítið sá á vélinni eftir nauðlendinguna. Sjá viðtöl við farþega og flugliða á bls. 18-19. Farþegarnir með Fokkervélinni ásamt flugfreyju að lukinni nauðiendingu á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi: Frá vinstri i aftari röð: Halla Gisladóttir, Halla Björg Baldursdóttir, Lindberg, Bergur Kristinsson. Sigurhans Iilynsson, Sigriður Kolbrún Guðnadóttir, Jónína Ólafsdóttir, Guðrún Samúelsdótt- ir. Elisabet Hákonardóttir flugfreyja og Jón Hjaltason hrl. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir. Hafdis Kristjánsdóttir, Sveinbjörg Friðbjörnsdóttir með 8 mánaða gamalt barn sitt og þriggja ára dóttur, önnu Guðrúnu, Brynja Traustadóttir með Tinnu dóttur áina. Ljósmynd Mbi. rax. 42 féllu í átökum JóhannesarborK. 18. júní. AP. TIL ÁTAKA kom á ýmsum stöðum í hverfum svartra i Ilöfðaborg og nágrenni í dag, og hermdu fregnir að a.m.k. 42 hefðu dáið í átök- um í landinu í dag og gær. Fréttamenn sögðu að búast mætti við að tala fallinna ætti eftir að hækka. Jafnframt væri ógerningur að segja um með vissu hversu margir hefðu særst í átökunum, en eitt blað skýrði frá að þeir hefðu verið a.m.k. 200 talsins. Útvarpið, sem er ríkisrekið, sagði að a.m.k. 20 hefðu fallið í átökun- um og 150 særst, þar af fjöldi lögreglumanna. Átökin brutust út er svartir íbúar Suður- Afríku minntust þess að fjögur ár voru liðin frá uppþotunum í Soweto, en þá féllu um fjögur hundruð manns. Karmal reyndi sjálfsmorð Nýju Delhi, 18. júní. AP. BABRAK Karmal, forseti Af- ghanistans. gerði misheppn- aða tilraun til að svipta sig lífi á föstudaginn. en öryggis- verðir hans héldu aftur af honum. samkvæmt heimild- um indverskra fréttastofa. Karmal er raunverulegur fangi rússneskra ráðunauta samkvæmt þessum fréttum. Starfsfólk hans er rússneskt, þar á meðal matreiðslukona og bíl- stjóri. Tíu félagar og starfsmenn stjórnarflokksins eru vegnir að jafnaði á degi hverjum í Kabúl samkvæmt fréttum frá vestræn- um diplómötum, aðallega lágt settir menn flokksins og emb- ættismenn. Kabúlbúum, sem hafa samstarf við stjórnina, hefur verið hótað með flugmið- um, „Shabnama“, eða „Nætur- bréfum". í borgunum Kandahar og Jal- alabad hafa skæruliðar bæði drepið flokksmenn og meðlimi fjölskyldna, sem ekki eru í nein- um tengslum við stjórnarflokk- inn. Hussein: Vill tryggja íjryggi Israelsríkis WashinKton. 18. júní. AP. HUSSEIN Jórdaníukonungur gaf í skyn í dag, að hann væri reiðubúinn að standa að sam- komulagi er tryggði öryggi ís- raelsríkis, ef um væri að ræða samkomulag um heildarlausn á vandamálunum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Að loknum viðræðum við Carter Bandaríkjaforseta sagði Hussein þó, að Bandaríkja- menn og Jórdani greindi á um leiðir til að tryggja varanlegan frið í Miðausturlöndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.