Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Arinbjörn Árnason: TUTTUGU og fjórir þýzkir slökkviliðsmenn hafa dvalið hér að undanförnu í boði slökkviliðsmanna hjá Reykjavíkurborg, en slíkar skiptiheimsóknir hafa tíðkast um árabil milli íslenzkra og þýzkra slökkviliðsmanna. Myndin var tekin af hópnum fyrir utan slökkvistöðina í Reykjavík. Hversvegna ég styð Albert Sigrún Guðmundsdóttir kennari: Forsetaframboð og kvenna- fundurinn á Lækjartorgi Eitt af því sem mér er minnis- stæðast af seinni ára viðburðum er hinn frægi kvennafundur á Lækjartorgi en þar mættu þús- undir kvenna á ári konunnar. Aldrei hafa konur sameinast á eins áhrifaríkan hátt. Þær sýndu þar mátt sinn og megin og hvers þær gætu verið megnugar, ef þær þjappa sér saman. Þarna stóðu á palli fyrirkonur úr öllum stjórn- málaflokkum og ýmsum samtök- um. Athygli mín beindist þó mest að einni þeirra, sem ég hafði hvorki heyrt né séð áður, en það var hin mikla og mælska skör- ungs- og greindarkona, Aðalheið- ur Bjarnfreðsdóttir. Hún virtist vekja mesta athygli af foringjun- um á pöllunum og konur hrifust af bardagamætti hennar. Og um hvað fjallaði svo þessi fundur? Því er fljótsvarað. Inn- takið í öllum ræðum kvennanna, sem á pallinum stóðu, voru sterk eggjunarorð um jafnrétti kvenna og karla. Málum væri nú þannig háttað hjá okkur, að oftast væru konur sniðgengnar, þegar um væri að ræða hin ýmsu embætti í þjóðfélaginu. Rætt var um karl- veldið innan veggja Alþingis og þar þyrfti að verða breyting á og athuga bæri, að konur væru meiri- hluti kjósenda. Eftir þessa ábend- ingu klöppuðu konur mikið og lengi. Sú sem mest áhrifin virtist stendur þeim til boða að eignast konu í forsetaembættið, ef þær þjappa sér saman eins og á Lækjartorgi forðum. Ég spyr: Var ekkert að marka þessi eggjunar- og samtakamátt- arorð? Kannski rætist sú spá, sem ég heyrði kunningja minn tjá sig um nýlega: „Málin virðast vera að þróast í þá átt, að það verðum við karlarnir, sem færum Vigdísi Finnbogadóttur forsetaembættið." Reykjavík, 18. júní 1980. Sigrún Guðmundsdóttir. Ég kýs Albert vegna þess að hann er reyndur stjórnmálamað- ur. Ég kýs Albert vegna þess að hann er þekktur að heiðarleika og drengskap. Ég kýs Albert vegna þess að hann er kunnur að því að hafa sjálfstæðar skoðanir án ytri áhrifa og tilbúinn að standa eða falla með eigin sannfæringu. Ég kýs Albert vegna afreka hans sem mikilmennis, og leið- togahæfileika. Mun ég nú styðja þessar skoð- anir mínar með nokkrum orðum. Starf forseta hlýtur að liggja á sviði þjóðmála og stjórnsýslu ís- lensks þjóðfélags. í umboði forsetans eru ráðu- neyti stofnuð, á ríkisráðsfundum er hann í forsæti og stýrir umræð- um, ber fram tillögur og gerir fyrirspurnir, hann samþykkir lög ríkisins með undirskrift sinni, veitir móttöku sendifulltrúum er- lendra þjóða og hann er einingar- tákn og fulltrúi á meðal erlendra þjóða og þjóðhöfðingja fyrir Is- iands hönd. Vil ég í þessu sambandi láta undrun mína í ljósi á því sem nú er verið að halda fram af ýmsum að starf forseta sé ekki pólitískt og eigi ekki að vera það, allt slíkt tal virðist mér vera hið mesta öfugmæli. Ætli það hafi verið af slysni að fyrsti forseti íslenzka lýðveldisins var þekktur og kunnur innan stjórnsýslu þjóðarinnar, eða sá sem við tók af honum sem einnig var reyndur og mikilhæfur stjórn- málamaður? Ætli það hafi verið af slysni að Jón Sigurðsson forseti var úr hópi stjórnmálamanna þjóðarinnar á sinni tíð. Nei, gott fólk, takið ekki mark á slíkum áróðri eða upphrópi um hlutleysi og ætlið ekki forsetanum Arinbjörn Árnason slíka skoðanafátækt. Heldur er forseta íslenzka lýðveldisins á þeim viðsjálu tímum sem við lifum á, nauðsyn á að vera kunnur og þekkja inná refilstigu hinna ýmsu sviða stjórnmála, og ekki síst hvar hann er einingartákn þjóðarinnar. Ef við athugum drengskapinn og heiðarleikann á bak við fram- boð Alberts þá sjáum við mann- inn, sem þorir að standa eða falla með sinni eigin sannfæringu, bak við hann er enginn hópur af aðdáendum með áskoranir, og stuðningsfylgi, svo viðkomandi þorir að gefa kost á sér til embættis forseta. Heldur lýsir hann einn yfir eigin ákvörðun sinni til framboðs, öruggur og sigurviss hlýðir hann sinni eigin köllun. Slíkan mann kjósum við á Bessastaði 29. júní. Arinbjörn Árnason Þorvarður Júlíusson, Söndum: Sigrún Guðmundsdóttir. hafa þarna með sinni snjöllu og réttmætu ræðu var Aðalheiður, og man ég ekki betur en hún hafi verið sú af foringjunum, sem mest fékk klappið. En hvað skeður nú þessa daga? Einn af fjórum frambjóðendum til forsetaembættisins er kona. Hún stendur jafnfætis, hvað snertir hæfileika til þessa embættis, karlframbjóðendunum, að ýmsu leyti framar þeim. Nú virðast hinir ýmsu foringjar á pöllunum ætla að bregðast konum. Nú Höfnum meðalmennskunni Söngdagar í Skálholti HÓPUR áhugafólks um söng, tónmenntakennarar og fleiri efna til söngdaga í Skálholti dagana 19. —22. þ.m. Stjórnandi hópsins er Jónas Ingimundarson píanóleikari. Næstkomandi sunnudag, 22. júní, mun hópurinn syngja við essu í Skálholti kl. 14 og kl. 18 síðdegis sama dag flytur hópurinn í kirkjunni það sem æft hefur verið á söngdögunum. Áhugafólk er velkomið til þess að hlýða á þennan samsöng. Þetta er í annað sinn, sem hópurinn efnir til slíkra söngdaga í Skálholti og verður væntanlega fram haldið, því mjög vel þótti takast í fyrra. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Merkustu íslendingar með er- lendum þjóðum á þessari öld hafa verið þeir Vilhjálmur Stefánsson, landkönnuður, og Albert Guð- mundsson, íþróttamaður. Þá hefur borið hátt yfir rofabörð og þúfur í landslagi mannlífsins. Þeir hafa átt stóran þátt í því, eins og raunar allir afreksmenn, að valda þeirri skoðun hjá útlendingum, að Islendingar séu í raun mikið fjölmennari og voldugri en þeir eru. Þessi tvö mikilmenni, sem hvor á sínu sviði juku við þá sæmd að heita íslendingur, fæddust af alþýðufólki en báru höfðingjann í blóöinu. Vilhjálmur Stefánsson stefndi út í kuldann og kenndi mönnum að lifa við aðstæður norðursins. Al- bert Guðmundsson stefndi einnig norður og heim eftir frækivist í Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu og víðar. Hér hefur hann hjálpað fólki til að lifa. Það er hafið yfir allan efa, að íslendingar eiga nú að kjosa Albert Guðmundsson fyrir for- seta. Þeir hafa aldrei áður haft jafn kjörið tækifæri til að setja sinn besta son og frægasta mann í forsetastól. Við stuðningsmenn Alberts Guðmundssonar vitum að hann á við andbyr að búa í þessum kosningum. Það eiga allir stórir menn. Jafnvel Jón Sigurðsson forseti sætti miklum andbyr hér ' heima í pólitísku starfi. Sagan er jafnan grimm og dregur ekkert undan. Hún er strax farin að fjalla óþyrmilega um andstæðinga Sveins Björnssonar, forseta, samanber siðustu Lesbók Morgunblaðsins. Látum ekki henda okkur nú að fella Albert Guðmundsson. Það yrði söguleg hneisa. Eggert Ólafsson sagði fyrir tvö hundruð og þrjátíu árum: íslands óhamingju verður allt að vopni. Látum það ekki ásannast í kom- andi kosningum. Höfnum meðalmennskunni. Kjósum Albert Guðmundsson. Þorvarður Júlíusson frá Söndum. Þorvarður Júliusson Eimskip: F astar f erðir til New York VEGNA aukinna viðskipta Islend- inga við Norður-Ameríku og þá einkum í New York hefur Eim- skipafélag íslands ákveðið að taka upp fastar áætlunarferðir til New York, en þær lögðust niður 1969 vegna óeðlilega hás kostnaðar. Gámaflutningaskipið m.s. Berg- lind verður fyrst í stað notað á þessari leið, en auk þess mun það koma við í Portsmouth í Virginíu- fylki. Skipið mun fara í sína fyrstu áætlunarferð frá íslandi 20. júní n.k., frá New York 30. júní og frá Portsmouth 2. júlí og síðan með um það bil 23 daga millibili frá þessum stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.