Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
21
slitið í hundraðasta sinn
„Ekkert nema
góðar minningar44
- Rætt við gamla stúdenta frá M.A.
FYRSTU stúdentarnir brautskráð-
ust frá Menntaskólanum á Akureyri
árið 1928. Voru það 5 karlmenn og
eru tveir þeirra enn lifandi, þeir sr.
Guðmundur Benediktsson og Hauk-
ur Þorleifsson. Blaðamaður hitti
Hauk á Akureyri en þangað var
hann kominn til að vera viðstaddur
hátíðahöldin í tilefni 100 ára afmæl-
is M.A.
„Ég á ekkert nema góðar minn-
ingar frá mínum menntaskólaárum
og það svo margar að ég þyrfti að
skrifa heila grein ætti ég að segja
frá þeim,“ sagði Haukur.
Hann sagði það vissulega hafa
verið gaman að vera meðal fyrstu
stúdenta frá Menntaskólanum á
Akureyri. Haukur hélt síðan til
náms til Þýskalands og nam þar
stærðfræði og viðskiptafræði.
„Vildum helst vera lengur“
Árið eftir, 1929, útskrifuðust 7
stúdentar frá M.Á. þar á meðal
fyrsta konan, Guðríður Aðalsteins-
dóttir. Þeir Ingólfur Davíðsson og
Jón Sigurgeirsson voru einnig meðal
þeirra stúdenta.
„Okkur líkaði mjög vel í skólanum.
Svo vel að við vildum helst hafa
verið þar lengur," sögðu þeir er
blaðamaður hitti þá við hátíðahöld-
in. „Við höfðum úrvalskennara í
skólanum og góðan skólameistara,
Sigurð Guðmundsson. Og eftir út-
skriftirnar fóru 5 af okkur til
útlanda til framhaldsnáms. Nú búa
tveir fyrir norðan, þrír í Reykjavík
og einn í Kaupmannahöfn en einn er
látinn."
Ingólfur og Jón sögðu að þeir
hefðu meira og minna haft samband
við samstúdenta sína öll þessi ár og
alltaf komið til Akureyrar á „júbil-
enum“.
„Skolinn hefur veitt
okkur mikið og
gott veganesi“
Séra Sigurður Guðmundsson
prestur á Grenjaðastað varð stúdent
frá M.A. fyrir 40 árum en þá
útskrifuðust 38 stúdentar frá skól-
anum. Dóttir Sigurðar, Steinunn,
útskrifaðist nú úr öldungadeild M.A.
„Lífið í skólanum var þá glatt og
gott og við minnumst þess með
ákaflega mikilli ánægju,“ sagði séra
Sigurður í samtali við Mbl. „Það er
enginn vafi á því að skólinn hefur
veitt okkur mikið og gott veganesti.
Við höfum alltaf haldið sambandi
við skólann og í öll þessi ár höfum
við samstúdentarnir hist einu sinni
á ári,“ sagði Sigurður að lokum.
rmn.
„Hefur verið frá-
bært að vera í M.A.“
- Rætt við nokkra nýstúdenta
DAN Brynjarsson var meðal
þeirra 120 stúdenta sem útskrifuð-
ust frá M.A. í ár. Hann er fyrsti
stúdentinn sem skólinn braut-
skráir af verslunarsviði.
„Það var fyrir tilviljun að ég fór
í M.A.,“ sagði Dan í samtali við
Mbl. „Ég hafði sótt um annan
skóla, en hélt ég hefði fallið á
inntökuprófinu og fór í M.A. til að
missa ekki úr ár. En eftir að ég
var kominn þangað, fékk ég að
vita að ég hefði staðist inntöku-
prófið, en ákvað samt að halda
áfram í M.A.“
O
Dan Brynjarsson
<5>
Hrefna Bjartmarsdóttir
Dan sá alls ekki eftir því að
hafa stundað nám við skólann.
„Það hefur verið frábært, sér-
staklega sl. vetur," sagði hann.
Hann bjóst við því að fara í
háskóla og stunda nám í við-
skiptafræði í framtíðinni.
„En tengslunum við M.A. ætla
ég að halda og heimsækja skólann
sem oftast,“ sagði Dan að lokum.
„Bæði gott og gaman
að stunda nám i M.A.„
Hrefna Bjartmarsdóttir lauk
prófi úr félagsfræðideild M.A.
Hrefna sagði að það hefði verið
gott og gaman að stunda nám við
skólann.
„Ég hafði áhuga á að læra
eitthvað meira, og því var það að
ég ákvað að setjast í M.A.,“ sagði
hún. Ég hef líka áhuga á að
mennta mig meira nú og ætla þá
helst að halda áfram að læra
eitthvað í sambandi við félags-
fræði.“
„Næstum því leið
yfir að vera búin“
Steinunn Sigurðardóttir út-
skrifaðist úr öldungadeild M.A.
„Þegar ég var yngri hafði ég
ætlað mér að læra, en nennti því
þá ekki. Þegar ég hóf námið að
nýju átti ég tvo syni, átta og tíu
ára, og hafði ekki unnið úti í
nokkur ár. Því fannst mér það
upplagt að fara í öldungadeildina
þegar hún var stofnuð. En ég hafði
líka áhuga á að eignast fleiri börn
og gekk með þriðja barnið, dóttur
mína, fyrsta veturinn í skólanum.
Það má því segja að hún hafi lært
með mér, en hún er nú orðin 4 ára.
Fyrst var ég alls ekki viss um að
ég myndi halda áfram og klára
námið. En þetta hefur verið svo
skemmtilegur tími að það er nærri
því að mér leiðist að vera búin,“
sagði Steinunn.
Steinunn kvaðst ekki ætla að
halda áfram að læra en snúa sér
alfarið að uppeldi barnanna.
„Ég held að nám mitt muni
hjálpa mér mikið í því,“ sagði hún
að lokum.
rmn
Haukur Þorleifsson var meðal Ingólfur Daviðsson og Jón Sigurgeirsson urðu stúdentar frá M.A.
fyrstu stúdenta Menntaskólans á fyrir 51 ári. Myndir EmiiiH.
Akureyri.
Sr. Sigurður Guðmundsson ávarpar gesti á skólaslitaathöfn M.A. fyrir hönd 40 ára stúdenta.
CTTL V V X X X X X
er eina firmaö í heiminum
sem veitt hefur íslenzkum stangaveiöimönnum
árlega heiöursverölaun fyrir væna fiska
— enda er óhætt aö treysta þeirra vörum
Áriö 1979 greiddi
ABU kr. 330.000 í verölaun til íslenzkra
veiöimanna. Kynniö ykkur reglurnar í „Napp og Nytt“ sem er
afhent ókeypis hjá okkur
Hafnarstræti St Tryggvagötumegin,
•íma 16760.