Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Myndllsl eftir VALTÝ PÉTURSSON LISTAHÁTÍÐ 1980 Steinunn Þórarinsdóttir: Tvö nafnlaus verk. Listahátíð að Korpúlfsstöðum Að Korpúlfsstöðum hefur hafist afar áhugavert og skemmtilegt samstarf milli Reykjavíkurborgar og hóps listamanna, sem nefnir sig Myndhöggvarafélagið í Reykjavík. Nokkur tími er liðinn, síðan þetta samstarf hófst, og nú á listahátíð hefur verið efnt til fyrstu samsýningar á verkum sumra þeirra listamanna, sem fengið hafa inni á hinu fræga sveitasetri, er Thor Jensen byggði á sínum tíma, en er nú í eigu Reykjavíkurborgar. Listamenn þeir, sem í hlut eiga, hafa orðið að leggja fram mikla vinnu og efni til að gera í stand húsnæðið. Ekki verður annað sagt en að þeir hafi sýnt meir en viljann. Það er staðreynd, að nú er sameiginleg vinnustofa þeirra höggmyndara tilbúin, og mestur hluti þeirrar sýningar, sem þar er að sinni, er einmitt í þeim húsakynnum. Einn- ig veit ég til, að nokkrir listamenn hafa þegar unnið verk sín á Korpúlfsstöðum og að minsta kosti einn málari, er þar til húsa með vinnustofu. En það er Gunnar Örn, sem nú er þátttakandi, sem gestur, á þessari sýningu. Verk hans eru í þeirri álmu, sem fyrirhuguð er sem gestavinnustofa handa erlendum listamönnum á komandi árum. Skúlptúrsýning er undirtitill þessarar sýningar. Það er nú svo komið, að þetta hugtak „SKÚLPT- ÚR“ virðist spanna nokkuð breitt svið. Það er ekki lengur hægt að tala um höggmyndir í þeim gamla skilningi, því að fæst nútímaverka eru hoggin beint í náttúruefni. Nú fara menn sér styttri og auðfet- aðri leiðir og nota ný og meðfæri- legri efni til að tjá sig. Jafnvel er eitt af verkunum á þessari sýn- ingu unnið í þel, sem hangir í lögðum úr lofti. Annað verk er hey í grind og gler, strigi, og margt annað kemur þarna við sögu. Og minnast verður einnig á þau verk, sem eru utandyra og gerð í sjálft túnið á staðnum. Það er svokölluð LANDLIST, en satt að segja veit ég ekki, hvort aðstandendur þess- arar listgreinar eru ánægðir með þetta orð. A ensku nefna þeir þetta LAND ART, svo þýðingin er orðrétt. Það eru fleiri efni þarna á ferð, en ég læt þessa upptalningu nægja. Það er stór hópur manna, sem að þessari sýningu stendur, og hræddur er ég um, að allt sem þarna er fram borið fyrir sýn- ingargesti, sé ekki 4 sama gæða- flokki. Að mínum dómi eru þessi verk mjög misjöfn og sum þeirra algeriega misheppnuð tilraun til að vera svokölluð framúrstefnu verk. Ef til vill verður það sagt á komandi árum um þessa sýningu, að hún hafi frekar sett svip útkjálkans á listahátíð 1980 en hið gagnstæða. Það er nefnilega mik- ill vandi að vera framúrstefnu- sinni og falla ekki i þann vonda pytt að verða að bergmáli þess, er menn eru að bauka við úti í hinum stóra heimi. Hlutirnir þurfa að vera upplifaðir, hvort heldur um Sigrún Guðmundsdóttir: Börn að klifra (tré), 1980. Listahátíð í Suðurgötu 7 Þeir hugdettumenn í Suðurgötu 7 láta ekki sitt eftir liggja á Listahátíð 1980. Þeir halda sýn- ingu í tilefni hátíðarinnar og einnig í tiiefni þess, að stofnun þeirra á þriggja ára starfsafmæli. Það er að mínum dómi merkilegt afmæli, því að oftast eru stofnanir sem þessi ekki langlífar. Erlendis virðist það vaninn, að fremur séu stofnuð ný gallerí en að þau endist um árabil, nema í einstaka og sérstæðum tilfellum. Galleríið í Suðurgötu 7 virðist aftur á móti ætla að halda velli ekki síður en hið gamla og vinalega hús, sem það á heima í. Á þessum þremur árum hefur ýmislegt verið til dægradvalar í Suðurgötunni. Um 60 sýningar hafa verið haldnar, þar hafa verið leiklistarnámskeið, hljómleikar og danssýningar, ef ég veit rétt. Og þar við bætist, að sex tölublöð af riti þeirra hugdettu- manna, Svart á hvítu, hafa verið gefin út. Það er að sínu leyti kraftaverk, því að það er ekki heiglum hent að halda slíku gang- andi. Svo hafa þessir dugnaðar- menn einnig farið með list sína út um allar trissur: til Lundar, Flór- ens, New York og Helsinki og Danmörk mun nú í skotmáli. Geri aðrir betur. Ég er hræddur um, að hér áður fyrr hefðu þeir í Suður- götu 7 verið taldir héimsfrægir. En nú er hún Reykjavík orðin stór, og heimsfrægð er eins og að skreppa í laugarnar. Ég óska afmæiisbarninu alls góðs og upp- yngingar á komandi árum. Fimmmenningar sýna að sinni, og eru flestir þeirra upp- hafsmenn eða hafa tekið þátt í starfseminni frá byrjun stofnun- arinnar. Aðeins einn sýnenda er nýr á landi hér, en mun hafa verið með erlendis. Nýiiðinn er Halldór Ásgeirsson, en aðrir sýnendur eru Bjarni H. Þórðarson, Friðrik Þór Friðriksson, Margrét Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð Krist- mundsson. Allur þessi hópur vinn- ur nokkuð í sama dúr, en sýnendur eru samt ólíkir í listmeðferð sinni. Þannig eru ljósmyndir það tján- ingarform, sem þeir Halldór Ás- geirsson og Bjarni H. Þórðarson hafa valið sér. Steingrímur Ey- fjörð Kristmundsson notar nokk- uð persónulegan stíl, sem á rót að rekja til blaðateikninga, ef mér ekki skjátlast, og Margrét Jóns- dóttir á þarna nokkur mjög nost- ursleg verk, teiknuð með krít. Bjarni H. Þórarinsson sýnir einn- ig teikningar, og er Spíralfjörður eftirminnilegust þeirra. Þetta er Mynd eftir Bjama H. Þórarinsson. snotur sýning í alla staði. Vel frá verkunum gengið, og allt er snyrtilegra en verið hefur á mörg- um fyrri sýningum á þessum stað. En ekki get ég að því gert — þetta verkar allt á mig svo borgaralegt og hefðbundið, að sú spurning vaknar, hvort þessi þróun sé stöðnuð eða hvort ef til vill hafi aldrei legið meiri og flóknari hugmyndafræði að baki þessara verka. Jafnvel mætti láta sér detta í hug, að keraldið væri tæmt. Vonandi ekki. Þetta eru ungir menn, sem eru ekki nema rétt byrjaðir á ferli sínum. Það má vera, að ég sjái hlutina ekki í réttu ljósi, en ósköp fannst mér lítið púður í þessari sýningu á Suður- götunni. Það er nú einu sinni svo, að standa verður við hlutina og vera hvergi deigur, þegar farnar eru nýjar leiðir. Eg hefði óskað Suðurgötu 7 enn meiri afmælis- hátíðar með nýjungum í stað fágunar, með óaðgengilegum verk- um, sem mér hefðu fundist óal- andi og óferjandi, en það er nú eitthvað annað þarna á ferð. Svo elskuleg er þessi sýning á köflum, að maður fer hjá sér. Þeir hug- dettumenn eru farnir að þvo sér í Verk eftir Margréti Jónsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.