Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 27 INNLENT Hefðbundið þjóðhátið- arhald í Þorlákshöfn Inirlákshófn. 18. júná. SAUTJÁNDA-júní hátiðahöld fóru hér fram með hefðbundnum hætti. Klukkan 10 árdegis «áfu menn hestamannafélaKÍnu Iláfeta bornum kost á að koma á hestbak ok er þetta árviss liður í hátíðahöldum da^sins og mjög vinsælt. Klukkan 13 hófst svo skrúðganga um þorpið ok síðast var gengið á hátíðarsva'ðið. sem var skrúðKarður kvenfélaKsins. bar lék lúðrasveit LauKarnesskóla ættjarðarlöK. öllum til mikillar ánæKju. Stjórnandi hennar er Stefán Þ. Stefensen. Klukkan 14 hófst svo Kuðsþjón- vel að meta. Þá fóru fram leikir, usta. Séra Páll Pálsson á Berg- þórshvoli prédikaði. Söngfélag Þorlákshafnar söng undir stjórn Ingimundar Guðjónssonar. Ávarp fjallkonu flutti Kristjana Friðbergsdóttir. Jónas Guð- mundsson rithöfundur flutti snjalla ræðu í tilefni dagsins. Lúðrasveitin lék á milli atriða. Þá komu fram þær stöllur, Kolbrún og Elvín, með gamanmál og vísna- söng, sem ungir og aldnir kunnu söngur, glens og galdrar Baldurs Brjánssonar. Ungu borgararnir skemmtu sér svo við diskótek framundir kvöld. Síðan lék hljómsveitin SOS fyrir dansi í félagsheimilinu. Formaður þjóðhátíðarnefndar var að þessu sinni Bjarni Bald- ursson Hjallabraut 1. Dagurinn var mjög vel heppnaður, veður var þurrt en heldur kalt. Ragnheiður Mývatnssveit: Fjórða þjóðhátíð í Höfða Björk. Mývatnssveit, 18. júni. MYVETNINGAR héldu þjóðhátíð- arsamkomu í gær, 17. júni, i hinum fagra fólksvangi Höfða. Þetta var i fjórða skiptið, sem þjóðhátið 17. júni er haldin á þessum stað. Höfðinn skartaði nú sínu feg- ursta skrúði og mikil gróska var í öllum blóma- og trjágróðri. Veður var ekki það hagstæðasta, þó var nánast logn og milt, hitinn 15 stig, en frekar dimmt yfir og dálítil rigning. Samkoman hófst klukkan 14 með helgistund Arnar Friðriks- sonar sóknarprests. Helga Valborg Pétursdóttir flutti ræðu dagsins. Ávarp fjallkonunnar flutti Krist- jana Guðlaugsdóttir. Þá var sýnd bændaglíma og leikin knattspyrna. Til að fullnægja öllu réttlæti tóku konur að sjálfsögðu þátt í hvoru- tveggja og stóðu sig vonum betur. Að síðustu var farið í margs konar leiki, þar sem börn og unglingar voru stór hluti þátttak- enda. Ingibjörg Gísladóttir stjórn- aði þessari hátíðarsamkomu af miklum skörungsskap. Kiukkan 17 var unglingadans- leikur í Skjólbrekku, og klukkan 21.30 hófst almennur dansleikur á sama stað. Kristján Athugasemd frá Tómasi Árnasyni — MÉR finnst það nokkuð harð- leikið, að ráðherrar skuli vera skammaðir fyrir að sinna emb- ættisverkum sinum, sagði Tómas Árnason viðskiptaráðherra i samtali við Mbl. í gær. sjávarútvegsráðherra tæki sér sumarleyfi á heppilegri tíma. Að öðru leyti er ástæðulaust að amast við því að ráðherrar séu erlendis. — Ég er nýkominn af 3 daga ráðherrafundi OECD í París, 3 daga ráðherrafundi EFTA í Sví- þjóð og viðræðum um olíumál í London, sem stóðu alls í 3—4 daga, sagði Tómas. — Ég var hálfan mánuð í þessari ferð og svo skrifar Morgunblaðið leiðara, að ráðherrar eigi ekki að vera að þvælast í útlöndum. Mér finnst óviðurkvæmilegt þegar ráðherrar fá á sig heilan leiðara í stórum blöðum, sem tekið er mark á, fyrir það að sinna embættisskyldum sínum, sagði Tómas Árnason, viðskiptaráðherra. Aths. ritstj. Það er staðreynd, að þeir Steingrímur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra og Tómas Árna- son, viðskiptaráðherra, voru báðir erlendis um síðustu mánaðamót, þegar mikil vandamál komu upp í sambandi við ákvörðun fiskverðs. Hafi fundir þeir, sem Tómas Árnason rekur hér verið svo mikilvægir, sem hann vill vera láta, var það lágmarkskrafa, að Telpa fyrir bif- hjóli - Okumað- urinn 13 ára NÍU ára telpa varð um hádegisbil á þriðjudag fyrir léttu bifhjóli á Þverholti í Mosfellssveit. Telpan slasaðist ekki alvarlega en öku- maður bifhjólsins fór af vettvangi. Hann fannst þó síðar, og reyndist vera 13 ára og án réttinda til aksturslétts bifhjóls, en til að öðlast slík réttindi þarf viðkom- andi að vera 15 ára. Ljósm. Jónas Áð við Hundasteina eftir að komið var yfir Vatnsveitubrúna. Göngudagur fjölskyldunnar: Oþarft að fara úr bæn- um í leit að ró og kyrrð „ÉG HELD að mér sé óhætt að segja að gangan hafi tekist nokk- uð vel, veðrið hefur verið ákjósan- legt og svo virðist sem þörf sé fyrir göngur sem þessa, ef tekið er mið af þátttökunni.” sagði Sigurður Geirdal i viðtali við Mbl. er hann var inntur eftir þátttöku i göngu Umf. Vikverja í Reykja- vik i tilefni Göngudags fjölskyld- unnar.” „Gengið var sem leið lá upp með Elliðaánum að austan, snúið við á gömlu Vatnsveitubrúnni og gengið niður að vestanverðu að kjarrlund- inum í Árhólmanum, þar sem göngunni lauk formlega," sagði Ragnar Jónasson, annar göngu- stjóranna. í Árhólmanum hitti blaðamaður Mbl. að máli þær Hönnu og Hlíf Gestsdætur og innti þær eftir áliti þeirra á göngunni. „Við erum mjög ánægðar með þessa göngu og teljum þetta vera virðingarvert framtak hjá félaginu og að meira þyrfti að gera af slíku. Það er nokkuð sérstakt að hafa stað sem þennan í miðri borg, og þó undar- legt megi teljast, þá sagðist maður sem við hittum áðan í göngunni, ekki hafa komið hingað fyrr, þótt búið hafi í nágrenninu í hartnær 40 ár.“ yfirleitt mjög lítið um þennan stað og margir leiti nokkuð langt yfir skammt, þeir aka úr bænum til að finna ró og kyrrð," sagði Guðbjörg. Guðbjörg Haraldsdóttir og Matthias Gunnarsson með börn sin tvö, Sæþór Ægi, Kristrúnu og Soffia Sigurðardóttir. Ekki langt frá þeim sátu þau Matthías Gunnarsson og Guðbjörg Haraldsdóttir með tvö börn sín, Kristrúnu, Sæþór og Soffía Sigurð- ardóttir. „Við fórum í þessa göngu til þess að fara eitthvað, en við sjáum alls ekki eftir að hafa farið. Það er ótrúlega margt sem við vissum ekki og höfum lært,“ sagði Matthías. „Ég held að fólk viti Tenging Stekkjarbakka og Reykjanesbrautar: Legg áherslu á að framkvæmd- in verði á verkáætlun í sumar Þær Jóhanna og Hlíf kváðust vera mjög ánægðar með gönguna sögðu að meira þyrfti að gera af sliku. og • • - segir Markús Orn Antonsson MARKÚS örn Antonsson borg- arfulltrúi spurðist fyrir um það á borgarstjórnarfundi fyrir nokkru, hvenær ráðgert væri að hefja framkvæmdir við tengingu Stekkjarbakka og Reykjanes- brautar hjá Breiðholti I. Einnig spurðist Markús fyrir um það, hvaða framkvæmdir við íþrótta- og útivistarsvæði, gerð gangstiga á mllli hverfa og lagningu gangstétta, væru á verkáætlun sumarsins. Markús sagði í samtali við Mbl., að tilefni fyrri liðar fyrirspurnar- innar væri það, að forseti borgar- stjórnar hefði í útvarpsþætti sagt að ekki væri gert ráð fyrir þessari framkvæmd við Stekkjarbakka og Reykjanesbraut. „Þetta kom mér á óvart vegna þess að ég hef tvívegis i borgarstjórn vakið máls á þeirri nauðsyn að þessi fram- kvæmd yrði tekin á dagskrá hjá borgaryfirvöldum og í hana ráðist hið fyrsta," sagði Markús. „Þetta hlaut góðar undirtektir á sínum tíma, en ekki var veitt fé til þessa í fjárhagsáætlun. í nóvember 1978 gerði ég þetta að umtalsefni í borgarstjórn, vegna þeirra vanda- mála sem skapast hafa í umferð- inni hjá Breiðholtshverfum, á gatnamótum Álfabakka og Reykjanesbrautar, þar sem um- ferðin verður nú að fara um. Á þessum gatnamótum hefur verið mjög mikil umferðarteppa, sér- staklega á morgnana. Eftir að um þetta var fjallað í borgarstjórn, greip lögreglan í taumana og reyndi að halda þarna uppi um- þannig að þarna horfir oft til stórvandræða. Nú er ætlunin að framkvæmda- ráð fjalli um þetta og ég legg áherslu á að það reyni að breyta eitthvað sínum áætlunum um fjárveitingar, þannig að þessi framkvæmd geti verið með í verkáætlun nú í sumar,“ sagði Markús. „Hvað síðari lið fyrirspurnar- innar varðar, þá rifjaði ég það upp, að í fyrra lögðu íbúar í Breiðholti III fram óskir um framkvæmdir í þessum efnum. Þessar óskir bárust borgarstjórn á síðasta sumri, en lítið varð úr framkvæmdum. Það er full þörf á að vekja athygli á því ófremdar- ástandi sem ríkir varðandi fram- kvæmdir í Breiðholtshverfunum og hversu mikill dráttur hefur orðið á nauðsynlegum umbótum í hverfinu, sagði Markús Örn Ant- onsson. Markús örn Antonsson ferðarstjórn, en hinsvegar vill stundum verða misbrestur á því,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.