Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Stuðningsmenn Al- berts gefa út blað ÚT ER komið fyrsta tölublað af blaðinu Áfram ísland sem gefið er út af stuðningsmónnum Alberts Guðmundssonar vegna forseta- kosninganna sem framundan eru. Umsjón með blaðinu hefur Ásgeir Hannes Eiríksson og ábyrgðar- maður er Indriði G. Þorsteinsson. Meðal efnis í blaðinu er grein um framboð Alberts Guðmunds- sonar, skýrt er frá kosningaferða- lögum hans í máli og myndum og fjöldi stuðningsmanna Alberts skrifar stuttar greinar í blaðið. Litmynd af Alberti Guðmunds- syni og konu hans, Brynhildi Jóhannsdóttur, prýðir forsíðu blaðsins. 4. tölublað 29. júní komið út 29. JÚNÍ, blað stuðningsmanna Péturs Thorsteinssonar, fjórða tölublað, er komið út. Á forsíðu blaðsins er ítarlegt viðtal við Pétur Thorsteinsson. Ásberg Sigurðsson skrifar grein sem ber yfirskriftina „Valið er vandalaust". Hákon Bjarnason skrifar greinina „Víðförull og víð- sýnn“. Margar fleiri greinar eru í 29. júní, og má þar nefna grein eftir Elfu Björk Gunnarsdóttur, Maríu Guðmundsdóttur, Eirík Pálsson, Zophanias Einarsson og fleiri. Þá eru einnig i blaði stuðningsmanna Péturs þrjár greinar eftir Arnór Hannibalsson. í ritnefnd 29. júní eiga sæti Arnór Hannibalsson (ábm.), Há- kon Bjarnason, Haraldur Blöndal, Guðrún Egilson, Sveinn Guðjóns- son og Hersteinn Pálsson. (Úr fréttatilkynningu) Guðlaugur á mörgum fundum Guðlaugur Þorvaldsson hélt fund í Vestmannaeyjum sl. fimmtudag ásamt stuðningsmönnum sínum. Var sá fundur fjölsóttur. Síðan voru haldnir fundir á Siglu- firði, vinnustaðir heimsóttir og stuttur útifundur haldinn. Þá heim- sóttu þau Guðlaugur og Kristín Blönduós, Skagaströnd og Sauðár- krók. Haldinn var fundur í sam- komuhúsinu Miklagarði í Varma- hlíð. Fundarstjóri á þeim fundi var Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrum menntamálaráðherra. Á ferðalaginu var einnig komið við í Grímsey, eyjan skoðuð og spjallað við heimamenn. Á Snæfellsnesi voru haldnir fund- ir í Stykkishólmi og Ólafsvík. Hell- issandur og Grundarfjörður voru einnig heimsóttir. 2. tölublað „Fram- boðs Guðlaugs44 er komið út Guðlaugs- skrifstofa í Breiðholti Út er komið 2. tölublað blaðs stuðningsmanna Guðlaugs Þorvaldssonar. Blaðið ber nafn- ið „Framboð Guðlaugs Þor- valdssonar" og er átta síður að stærð í venjulegu dagblaðs- brpti. í blaðinu eru stuttar greinar eftir stuðningsmenn Guðlaugs m.a. Gunnar Guðbjartsson formann stéttasambands bænda, Þóri Daníelsson fram- kvæmdastjóra Verkamanna- sambandsins, Benedikt Dav- íðsson formann Sambands byggingarmanna og Brynjólf Sigurðsson hagsýslustjóra ríkisins. Enn fremur eru í blaðinu leiðbeiningar til kjósenda um utankjörfundaratkvæða- greiðslu og stuttar frásagnir úr kosningastarfinu. Loks er þess að geta að í blaðinu er listi yfir trúnaðarmenn í öllum sýslum Iandsins og kosningaskrifstofur stuðningsmanna utan Reykja- víkur. STUÐNINGSMENN Guð- laugs Þorvaldssonar í Breið- holti hafa opnað skrifstofu að Gerðubergi 3—5. Skrifstofan verður opin daglega, en auk þess verður opið hús á mánudögum og fimmtudögum. Meðal þeirra, sem skipa framkvæmdaráð í Breiðholti eru: Sigmundur Stefánsson, Magnús Guðmundsson, Sig- rún Halldórsdóttir, Sveinn Fjeldsted og Valdimar Örn- ólfsson. María Guðmundsdótt- ir — Amæliskveðja Sextug varð í gær María Guð- mundsdóttir Hlaðbæ 14 í Árbæj- arhverfi. Á þessum merku tíma- mótum í lífi hennar er mér bæði ljúft og skylt að flytja henni og fjölskyldu hennar hugheilar heilla- og hamingjuóskir um leið og henni eru færðar beztu þakkir fyrir störfin hennar öll í þágu kirkju og safnaðar í Árbæjarsókn. Um 10 ára skeið hef ég átt við hana ánægjuríkt samstarf er aldrei hefur borið minnsta skugga á. Eigi er það ætlunin hér að rekja æviferil Maríu Guðmundsdóttur en hitt skyldi síst látið liggja í þagnargildi, hvílíkan hollvin kirkjan á í henni. Á hinu kirkju- lega sviði er hún fárra líki að dugnaði, dáð og tryggðum. Fyrir nærfellt 10 árum bar fundum okkar Maríu fyrst saman á heimili hennar í Hlaðbænum. Hún var þá í sóknarnefnd og eiginmaður hennar, Maris Guð- mundsson múrarameistari var formaður kirkjukórs safnaðarins, mikill áhugamaður um málefni kirkjunnar og drengur góður, en hann lést í janúarbyrjun 1979. Mér var því ákaflega mikið í mun, að þetta fórnfúsa og kirkjurækna fólk fengist til samstarfs við mig. Var mér kunnugt um það, að þau höfðu bæði starfað með fyrrver- andi sóknarpresti, en hugsast gat, að þau hygðust draga sig í hlé, þegar mannaskipti yrðu. Það var gæfa mín og ekki síður safnaðar- ins, að svo fór ekki og María á nú að baki óvenjulega mikið starf að vöxtum í Árbæjarsókn. Að öllum öðrum ólöstuðum hafa fáir lagt meira af mörkum til safnaðar- starfsins en hún og maður hennar, meðan hans naut við eða verið örlátari í kirkjunnar garð. Fjölmargir eru þeir kirkjulegir munirnir sem þau hafa gefið kirkjunni svo sem Biblía, sálma- bækur, messuklæði, númeratöflur, svo að dæmi séu nefnd og ótaldir þeir fjármunir, sem þau hafa lagt fram til safnaðarheimilisbygg- ingarinnar. Og margþætt eru störf Maríu fyrir söfnuðinn allt frá upphafi vega. Frá stofnun safnaðarins hefur hún átt sæti í sóknarnefnd og starfað þar af lifandi áhuga. Hún hefur verið ein aðaldriffjöðurin í starfi kirkjukórsins en sá kór mun vera allóvenjulegur að því leyti, að hann hefur lagt fram verulegar fjárupphæðir til hljóðfærakaupa fyrir söfnuðinn, bæði til kaupa á vönduðu pípuorgeli fyrir nokkrum árum og einnig til kaupa á píanói á síðastliðnum vetri. Hún hefur sótt fundi kirkju- kórasambanda, verið fulltrúi safnaðarins á fundum í Bindindis- ráði kristinna safnaða. Hún hefur sungið með kirkjukórnum við svo til allar guðsþjónustur og aðstoð- að við sunnudagaskólastarf í sókninni og sjaldan látið sig vanta þar. Frá vígslu safnaðarheimilis- ins fyrir rúmum tveimur árum hefur hún skreytt altari kirkjusal- arins fyrir messugerðir á helgum dögum svo og við aðrar kirkju- legar athafnir og jafnlangan tima annast ræstingu á Safnaðarheim- ilinu endurgjaldslaust og ætíð verið boðin og búin að leggja fram krafta fyrir söfnuðinn. I huga hennar hefur það verið sjálfsagð- ur hlutur ævinlega að bregðast þegar við kalli kirkjunnar og ef þetta er ekki að vera brennandi í andanum fyrir málefni Krists, þá eru víst ekki margir er hafa tekið þá hvatningu postulans alvarlega, að menn skuli ekki vera hálfvolgir í áhuganum. Síðasta dáð Maríu á sviði hins kirkjulega starfs er sú, að hún og börn hennar hafa gefið mikið fé til kaupa á kirkjuklukk- um er komið verður fyrir í klukku- turni Safnaðarheimilisins, sem nú er risinn í fulla hæð. Það sagði einhver um Maríu og störf hennar, að hún væri eins og heilt kvenfélag og víst er um það, að með ólíkindum er, hversu miklu hún hefur afkastað á sviði hins kirkjulega starfs og er þar vafa- laust hvati ást hennar á helgum málefnum. Það munar þá líka um Maríu, hvar sem hún leggur fram lið sitt, því að hún er dugnaðarforkur hinn mesti, ákveðin og einbeitt og hamhleypa að hverju sem hún gengur. Það hefur aldrei átt við hana að tvístíga eða tvínóna við híutina. Hún er hreinskiptin að eðlisfari og óhrædd við að láta það í ljósi, ef henni fellur eitthvað miður eða henni finnst slælega að verki staðið. Hennar hjartans mál hefur ver- ið það stærst að koma mætti upp viðunandi kirkjulegri aðstöðu í Árbæjarhverfi. Og vissulega hefur hún glaðst yfir því, sem áunnist hefur. En margt er enn ógjört í uppbyggingarstarfinu. Ennþá er eftir að reisa kirkjuna sjálfa Og ég veit, að María mun leggja því starfi 115 af sömu fórnfýsinni og atorkunni og einkennt hefur öll hennar störf fyrir kirkjuna fram að þessu. Það er lærdómsríkt að eignast samstarfsmenn á borð við Maríu. Kirkjan verður ekki á flæðiskeri stödd, meðan Guð kallar verka- menn eins og hana til starfa á akri sínum. Mætti söfnuður og kirkja fá að njóta sem lengst starfskrafta hennar og holls hugar. Lifðu heil. Guðmundur Þorsteinsson Albert í Vestmanna- eyjum UM ÞAÐ bil 400 manns hylltu Albert Guðmundsson forseta- frambjóðanda og Brynhildi Jó- hannsdóttur konu hans á fundi í Vestmannaeyjum sl. miðvikudags- kvöld. Þau hjón, Albert og Brynhildur, höfðu þá verið í tveggja daga heimsókn í Vestmannaeyjum, til þess að ræða við stuðningsmenn, heimsækja vinnustaði og stofnan- ir í Eyjum. Á miðvikudagskvöld var síðan haldinn fundur í samkomuhúsinu. Fundarstjóri var Ólafur Gránz. Eftirtaldir tóku til máls á fund- inum: Indriði G. Þorsteinsson rith., Kristjana Þorfinnsdóttir, Sigurgeir Ólafsson skipstjóri, Stefán Runólfsson forstjóri og Brynhildur Jóhannsdóttir. Þá tók til máls Albert Guð- mundsson alþingismaður, svaraði fyrirspurnum og flutti lokaorð. Stuðnings- menn Guðlaugs á ísafirði OPNUÐ hefur verið skrifstofa stuðningsmanna Guðlaugs Þor- valdssonar á Isafirði. Skrifstofan er til húsa að Hafnarstræti 2. Forstöðumaður skrifstofunnar er Þráinn Hallgrímsson. Fréttatilkynning. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.