Morgunblaðið - 19.06.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
II 10100 KL. 13-14
, FRÁ MÁNUDEGI
Keflavíkurflugvelli væri allt fullt
af kjarnorkusprengjum, er ef til
vill gætu eytt lífi stórs hluta
þjóðarinnar á nokkrum mínútum.
Nú heimtar þjóðin fuliar sannanir
fyrir þessum fullyrðingum komm-
anna, annars verða þeir berir að
hræsnisfullum lygaáróðri með
tæknibrögð nasista að fyrirmynd
Geti kommarnir ekki komið með
frambærileg rök um það, hvort
hér séu kjarnavopn eða ekki, eru
þeir með allt á hælunum og
enginn mun öfunda þá brókar-
lausa.
• Marklaus
heilaspuni
Að síðustu get ég svona í
framhjáhlaupi sagt þessum
„mæta hlúnkapus" á Lindargötu
39, að allt hans þrugl, er hann
beinir að mér í spurningaformi
um kjarnavopn, vanmátt varnar-
liðsins og úrsögn úr Nato er
marklaus heilaspuni hans sjálfs
og hefur þessi áróður margoft
verið hrakinn áður í ræðu og riti,
af fullábyrgum aðilum, sem gerst
mega um þessi mál vita.
Eg held að gömul þingvísa svari
best þessu áróðursþrugli manns-
ins á Lindargötunni:
„Fákænn maður fór af staö.
fáviskunnar stefndi í hlað.
Hitti fyrir sér hundavað.
hrinKaði skott og tók sér bað.M
• Stór stund
Helgi Lárusson skrifar:
„Nú nálgast óðum sú hin stóra
stund, er kosinn verður forseti
íslands. Áríðandi samningar, sem
íslendingar gera við aðrar þjóðir,
öðlast ekki gildi, nema forseti
íslands samþykki þá með undir-
skrift sinni. Lög frá Alþingi taka
heldur ekki gildi, fyrr en forsetinn
hefur samþykkt þau og undirritað.
Forsetinn hefur fullkominn til-
lögurétt í öllum málum, sem varða
heill og framgang þjóðarinnar, —
til ráðherra, embættismanna, sem
og allra annarra þjóðfélagsþegna.
Það er raunverulega mikið vald og
máttur bak við slíkar tillögur og
hugmyndir hins þjóðkjörna for-
seta.
• Pétur reynd-
ur og rökvís
Forsetinn þarf því að hafa
mikla þekkingu og reynslu á sviði
stjórnmála, bæði innan lands og
utan, ásamt leikni í margvíslegum
samningagerðum milli íslands og
fjölda annarra landa. Alla fram-
antalda kosti hefur Pétur J.
Thorsteinsson, ásamt fjölda ann-
arra eiginleika, sem ævistörf hans
fyrir Island sanna, sem hann
hefur ævinlega unnið á svo réttan
og rökvisan hátt.
• Til heilla
landi og lýð
Þegar litið er til þessara
kosninga eru yfirburðir Péturs svo
augljósir og gagngerir, að fáir eða
líklega engir aðrir núlifandi ís-
lendingar hafa svo víðtæka
reynslu og þekkingu. Þess vegna
kjósum vér hann með ánægju og í
fullu trausti þess, að þar með
veljum vér rétt í þetta æðsta
embætti þjóðarinnar, til heilla
landi voru og lýð.“
• Höfundarnafn
féll niður
Þau mistök urðu í þriðjudags-
þætti Velvakanda, að niður féll í
prentvinnslu nafn höfundar pist-
ilsins Sómi íslands, Bjartmars
Kristjánssonar. Velvakandi biður
Bjartmar afsökunar á mistökun-
um.
Þessir hringdu . . .
• Ekki lengur
i vafa
Ásgerður Halldórsdóttir,
Bollagörðum 1, hringdi og sagðist
ekki velkjast í vafa um það lengur
hvern hún kysi í forsetakosning-
unum 29. júní eftir að hafa heyrt í
frambjóðendunum í hljóðvarpinu
á sunnudaginn. — Pétur bar af
þeim öllum, en Albert var góður.
Útvarpið hefði fyrr mátt koma
með þennan þátt. Það hefði sparað
'mikla peninga og fyrirhöfn og
ekki eins margir verið óákveðnir
svona lengi.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Þessi staða kom upp í viðureign
þeirra Fisehdiek. V-Þýzkalandi,
og Litinskaju, Sovétríkjunum í
áskorendaeinvígjum kvenna í
sumar. Fischdiek hafði hvítt og
átti leik í stöðunni.
27. Re6+! - Íxe6 28. Rxí6 - Bxf6
29. IIxí6+ - Ke7 30. De5 - Bd5
31. Hg6 - Hcf8 32. Dxd5 og
svartur gafst upp. Sovézku skákk-
onurnar Gaprindashvili, Alex-
andrija, Litinskaja og Joseliani
komust áfram í undanúrslit ásk-
orendaein vígj anna.
Veljum
Sértilboó
Gisting - Matur
Félög starfshópar
pantid grillveizluna
tímanlega
Nú bjóðum við sólarhrings gistingu fynr
tvö í 2ja manna herbergi. /n/wfa//o
kvöldverður, morgunverður ai hlað-
borði og hádegisverður ásamt gistmgu.
Allt þetta kostar
aðeins
M. 39.000-
fyrlr tvo
Grillveizla
í Valhöll í kvöld
Nú bjóöum viö gestum okkar aö
steikja sjálfum.
Þiö veljiö ykkur T-bein, mörbráö eöa
rétti á teini og viö aöstoöum ykkur viö
eldunina.
Veizlan hefst kl. 20 og grilliö veröur
opiö til kl. 23.00.
Halli og Laddi veröa kokkar kvöldsins og
leikin veröa lög sem allir kunna og geta
sundiö meö.
Komiö viö í Valhöll
K Sími í
gegnum 02