Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1981 39 Minning: Sveinn Kjarval innanhússarkitekt Þegar ég fregnaði á dögunum, að Sveinn Kjarval hefði látið flytja sig hingað heim frá Dan- mörku til að deyja, varð mér hugsað mörg ár aftur í tímann, þegar stríð í Evrópu var yfirvof- andi og ég las í islenska heimilis- ritinu Vikunni stutta frásögn um ungan pilt sem nýkominn var til landsins frá Danmörku. Það var árið 1939 og þarna var nýleg mynd af honum í blaðinu. Hann var í dökkum jakkafötum og með hatt á höfði, sat í körfustól og var trékassi fyrir aftan stólinn, en málverk á veggjum. Pilturinn horfði til hliðar á ljósmyndarann, dálítið ólundarlega, eins og honum væri ekkert um þessa myndatöku, en í frásögninni um hann var eftirfarandi setning höfð eftir honm: Pabba mín er góður karl. Sá sem þannig talaði hét Sveinn Kjarval, fæddur í Danmörku og hafði alist þar upp, fyrir utan örfá ár sem hann hafði verið hér á íslandi í frumbernsku. Hann var sonur islensks listmálara, Jóhann- esar Kjarvals, en móðir hans var dönsk, Tove Merild rithöfundur, og hjá henni ólst hann upp í Danmörku, eftir að foreldrar hans slitu samvistir. Hann bar nafn afa síns, föður Jóhannesar, þessi Sveinn, sem nú var kominn til íslands, kallaður í íslenska viku- ritinu „dönskumælandi unglings- piltur". Hann var fæddur 1919 og hafði orðið tvítugur nokkrum dög- um áður en frásögnin birtist, en hún er ein af þeim fréttaklausum sem ég hef einhvernveginn ekki getað gleymt, ef til vill sökum þess að hér var sonur meistara Kjar- vals á ferðinni, en þótt mér yrði síðar hugsað til þess hvað orðið hefði um þennan unga mann sem kom til föðurtúna sinna árið 1939 og talaði dönsku eða bjagaða íslensku, þá hafði ég engar spurnir af honum og hélt helst að hann hefði farið aftur af landi brott eitthvað út í buskann. Hversvegna hefði hann átt að kunna við sig á þessu kalda landi, hann sem alist hafði upp í hlýrra loftslagi? Um það bil tíu eða tólf árum eftir að ég las fyrrnefnda frétta- klausu, sá ég hans getið aftur, og var hann þá orðinn lærður innan- hússarkitekt. Sjálfur kynntist ég honum svo nokkuð, þegar bróðir minn, Gísli Asmundsson, stofnaði ásamt honum og fleiri mönnum trésmíðaverkstæðið Nývirki. Hvar hafði nú þessi maður, sem ég las um í Vikunni 1939, verið allan þennan tíma sem liðinn var þang- að til ég heyrði hans aftur getið? Nú veit ég það. Hann hafði ílenst hér og kvongast árið 1940 Guð- rúnu, dóttur hjónanna Rósu og Helga Hjörvar, sem þá var þekkt- ur um allt ísland fyrir frábæran upplestur á sögum í útvarpi og einstaka umhyggju fyrir íslensku máli sem hann hafði mikla þekk- ingu á. Ekki veit ég hvort Helgi reyndi til þrautar að kenna tengdasyni sínum íslenska mál- fræði, en þegar ég kynntist Sveini, talaði hann enn nokkuð á sama hátt og í fréttaklausunni gömlu. Það var hinsvegar einkennilegt við íslensku Sveins, að þótt hann næði ekki tökum á beygingarkerfi málsins og hefði kynin ekki alltaf rétt, var framburðurinn og þó einkum málhreimurinn íslenskur, svo úr þessu urðu kostuleg skemmtilegheit og líkt og barns- lega heillandi á stundum. Að öðru leyti þótti mér Sveinn, þegar ég kynntist honum, afar sérkenni- legur maður, líkast því sem hann væri stiginn út úr einhverri íslendingasögunni, ekki fínlegur eins og á myndinni í Vikunni forðum, heldur stór vexti og svipmikill eins og við höfum stundum viljað imynda okkur for- feðurna, spaugsamur eins og Skarphéðinn Njálsson, en að lík- indum glaðlegri, hressilegri og kumpánlegri, því þannig konf hann mér jafnan fyrir sjónir. Þegar Sveinn kvæntist hérlend- is hálfu öðru ári eftir að hann steig á land úr gamla Gullfossi, mun hann hafa haft hér vinnu við húsgagnasmíði, því hann var lærður húsgagnasmiður, hafði lært hjá Jakob Kjær í Kaup- mannahöfn og er sagður hafa metið þann meistara sinn mjög mikils alla tíð. Eftir að stríði var lokið, fór Sveinn árið 1946 til frekara náms í Kaupmannahöfn og var þrjú ár í Kunsthaandværk- erskolen, útskrifaðist þaðan inn- anhússarkitekt 1949, kom þá aftur heim og settist hér að með fjöl- skyldu sína til frambúðar. Hann hóf undir eins störf hér í samræmi við menntun sína, og var fyrsta verkefnið innrétting Þjóðminja- safnsins sem þá var enn í smíðum. Síðan kom hann við sögu með innanhússþekkingu sína á mörg- um opinberum stöðum, svo sem í íþöku menntaskólans í Reykjavík, í bókhlöðunni á Bessastöðum, í kirkju Óháða safnaðarins, i safn- aðarheimili Langholtskirkju og víðar. Hann vann árum saman á vegum husameistara ríkisins (þá verk eins og altari í Skálholts- kirkju og innréttingar í nýbygg- ingu Landspítalans). En auk starfa sinna fyrir opinbera aðila teiknaði Sveinn innréttingar í ýmis veitingahús og verslanir, vann fyrir fjölmarga einstaklinga, skipulagði jafnvel heilu íbúðirnar út í ystu æsar, valdi húsgögnin og fann þeim stað. Frægasta veitingahúsið, sem Sveinn skipulagði innanhúss mun vera Naustið, þar sem honum tókst á aðdáunarverðan hátt að notfæra sér kunnáttu sína og hugkvæmni í gömlu húsi, og geta þeir sem þangað leggja leið sína nú á dögum hugleitt hve margir hafa fetað í fótspor meistarans hér í Reykjavík og víðar síðan hann var þarna að verki. En Sveinn teiknaði ekki aðeins inn- réttingar fyrir opinberar stofnan- ir og einstaklinga, þar sem stund- um gilti einkum að samræma hlutina eftir annarra óskum á tilteknum stað, heldur teiknaði hann líka mörg húsgögn sem smíðuð voru í Nývirki flest hver, fyrirtækinu sem bróðir minn, Sveinn og fleiri höfðu stofnað saman, en bróðir minn veitti forstöðu. Samstarf Sveins og bróð- ur míns var mjög náið í mörg ár, enda var Gísli einlægur aðdáandi Sveins og lagði mikla áherslu á að láta verkstæðið framleiða hús- gögn eftir teikningum hans og að kynna þau í von um að hægt mundi að fá íslendinga til að veita þeim verðskuldaða athygli og kaupa þau og helst, að hægt væri að vekja athygli á þeim erlendis einnig og jafnvel selja þau til útlanda. Voru verk eftir Svein á mörgum sýningum heima og er- lendis og vöktu jafnan athygli fyrir það hve nýstárleg þau voru og frumleg. En Nývirki var ungt fyrirtæki og blásnautt, enda róð- urinn þungur að kenna íslending- um að kaupa frumlega hluti, og þó náði einn ruggustóll sem Sveinn hafði upphaflega teiknað í sumar- bústað fyrir Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra, en varð seinna framleiddur hjá Ný- virki, gífurlegum vinsældum og var framleiddur í þúsundum ein- taka. Þegar ég lít á ljósmyndir af þeim hlutum sem smíðaðir voru í Nývirki eftir teikningum Sveins, og ég fylgdist raunar með þegar þeir voru smíðaðir og settir á sýningar fyrir mörgum árum, þá virðist mér að hann hafi verið mjög háður tískustefnu síns tíma, þegar abstraktlistin var í algleym- ingi, en hafði haft mikið hug- myndaflug og mikla listgáfu til að bera og þessvegna brotið af sér stefnu tímans, þar sem hann kemur til dæmis með boglínur sem voru að kalla bannfærðar í listaheiminum á þeim árum að minnsta kosti hérlendis. Einn af þeim hlutum Sveins, sem hvað mesta athygli hefur vakið erlend- is, er stóll sem sendur var á norræna listiðnaðarsýningu í Louvre-safninu í París árið 1958. Hefur mér verið tjáð, að nu hafi verið falast eftir eintaki af honum til geymslu á safninu ásamt öðr- um þeim húsmunum sem frumleg mega teljast í heiminum. Þegar Sveinn kom hingað til landsins árið 1949 eftir nám sitt í innanhússarkitektúr, voru hér- lendis örfáir menn sem höfðu próf í þeirri grein og enn færri sem höfðu hana að aðalstarfi, enda Islendingar óvanir að notfæra sér slíka kunnáttu. Með tilkomu Sveins varð hér á gerbreyting. Hann var bjartsýpismaður og ákafamaður og gerðist umsvifa- laust brautryðjandi á þessu sviði, nafn hans varð þekkt, hann kenndi í skólum hér, flutti fyrir- lestra um híbýlamenningu, varð einn af steofnendum Félags ís- lenskra húsgagnaarkitekta og starfaði af lífi og sál í því félagi um árabil, var auk þess nokkur ár í stjórn félags sem nefndist Hús- búnaður og var stofnað 1960, en að því stóðu ýmis félög í húsgagna- iðnaði, og hef ég fyrir satt, að þar hafi Sveinn einkum beitt sér fyrir þeirri draumsjón að vinna að samstarfi íslenskra fyrirtækja í húsgagnaiðnaði. Eftir að Sveinn hafði verið búsettur á íslandi í mörg ár og þau hjón alið hér upp börn sín, fluttust þau búferlum til Dan- merkur, þar sem Sveinn starfaði við innanhússarkitektúr og rak leirmunagerð og verslun á Jót- landi ásamt konu sinni og dóttur. Ekki frétti ég mikið af honum frá því hann fór héðan með fjölskyld- una fyrr en ég hitti hann dag einn á förnum vegi, þá hingað kominn frá Danmörku gestur að halda sýningu á allnokkrum verkum eftir föður sinn, einkanlega göml- um teikningum. Þá fannst mér á honum, að hann væri hálfgramur íslendingum fyrir það, að þeir hefðu ekki tekið sýningunni nógu vel, og má vera rétt, en engu að síður talaði hann vinsamlega við mig og var glaðlegur og hressi- legur að vanda. Þetta atvik hafði nokkur áhrif á mig, þar sem ég vissi að hann var fluttur brott af landinu til annars ættlands síns, og ég hugsaði með mér að hann hefði fengið nóg af þessu kalda landi á útkjálka menningarinnar, þar sem hann hafði um langt skeið reynt að vekja fólk til umhugsunar um það sem hann hafði lært varðandi híbýli og húsgögn, en orðið að gjalda fámennis þjóðarinnar, van- kunnáttu hennar og þekkingar- leysis á þeim sviðum. Þegar ég nú á dögum talaði við bróður minn um það sem vakið hafði furðu mína, að Sveinn, sem svo lengi hafði verið búsettur í Danmörku, skyldi að lokum óska þess dauðsjúkur að vera fluttur til Islands, þá kom það honum ekki eins á óvart og mér, því hann kvaðst aldrei hafa þekkt mann sem hafi tekið eins miklu ástfóstri við Island og Sveinn gerði, það hafi verið hans líf og yndi að ferðast um landið, stunda lax- og silungsveiðar í ám og vötnum og njóta íslenskrar náttúru. Ein- hverntíma eftir að hann fluttist búferlum til Danmerkur hafði hann skrifað veiðifélögum sínum hér á íslandi, að hann hefði dag einn setið við einhverja lækjar- sprænu í Danmörku og notið þess að horfa á rennandi vatnið og látið sig dreyma um kristalstæra á heima á íslandi. Ég man að vísu sjálfur eftir glaðværð Sveins og áhuga, þegar ég var með honum og bróður mínum á ferð um landið, en hann þekkti Svein miklu betur en ég og eru ótaldar ferðirnar sem þeir fóru saman um landið og voru þá oft að veiða lax eða silung. En Sveinn var í rauninni svo hug- fanginn af öllu sem íslenskt var að gamlir og af sér gengnir hlutir íslenskir voru perlur í augum hans og hann gekk jafnvel svo langt að hafa gaman af því að stífa sviða- kjamma úr hnefa frammi fyrir steini lostnum ameríkönum sem vanir voru að fá mat sinn upp úr dósum, en Sveinn ekkert hrifinn af slíkri verksmiðjuframleiðslu, hafði meira dálæti á gamaldags íslensku súrmeti, sviðum, hangi- kjöti og fleira slíku. Hann var í sannleika sagt eins og stiginn út úr einhverri íslendingasögu, líkt og samgróinn landinu. Ég fór að skilja hversvegna hann var kom- inn aftur. En þegar ég til viðbótar heyrði eftirfarandi sögu, skildi ég það að lokum til fulls: Eins og fyrr frá segir var Sveinn hér á íslandi í frum- bernsku, mun ekki hafa verið byrjaður í barnaskóla þegar farið var með hann til Danmerkur, þar sem hann hóf skólagöngu sína. Þá gerðist það einhverju sinni, þegar hann var í barnaskóla, að börnin áttu frí í vændum og kennarinn hugðist kanna hvað þau langaði helst til að gera í fríinu. Sjálfsagt var það misjafnt, hvað börnin sögðu, en' Sveinn Kjarval svaraði: Ég vil fara heim til íslands. Þá sagði kennarinn: En þú átt heima hér. Þú ert danskur. Nei, ég á heima á Islandi, svaraði Sveinn Kjarval. Ég er íslendingur. Jón Óskar. Kveðja frá veiðifélögum Sveinn Kjarval er lagður af stað yfir móðuna miklu. Við slíka harmafregn hrannast upp minningar með slíkum leift- urhraða að það er eins og margra ára kynni framkallist í einni sjónhending, hvert atvikið rekur annað eins og perlur á bandi. Slíkur persónuleiki sem Sveinn var grópast svo djúpt í vitundina að aldrei verður af máð. Fyrstu kynnin voru við stofnun veiðiklúbbsins okkar um haustið 1959. Kom þá glöggiega í ljós hve Sveinn var mikill félagshyggju- maður. Alltaf var hann tilbúinn til skrafs og ráðagerða um fram- tíðaráform klúbbsins og alltaf var hann tilbúinn til að þeysast um landið þvert og endilangt til könn- unar á aðstöðu fyrir okkur. Ég minnist margra ferða í Borgar- fjörð bæði sumar og vetur, nokk- urra ferða norður í land, vestur á Barðaströnd og austur í Skafta- fellssýslu, þar sem hann komst í fyrsta skipti á æskustöðvar föður síns, Jóhannesar Sveinssonar Kjarval. Stöndum við félagarnir í mikilli þakkarskuld við Svein vegna þessa brautryðjandastarfs, minnugir þess lífsviðhorfs hans að „það skal vanda sem lengi á að standa“. Á gleðistundum var Sveinn hrókur alls fagnaðar. Við veiðifé- lagarnir minnumst nokkurra árs- hátíða sem haldnar voru á vegum klúbbsins fyrstu árin. Fastur liður á þessum skemmtunum var bögglauppboð. Uppboðshaldari var alltaf sjálfkjörinn, þar kom enginn annar til greina en Sveinn, sakir gjörvuleika og fádæma radd- styrks. Ógleymanlegt er það atvik er skeði á árshátíð hjá okkur í Golfskálanum 1964 er Sveini fannst uppboðið ganga helst til stirðlega, að hann þrífur af sér annan skóinn og notaði sem upp- boðshamar. Þannig var Sveinn, hann gat alltaf náð athyglinni ef þörf krafði og átti auðvelt með að vera í sviðsljósinu. Það var árið 1961, að við vorum að koma úr Laxá í Aðaldal þar sem Sveinn hafði fengið sinn Maríulax, sællar minningar, og ætluðum suður Kjöl. Þegar komið var upp á Auðkúluheiði og landið birtist Sveini í sinni mestu nekt, þá hrópar hann: Stopp, stopp, leyfið mér að fara hér út. Hann krýpur þar við stóran stein sem þakinn var marglitum mosaskófum, starir sem bergnum- inn drykklanga stund og hrópar siðan hástöfum. Þar fékk hin hljómmikla rödd notið sín og ég heyri orðin enn, — grjót — meira grjót, og ennþá meira grjót. Það er margur veggurinn og arinninn sem Sveinn hefur hann- að úr íslensku grjóti, er bera honum ótvírætt merki um list- ræna hæfileika. Þannig tókst hon- um eins og föður sínum að opna augu fólks fyrir fegurð landsins, þótt á annan hátt væri. Árið 1966 var okkur Sveini falið að útvega húsgögn í veiðihúsið við Laxá í Leirársveit, en Sveinn var bæði lærður húsgagnasmiður og arkitekt. Ekkert fannst okkur við hæfi af því sem hér var þá á markaðnum, svo það var ákveðið að ganga á vit dverganna í Hafn- arfirði og fá sérsmíðuð húsgögn. Á leiðinni suður spyr ég Svein um teikningarnar. „Þær eru hér uppi,“ segir hann og bendir á heilabúið. Þegar suður í Dverg er komið tekur Sveinn til við að teikna á allt sem tiltækt var, brúnan um- búðapappír, krossviðsplötur o.fl. og biður síðan um verkfæri. Þá var Sveinn í „essinu" sínu og handlék sögina og hefilinn eins og sá sem valdið hefur og vissuna um góðan árangur. Ekki veit ég hvort Sveinn gerði síðar teikningar af þessum hús- gögnum, en það hlýtur að vera verðugt verkefni húsgagnahönn- uða eða annarra að halda slíku til haga, því þarna er ein af sérstæð- ari perlum í íslenskri húsgagna- gerð. Það er eins og persónuleiki Sveins speglist í þessum stólum, traust og stórskorið byggingariag sem haldið er saman af stórum svörtum boltum, og brennd furan í sterklegum örmunum býður manni faðminn. Skaphöfn Sveins og atgervi var í fullkomnu samræmi. Hann var yfir allan smáborgarahátt hafinn og tók helst ekki þátt í karpi um keisarans skegg. Áldrei heyrði ég hann hallmæla verkum kollega sinna, sennilega haft þessi spak- mæli föður síns að leiðarljósi: „LastaAu okkcrt en lofaAu fátt En sé eitthvaA fuilkomiA segAu b»A hátt." Ég minnist ferðar er við fórum saman í Vatnsdalsá 1962. Guðrún, kona Sveins, dóttir hins mæta manns Helga Hjörvar, var með í ferðinni. Eitt kvöldið tókum við Guðrún tal saman og fórum að ræða um „daginn og veginn“. Segir Guðrún þá þessa ógleyman- legu setningu: „Ég á fimm börn og einn stóran strák.“ Við nánari kynni af Sveini urðu mér þessi orð skiljanlegri og ekki síst við þá ákvörðun Sveins að selja hús þeirra á Seltjarnarnesi er Sætún heitir. Þar höfðu þau hreiðrað vel um sig og þar fannst mér þeim líða vel. En það er nú svo með stóra stráka, að þeir. þurfa stóra leik- velli og hólminn okkar var of lítill fyrir Svein Kjarval og hans stóru hugmyndir. Þau fluttu til Danmerkur 1969. Þar held ég að Sveinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að á stóra leikvellinum er samkeppnin jafn- vel enn meiri, leikreglur strangari og einstaklingurinn einangraðri. Það var því eðlileg hinsta ósk að fá augum litið fósturjörðina og vera hér til moldar borinn af vinum. Sveinn Kjarval er fyrsti kvist- urinn er fellur af þeim meiði, er hann sjálfur sáði til fyrir 22 árum og hlúði að á uppvaxtarárunum. Við félagarnir í veiðiklúbbnum minnumst hans með virðingu og vottum elskulegri eiginkonu, börn- um, tengdabörnum og barnabörn- um okkar dýpstu samúð. Rafn Ilafnfjörð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.