Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 41 fólk f fréttum Sigur- dansinn + Eftir sigur sinn í al- þjóðlegu meistarakeppn- inni í París fór tennis- kóngurinn Björn Borg ásamt ektakvinnu sinni, Maríönnu Simonescu, á vertshúsið „Régine" þar í borg. Þetta er ekki venja hans, því yfirleitt flýtir hann sér heim á hótelher- bergið sitt að aflokinni keppni. Hann kærir sig lítt um skarkala heimsins og haft er fyrir satt að hann kæri sig aðeins um að hafa konu sína og þjálfara, Lennart Bergel- in, í návist sinni. Kjóll frúarinnar hafði og vakið athygli nærstaddra á þessum fræga veitinga- og skemmtistað. Henry Fonda heiðraður + „Kvikmyndaakademían" svokallaða mun í næsta mánuði veita „Óskarsverðlaunin". Leikarinn Henry Fonda mun þá hljóta „heiðursóskar" fyrir framlag sitt til kvikmyndaiðnaðarins. Nýjasta mynd hans „The Empire Strikes Back“ mun einnig hljóta verölaun. Fonda, sem nú er 75 ára, hóf feril sinn þegar hann lék í myndinni „Farmer Takes a Wife“ árið 1935. Síðan þá hefur hann leikið í meira en 90 kvikmyndum, mörgum sígildum eins og „Þrúgur reiðinnar" og „Stríð og friður". Engin stöðnun + Ameríski grínkarlinn Bob Hope er líklegast vinsælasta sjónvarpsstjarnan frá upphafi. Hann er enn þann dag í dag jafn vinsæll út um allan heim og hann var fyrir 30 árum. í sjónvarpsþáttum sinum er Hope jafnan einn á sviðinu en þrátt fyrir það endurtekur hann sig aldrei. Sjálfur segist hann ætíð taka fyrir mál sem eru í brennidepli og því geti hann aldrei tekið gamalt efni og notað það aftur. „I hvert skipti sem ég fer fram á sviðið finnst mér það ný þrekraun, sem ég verð að leysa — og mér finnst það stórkostlega gam- an,“ segir þessi sívinsæla sjón- varpsstjarna. Það er því greinilega engin stöðnun í vændum í þessum herbúðum. Myndin var tekin af Hope um daginn þegar hann fékk sér einn ís með dýfu. Reykjahlíðarætt Munum samkomuna í Sigtúni sunnudaginn 22. febr. kl. 3. Dagskrá og kaffidrykkja. Þátttakendur í boröhaldi um kvöldið kl. 8 hringi í síma 85073 kl. 4—6 í dag Undirbúningsnefnd. BINGÓ Bingó í Templarahöllinni, Eiríksgötu 5, kl. 8.30 í kvöld. 18 umferðir og 4 horn. Verðmæti vinninga 4 þúsund. Sími 20010. ARSHATIÐ Hin árlega árshátíö Vopnfirðingafélgsins í Reykjavík veröur haldin í Lindarbæ föstudaginn 20. febrúar nk. og hefst kl. 19.30. Húsiö opnað kl. 19. Þorramatur Skemmtiatriði Dans Aögöngumiöar seldir í verzluninni Verinu Njálsgötu 86 miövikudag og fimmtudag. Stjórnin. Birgðastýring Stjórnunarfélag íslands eftir til námskeiðs um birgðastýringu og verður þaö haldið að Hótel Esju dagana 25.—27. febrúar frá kl. 15—19 hvern dag. Á námskeiðinu er fjallað um birgðastýringu í verslun og iönaöi. Námskeiðið hentar vel þeim sem hafa birgðahald og vilja kynnast aðferðum til þess að forðast að binda of mikið fjármagn í birgðum. Það eru t.d. forstööumenn meðalstórra og lítilla verslunar- og iönfyrirtækja. Hjá stærri fyrirtækjum innkaupastjórar, deildarstjórar og verkstjórar er hafa birgðahald með höndum. Leiðbeinendur verða Halldór Friðgeirsson verkfræðingur og Pétur K. Maack vélaverkfræðingur. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. i_____________________________________j ASTJÓRNUNARFÉUG ÍSIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930 jazzBQLLetXskóLi búpu 2 S d d Suðurveri StigahlíÖ 45, sími 83730. Bolholti 6, sími 36645. Nýtt namskeiö hefst 23. febrúar. ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. ★ Morgun-, dag- og kvöldtímar. ★ Tímar tvisvar og fjórum sinnum í viku. ★ Sérstakur matarkúr fyrir þær sem eru í megrun. ★ Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk. ★ Sturtur — sauna — tæki — Ijós. ★ Hjá okkur skín sólin allan daginn — alla daga. ■ nýja sólin er í Bolholti. ★ Kennsla fer fram á báöum stöðum. ★ Upplýsingar og innritun í símum 83730 Suðurver og 36645 Bolholt. L njpg np>is3QQTiogzzor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.