Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 Verður ófaglært fólk ráðið í stöður fóstra? Við tökum því áreið- anlega ekki þegjandi Steinunn Steinþórsdóttir og Margrét Jónsdóttir. að foreldrar stæðu margir með fóstrum í kjarabaráttu þeirra og þeir myndu ekki sætta sig við að eingöngu yrði ráðið ófaglært fólk í þeirra stað. Að lokum sögðust þær vona að samið yrði við fóstrur án þess að grípa þyrfti til sérstakra aðgerða. Þær Steinunn Steinþórsdóttir og Margrét Jónsdóttir við leik- skólann Kópahvoll voru að ljúka starfsdegi þegar Morgunblaðs- menn bar að. „Við getum trúlega ósköp lítið gert ef ráðuneytið veitir heimild til að ráðið verði ófaglært fólk í okkar stað,“ sagði Steinunn, „Við höfum ekki tru á því að það verði en maður veit auðvitað ekkert um það.“ „Ég held að samstaða fóstra í þessu máli sé svo mikil að sigur hljóti að nást að lokum," sagði Margrét. „Foreldrar hafa líka sýnt almennan stuðning við kröf- ur okkar og þeir hafa hafið undirskriftarsafnanir okkur til stuðnings. Þá hefur Félag ein- stæðra foreldra lýst stuðningi við kröfur okkar og Félag þroska- þjálfara lýst því yfir að félags- menn þess muni ekki sækja um stöður okkar. Það er þannig langt því frá að við stöndum einar í baráttunni.“ FÓSTRUR í Kópavogi og á Ak- ur.yri munu ekki mæta ti) vinnu á mánudag verði ekkert aðhafst i kjaramálum þeirra en þær hafa sem kunnugt er sagt upp störf- um frá og með 20. þ.m. Eins og komið hefur fram i fréttum hefur bæjarráð Kópavogs haldið nokkra fundi með fóstrum, þar sem þeim hafa verið boðnar kjarabætur gegn því að þær dragi uppsagnir sinar til baka. Fóstrur hafa hafnað þessum um- leitunum þar sem ekki hefur verið orðið við óskum þeirra um að störf fóstra verði metin i ákveðinn launaflokk og þeim gefin kostur á að hækka i launaflokkum eftir starfsaldri. Bæjarráð Kópavogs hélt siðast fund með fóstrum á mánudag en þar náðist ekki samkomulag. Er þvi ekki annað fyrirsjáanlegt en að fóstrur í Kópavogi muni ganga úr störfum sinum á mánu- dag, en stöðurnar hafa þegar verið auglýstar lausar til um- sóknar. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins heimsótti þrjár dagvistarstofnanir í Kópavogi nú fyrir helgina og ræddu við fóstrur um hvað væri framundan hjá þeim. í leikskólanum Kópahvoli var rætt við þær Valgerði Knúts- dóttur og Emilíu Júlíusdóttur og voru þær fyrst spurðar hvað fóstrur hyggðust gera ef ráðið yrði ófagiært fólk í þeirra stað. „Til þess yrði bæjarráð að fá heimild frá menntamálaráðu- Emilia Júliusdóttir og Valgerður Knútsdóttir Ljósm. Krislján. neytinu en við teljum mjög hæpið að hún fáist við þessar kringum- stæður", sagði Valgerður. „Við höfum ekki ákveðið neinar sér- stakar aðgerðir ef til þess kemur launaflokk eftir 12 ár. Það er mjög erfitt fyrir fóstrur að una við þetta, þegar fólk í hliðstæðum starfshópum hækkar í launum með vaxandi starfsaldri þá standa Marianna Einarsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. — en við tökum því áreiðanlega ekki þegjandi. Ég tel hiklaust að þær kröfur, sem við höfum sett fram, séu fyllilega réttmætar — þær felast í því að starf okkar verði metið í ákveðinn launaflokk og hækki í launaflokkum eftir starfsaldri. Grunnskólakennarar hafa t.d. svipaða grunnmenntun og við og vinna svipað starf — það er því ekki óeðlilegt að við miðum okkur við þá. Þeir byrja í 13. launaflokki, fara í 14. eftir fjögur ár og 15. eftir sex ár. Við stöndum hinsvegar í stað í 12. launaflokki hversu lengi sem við erum í starfi, — hækkum að vísu um einn þær í stað.“ „Það er mikils virði að manna- skipti séu sem minnst á svona stofnunum," sagði Emilía. „Tíð mannaskipti koma illa niður á börnum því það tekur þau nokk- urn tíma að venjast nýju starfs- fólki.“ Maríanna Einarsdóttir og Þór- unn Sigurðardóttir fóstrur á dag- heimilinu við Furugrund höfðu ekki trú á að ófaglært fólk yrði ráðið í stöður fóstra. „Það er alger samstaða um þessar kröfur meðal fóstra hér í Kópavogi og við ætlum að koma þeim fram,“ sagði Þórunn og Maríanna bætti því við til minningar um hjónin Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánsson í Háskólabíói í kvöld kl. 20.30. Kl. 18.00 í kvöld 19. febrúar HÁTÍ Ð ARKV ÖLDVERÐUR Skelfisksalat Tosca Heilsteiktur nautahryggur Opera Verð kr. 135- \ Kaffi Aida , 'sL Verð kr. 25- 1 Einnig bendum við á okkar ^ - fjölbreytta sérréttamatseðil. Óperusöngvararnir Ólöf K. Harðardóttir og Garðar Cortes flytja Vínartónlist og taka lagið meðan á borðhaldi stendur við undirleik dr. Erik Werba. Eftir hljómleika heldur gleðin áfram í Tuttugu einsöngvarar: Anna Júlíana Sveinsdóttir, Elín Sigurvinsdóttir, Elísabet Erlingsdóttir, Friöbjörn G. Jónsson, Garðar Cortes, Guðmundur Jónsson, Guörún Tómasdóttir, Halldór Vilhelmsson, Hákon Oddgeirsson, Ingveldur Hjaltested, John Speight, Kristinn Hallsson, Kristinn Sigmundsson, Magnús Jónsson, Már Magnússon, Olöf Kolbrún Harðardóttir, Rut L. Magnússon, Sólveig M. Björling og Þuríöur Pálsdóttir. Kór íslenzku óperunnar. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjórnandi: Robin Stapleton. ■ ■■k ■ r I ■ / ■ /■ // ■ m / ATTHAGASAL Opiö hús fyrir listafólkið og áheyrendur Dansaö til kl. 01.00. Borðapantanir í síma 25033. Samkvæmisklæðnaður Stofntónleikar j íslenzka óperan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.