Morgunblaðið - 02.03.1967, Page 32
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1967
Báts saknað
Hafin leit að Freyju frá Súðavík
í GÆRKVELDI var auglýst
eftir vb. Freyju frú Súðavík,
sem er 24 smálestir á stærð.
Hafði þá ekkert spurzt til
bátsins frá því kl. 16:30 í gær,
en hann var þá staddur í
minni ísafjarðardjúps á leið
til hafnar. Vont veður var á
þessum slóðum, hvassviðri og
bylur. Bátar voru byrjaðir að
leita Freyju í gær. Á bátnum
eru 4 menn. — Gera menn
sér vonir um, að talstöð báts-
ins hafi bilað og hann leitað
vars.
Óska eftSr fram-
burði íslendings
í máli Nielsens
Kaupmannahöfn, 1. marz.
Einkaskeyti til Mlbl.
EINN af fyrri viðskiptavinum
Elmo Nielsens á íslandi, Páll
Jónasson framkvæmdastjóri í
Reykjavík, hefur veriS beðinn
um að koma utan til Kaupmanna
hafnar til að bera vitni fyrir
kviðdómi í málinu gegn Nielsen.
Þótt Páli beri ekki skylda til að
mæta sem vitni þar sem hann
er erlendur rikisborgari, er von-
azt eftir aðstoð hans í málinu.
í réttarhöldunum hefur Niel-
sen verið sakaður um svik í
sambandi við viðskipti hans við
Pál Jónasson. Samdi Páll við
Nielsen um kaup á loftþiljum í
stórhýsi í Reykjavik. Yfirtók
Elmodan, hlutafélag eiginkonu
Nielsens, samninginn, þar sem
Nielsen sjálfur vildi ekki að
fyrirtæki hans, Hovedstadens
Möblefabrik, veitti kaupandan-
um hugsanlegan greiðslufrest. Að
sögn Nielsens hafði Páll Jónas-
son um tíma 400 þúsund
(danskra) króna lánstraust hjá
Hovedstadens Möbelfabrik, og
þegar samningurinn var gerður
fól Nielsen þessvegna hlutafé-
lagi konu sinnar að annast hann.
Félagið Elmodan hagnaðist um
10 þúsund krónur á þessum við-
skiptum, sem ákæruvaldið telur
að hefðu átt að renna til Hoved-
stadens Möbelfabrik. Því mót-
mælti Elmo Nielsen.
Réttarhöldin í máli Nielsens er
nú orðin það umfangsmikil, að
ekki verður unnt að ljúka þeim
á hálfum mánuði eins og ráðgert
hafði verið. Erfitt verður að
semja nýja tímaáætlun fyrir
réttarhöldin, því boða verðúr á
ný um 40 vitni í málinu, og
koma sum þeirra langt að frá
Fjóni og Jótlandi.
Rytgaard.
Tillaga í IMorðurlandaráði:
íslendingum auö-
veldað fagskðlanám
FRÉTTASTOFUFREGN frá'«>
N.T.B. hermir, að komið hafi
fram tillaga í Norðurlandaráði,
að ríkisstjórnir Noregs, Svíþjóð-
ar, Danmerkur og Finnlands geri
íslenzku æskufólki kleift að
stunda nám í fagskólum þessara
landa í þeim greinum, sem ekki
er aðstaða til að afla sér mennt-
unar í hérlendis.
Segir í skeytinu að mjög brýn
þörf sé á Islandi fyrir fagskóla-
menntun, s. s. menntun fólks er
stundar aðstoðarmannsstörf á til
raunastofum, fyrir flugvirkja,
bátasmíði og vinnuþjálfun.
Veðna þrengsla í skólum á
Norðurlöndum hefur verið erfitt
íslenzkum námsmönnum að
komast að við þessa fagskóla,
og því á að gera tilraun ti lað
íslendingar ásamt æskufólki
Norðurlanda verði jafnréttháir
til námsvistar.
Að endingu segir í skeytinu
að ekki muni verða um mikinn
fjölda íslenzkra ungmenna að
ræða.
Að því er Friðjón Sigurðs-
son, skrifstofustjóri Alþingis,
tjáði Mbl. eru flutningsmenn
þessarar tillögu þa-u: Georg Beck
lund frá Finnlandi, Dagmar Ran-
mark frá Svíþjóð, Berta Rogner-
rund frá Noregi og Sylvi Sitan-
en frá Finnlandi.
Frá athöfninni í Lowestoft, er hafransóknarskipinu Árna Friðrikssyni var hleypt af stokkun-
um. T.v. Jakob Jakobsson fiski fræðingur, kona hans, Jóhanna G unnbjörnsdóttir, er gaf skipinu
nafn, og Prouten fluutrúi Brokke Marine skipasmiðastöðvarinnar.
Nýja hafrannsóknarskipinu
stokkunum
hleypt af
NÝJA hafrannsóknarskipinu,
Árna Friðrikssyni, var hleypt
af stokkunum í Lowestoft í
Englandi í gær. Veður var
mjög gott er athöfnin fór
fram, sólskin og blíða. Jó-
hanna Gunnbjörnsdóttir, eig-
inkona Jakobs Jakobssonar,
fiskifræðings, gaf skipinu
nafn, en viðstaddir af Islands
i gær
Datt niður í skip
SLYS varð um borð í togaranum
Nartfa, þar sem 'hann lá við
bryggju í Hafnarfirði í fyrrinótt
um kl. 4. Maður féll niður á
dekk og meiddist eitthvað, því
að hann var fluttur í Slysavarð-
stofuna.
Samkvæmt upplýsingum ’ög-
reglunnar í Hafnarfirði liggur
ekki ljóst fyrir, hvort maðurinn
datt af bryggjunni niður í tog-
arann eða af bátadekkinu. Tölu
vert fall var af bryggjunni í tog
arann, því að lágsjávað var.
hálfu voru m.a. Eggert G. Þor
steinsson, sjávarútvegsmála-
ráðherra og Guðmundur í.
Guðmundsson, ambassador.
Smíði skipsins fram að þessu
hefur heldur verið á undan áætl-
un og verður það væntanlega af-
hent í júní eða júlí. Það er 41.5
m á lengd en 9.75 m á breidd.
Skipið er byggt að miklu leyti
að fyrirsögn íslenzkra aðila, og
verður sérstaklega vandað og vel
fallið til síns starfa.
Skipið er mjög vel búið tækj-
Framhald á bls. 31.
Krap stöðvaði Stein-
grimsstöð i 10 klst.
MIKIL krapmyndun í Þingvalla
vatni stíflaði inntaksþróna í
Steingrímsstöð í tíu klukkustund
ir í fyrrinótt .Ekki var þetta til
neins trafala þar sem nægilegt
rafmagn fékks án stöðvarinnar.
Að vísu var var gripið til
skömmtunar í smátíma um morg
Fyrirspurnatími á Alþingi í gær:
Ekki ríkisstyrkur til
en önnur fyrirgreiðsla ■
Bjarni Benediktsson
BJARNI Benediktsson, for-
sætisráðherra, svaraði í Sam-
einuðu þingi í gær, fyrir-
spurn frá Einari Olgeirssyni
þess efnis, hver árangur hefði
orðið af könnum á hag og
stöðu íslenzkra dagblaða, sem
ríkisstjórnin hefði ákveðið
að láta fram fara fyrir ári.
Forsætisráðherra sagði að
aldrei hefði verið ákveðið að
slík könnun færi fram, hins
vegar hefði verið athugað,
hvort þau úrræði, sem önnur
lönd hefðu gripið til í þess-
um efnum ættu við hér á
landi.
Um það hvort ríkisstjórnin
hyggðist gera ráðstafanir til
aðstoðar dagblöðunum sagði
dagblaða
huguð
forsætisráðherra: „Ríkis-
stjórnin hefur ekki, a.m.k. að
svo komnu ákveðið, að nein
heildarlöggjöf verði sett, eða
frv. þess efnis horið fram.
Hitt er til athugunar, en þó
ekki til hlítar ákveðið, hvort
unnt sé að létta af blöðunum
vissum útgjöldum, þannig að
gera þeim auðveldara um út-
gáfu en verið hefur og þann-
ið að slíkt verði með sann-
girni gert, án þess að á aðra
sé hallað, svo og að dagblöð-
in fái greiðslur af hálfu ríkis-
og ríkisstofnana fyrir þjón-
ustu, sem þau hafa innt af
hendi í þágu þessara aðila,
hingað til ókeypis en eðlilegt
Frambald á bls. 31.
uninn en ekki svo að til óþæg-
inda væri. Þegar Mbl. hafði sam
band við Ingólf Ágústsson, hjá
Landsvirkjun, í gærdag var krap
ið mikið farið að minnka í inn-
taksþrónni og bjóst hann við að
allt kæmist í samt lag með kvöld
inu.
Krapamyndun var þá öll hæit
þar sem Þingvaliavatn er orðið
'ísi lagt.
Taka aðeins á
móti loðnu af
Eyjabátum
Vestmannaeyjum, 1. raz.
MJÖG mikil loðnuveiði var enn
í dag hér austan við Eyjar, aðal-
lega á veiðisvæðinu frá Pétursey
austur undir Vík í Mýrdal. Fékk
fjöldi báta þar ágætan afla.
Hér í Vestmannaeyjum er nú
svo komið, að verksmiðj urnar
eru hættar að takaá móti loðnu,
nema af þeim bátum, sem gerðir
eru út héðan. Hefur í dag verið
landað um 2 þús. tonnum af
loðnu hér hjá verksmiðjunum.
— Björn.
Hafnarfjörður
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Hafn
arfirði halda sameiginlegt spila-
kvöld, í kvöld fimmtudaginn 2.
marz kl. 8:30 í Sjálfstæðishús-
inu í Hafnarfirði. Veitt verða
kvöldverðlaun.
Sjáifstæðisfólk er hvatt til að
fjölmenna.