Morgunblaðið - 09.07.1975, Page 1
32 SIÐUR
152. tbl. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 9. JULl 1975
Prentsmiðja MorgunblaSsins.
Rabin og Kissinger
funda á laugardag
Jerúsalem, Kairó, Berlín
8. júlí AP — Reuter — NTB
ISRAELSKA utanríkísráðuneytið
skýrði frá þvf I dag, að nokkuð
hefði að undanförnu miðað í sam-
komulagsátt f deilu Israela og
Egypta en enn væru „grund-
vallaratriði" óútkljáð, og væri
frétt brezka útvarpsins um að
þegar hefði verið gengið frá sam-
komulagi f megindráttum um
brottflutning ísraelskra hersveita
frá Sinaieyðimörkinni ekki á
rökum reist. Ismaif Fahmi, utan-
rfkisráðherra Egyptalands, gaf út
Smith rann-
sakar kyn-
þáttamisréttí
Salisbury, Dar Es Salaam
8. júlí AP—Reuter.
IAN Smith, forsætisráðherra
Ródesíu, tilkynnti f þinginu í
dag, að rfkisstjórn hans hygð-
ist setja á fót nefnd til að
rannsaka „óþarft og óæski-
legt“ misrétti í kynþátta-
málum. Hefði samkomulag um
stofnun slfkrar nefndar náðst
við Sir Alec Douglas Home
árið 1971, en Afríska þjóðar-
ráðið, ANC, hefði komið í veg
fyrir að úr yrði. I þingræðu
sinni í dag réðst Smith harka-
Iega á ANC, kvað það hafa
svikið skuldbindingar sínar og
notað allar hugsanlegar
afsakanir til að setjast ekki að
samningaborðinu á fyrirhug-
aðri stjórnarskrárráðstefnu.
sams konar yfirlýsingu f dag, þar
sem fréttinni er vísað á bug, og er
hann þó heldur neikvæðari en
Israelar og segir að afstaða
Egypta sé óbreytt frá því er sátta-
tilraunir Henry Kissingers runnu
út f sandinn í marz. Hins vegar
munu þeir Kissinger og Yitzhak
Rabin, forsætisráðherra tsraels,
ræðast við á laugardag um leiðir
til samkomulags.
Rabin sem í dag kom í fyrstu
heimsókn israelsks forsætisráö-
herra til Vestur-Þýzkalands,
framlengdi fjögurra daga dvöl
sína þar um einn dag og mun
hitta Kissinger í Bonn á laugar-
dag, er sá síðarnefndi kemur frá
viðræðum við Andrei Gromyko,
utanrikisráðherra Sovétríkjanna,
í Genf. Rabin hóf heimsókn sína í
dag með því að fara til Belsen-
fangabúðanna skammt frá
Hannover til að votta virðingu
sina minningu þeirra 50.000
Gyðinga sem þar létust. Hann
mun ræða við Helmut Schmidt,
kanzlara, og aðra vestur-þýzka
ráðamenn.
Stjórnmálaskýrendur telja að
fundur þeirra Rabins og
Kissingers á laugardag kunni að
vera vísbending um að samkomu-
lag sé í burðarliðnum, og
diplómatiskar heimildir herma i
Jerúsalem að Israelar hafi gert
nokkrar tilslakanir.
Haft var eftir James
Schlesinger, varnarmálaráðherra
Bandarikjanna, i gær, að Banda-
ríkin myndu ekki gera nýja
vopnasamninga við Israela ef
ísraelska ríkisstjórnin tekur ekki
stefnu sína í deilunni til endur-
skoðunar.
AF-símamynd
Á LEIÐ tJT 1 KULDANN? — Vasco dos Santos Goncalves, forsætisráðherra
Portúgals, t.v., ræðir við Fransisco da Costa Gomes, forseta á þingi herforingja í
gær en áreiðanlegar heimildir hermdu, að verið væri að reyna að koma Goncalves
úr embætti.
Orðrómur um brott-
vikningu Goncalves
Lissabon 8. júli AP—Reuter
• PORTÚGALSKI kommúnista-
flokkurinn hvatti f dag til „ár-
Námumenn urðu við ósk Wilsons
Scarborough, London
8. júlí Reuter — AP
• RlKISSTJÓRN Verkamanna-
flokksins undir forustu Harold
Wilsons vann meiri háttar sigur f
dag, er hinir harðskeyttu leiðtog-
ar sambands brezkra námamanna
slógu af kaupkröfum sfnum, sem
um tíma virtust ætla að verða
Wilson að falli, Ifkt og Edward
Heath fyrirrennara hans. A árs-
þingi sambandsins f Scarborough
var f dag samþykkt að mýkja
orðalag f tillögu herskáustu leið-
toganna, þar sem þess er krafizt
að kolanámumenn fái 100
sterlingspunda vikukaup I kjara-
samningunum sem viðræður
hefjast um sfðar á þessu ári,lfk-
lega í nóvem >cr. Þess i stað var
einróma sampykkt tillaga um að
stefnt sé að 100 punda vikukaupi
án þess að ákveðin tímamiirk séu
sett fyrir því.
Þar með höfðu námamenn tekið
tillit til harðorðrar áskorunar
Harold Wilsons á þinginu í gær
þar sem hann hvatti þá til sam-
starfs við ríkisstjórnina í baráttu
hennar gegn verðbólgu. Wilson
leggur sem kunnugt er áherzlu á
að verkalýðurinn og atvinnu-
rekendur samþykki að launa-
hækkanir i landinu fari ekki yfir
10% — ella muni hann vera
reiöubúinn til að grípa inn í
samningagerðina með lögum.
Krafa námamanna um 100 punda
vikukaup næista samningstímabil
var talin nema um 60% hækkun.
I lokayfirlýsingu ársþingsins,
sem samkomulag náðist um eftir
fimm klukkustunda umræður fyr-
ir lukiurn dyrum.eruí stað orðins
„krafizt“ sett orðin „leita eftir“.,
— þ.e. að leita beri eftir 100
punda vikukaupi.
Þegar er spurðizt um þessa
ákvörðun námamanna styrktist
staða sterlingspundsins á gjald-
eyrismörkuðum i London, og
hafði verðgildi þess ekki verið
meira síðan 23. júlí.Einnig komst
fjör í verðbréfaviðskiptin.
I ræðu sinni i gær sagði Wilson
að verðbólgan ógnaði lýðræðis-
skipulagi Bretlands og kallaði
upphaflegar kaupkröfur náma-
manna „sjálfsmorð“.Eftir þennan
sigur mun Wilson nú reyna að ná
samkomulagi við brezka alþýðu-
sambandið, TUC og brezka at-
vinnurekendasambandið. CBI,
um 10% viðmiðunina. Formaður
efnahagsnefndar TUC fagnaði í
kvöld ákvörðun kolanáma-
mannanna. TUC hefur lagt til sex
sterlingspunda hækkun viku-
kaups frá 1. ágúst, sem jafngildir
10% hækkun, en vill hins vegar
að hálaunahópar með meir en
7000 pund i árstekjur fái enga
hækkun. Ríkisstjórnin er ekki
með öllu samþykk þessu. CBI
hefur boðað fund 100 stórra fyrir-
tækja í London á morgun mið-
vikudag, til að móta afstöðu at-
vinnurekenda.
vekni af hálfu þjóðarinnar",
varaði við undirróðri hægri
aflanna og skoraði á landslýð að
verja byltinguna. Yfirlýsing
flokksins kom í kjölfar ummæla
Mario Soares, leiðtoga Jafnaðar-
mannaflokksins, um að jafnaðar-
menn væru reiðubúnir til að lama
landið með andófsstarfsemi ef
frelsi fjölmiðla yrði ekki tryggt
og orðróms um að skipulcga væri
nú unnið að því innan Herhreyf-
ingarinnar, scm stjórnar landinu,
að koma Vasco Goncalves, for-
sætisráðherra, úr embætti, en
hann hefur reynzt kommúnistum
hliðhollur. 1 yfirlýsingu flokksins
sagði að árvekni væri nauðsynleg
með tilliti til þess m.a. að árásir á
forsætisráðherrann gerðust æ
tíðari, og lýsti framkvæmdanefnd
flokksins ástandinu sem „alvar-
legu og spcnnuþrungnu“.
£ Samkvæmt áreiðanlegum
heimilduin AP-fréttastofunnar
bindast háttsettir herforingjar
Isabel lét undan
Allsherjarverkfallinu aflýst í Argentínu
Buenos Aires 8. juli
AP—Reuter.
# ISABEL Peron, forseti Argen-
tínu, Iét í dag undan kröfum
alþýðusambands landsins, CGT,
og samþykkti launahækkanir sem
nema allt að 130%. Alþýðusam-
bandið aflýsti þá allsherjarverk-
falli þvi scm lamað hefur landið
frá þvi á mánudagsmorgun, og
standa átti til miðnættis í kvöid.
Samgöngur voru í kvöld að kom-
ast í eðlilegt horf. Að sögn CGT
samþykkti forsetinn að ganga að
samningum um launahækkanir
sem gerðir hafa verið sfðustu tvo
mánuöi, en allsherjarverkfallið
skall á vegna þess að ríkisstjórnin
vildi ekki leyfa hækkanir yfir
50%, þar eð ríkið rambaði á
barmi gjaldþrots.
0 Einn af leiðtogum alþýðu-
sambandsins sagði í kvöld: „Þetta
er mesti sigur argentínsku vcrka-
lýðshreyfingarinnar í sögu henn-
ar. “ Engin opinber yfirlýsing
hafði í kvöld borizt frá stjórn
Isabel Peron um þessi úrslit
mála, en hún hafði raunar sagt af
sér á sunnudag til að auðvelda
samninga við CGT. Engin opinber
staöfesting fékkst heldur á þvf
frá forsetanum eða CGT að frú
Peron hefði einnig látið undan
kröfum um að reka þrjá af ráð-
herrum sfnum. Hcimildir innan
alþýðusambandsins hermdu hins-
vegar að svo væri, og meðal þeirra
sem fengju að víkja væri Jose
I.opez Rega, félagsmálaráöherra,
stjörnuspámaður og valdamesti
ráðgjafi forsetans. (Sjá grein á
bls. 15).
Samkvæmt heimildunum eru
hinir Celestino Rodrigo, efna-
hagsmálaráðherrann, sem t<5k við
.embætti fyrir mánuði og var aðal-
höfundur hinnar nýju sparnaðar-
stefu, og Ceculio Canditti,
atvinnumálaráðherra. Rodrigo
hafði fellt gengi pesósins, hækkað
verð á opinberri þjónustu, og
Framhald á bis. IK
innan Herhreyfingarinnar nú
samtökum um að svipta Gon-
calves embætti en hann hefur
verið lýstur að verulegu leyti
ábyrgur fyrir hnignun valds og
efnahagsöngþveiti í landinu.
Hugsanlegt var jafnvel talið, að
Goncalves yrði bolaö úr embætti
á þingi hersins sem hófst í dag,
þótt ekki væri útséð um það. Var-
kárari öfl og þjóðcrnissinnar af
vinstra kanti innan hcrsins voru
sagðir hafa komið sér saman um
leiðir til að skipta um forustu
innan rfkisstjórnarinnar. En
verkalýðssamband Portúgals,
Intcrsindikal, sem er undir for-
ystu kommúnista, tilkynnti í dag
hins vegar um fjöldafund á
fimmtudag til að „verja þróun
byltingarinnar".
Bæði yfirlýsingu framkvæmda-
stjórnar kommúnistaflokksins og
Intersindikal virtist ætlað að hafa
áhrif á fund herþingsins. Ekki
var gert ráð fyrir að þvi myndi
ljúka i kvöld. Meðal atriða á dag-
skrá fundarins, sem sóttur er af
250 herforingjum, voru styrkara
vald stjórnarinnar og efnahags-
áætlun til skamms tima. Er
Goncalves kom til fundarins i
morgun leit hann þreytulega út
og var heldur fölnr. Hann neitaði
að svara spurningum frétta-
manna. Aðrir herforingjar
reyndu að eyða bollaleggingum
] um að kreppa væri komin í stjórn
landsins.
I yfirlýsingu kommúnista fyrr i
dag sagði cnnfremur að Jafnaðar-
mannaflokkurinn og Alþýðu-
demókratar hefðu virt að vettugi
í óskir kommúnista um viðneðuV
1 um sameiginlegt átak til lausnar á
vandamálum landsins. Leiðtogar
Alþýðudemókrata sögðu á blaða-
mannafundi i dag, að líklegt v;eri.
að um 400.000 manns yrðu at-
vinnulausir um áramótin, ef svo
heldur fram sem horfir, — eða
um 13% vinnufæra tnanna.