Morgunblaðið - 22.11.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1975
31
— Gunnar
Gunnarsson
Framhald af bls. 1
hans hefur verið snúið á mörg
erlend mál. Sjálfur vann hann
lengi eftir að þau hjón fluttust
til íslands að þýðingum á eigin .
verkum og sá um útgáfur skáld-
verka sinna.
Gunnar Gunnarsson keypti
Skriðuklaustur í Fljótsdal
haustið 1938 og átti þar heima
til hausts 1948. Þá fluttust þau
hjón til Reykjavíkur og hafa
búið þar sfðan.
Gunnar Gunnarsson var einn
af stofnendum Bandalags
íslenzkra listamanna og var
fyrsti formaður þess. Hann var
meðstofnandi Almenna bóka-
félagsins og formaður bók-
menntaráðs þess til 1959. Hann
var heiðursdoktor við
háskólann i Heidelberg og
heiðursforseti ýmissa
menningarfélaga. Hann var
sæmdur prófessorsnafnbót og
heiðursmerkjum.
Ritverk Gunnars Gunnars-
sonar eru mikil að vöxtum og
alkunn, svo að ekki verða þau
öll talin upp hér. En fyrstu
bækur hans komu út 1906,
Móður-minningj Nokkur kvæði,
svo og Vorljóð og næsta bók
hans var einnig ljóðabók, Digte,
1911, Árið eftir kom fyrsta
bindið að Borgarættinni. Síðan
rak hver skáldsagan aðra og má
geta þess að fyrsta binda Fjall-
kirkjunnar kom út 1923 I Dan-
mörku. Þegar hann hafði flutzt
til íslands gaf hann út Heiða-
harm 1940 en siðasta skáldsaga
hans, Brimhenda, kom út 1954
og það sama ár eitt af mörgum
framlögum hans til frjálsrar
menningar og vestræns lýð-
ræðis, ræða sem ber nafnið
Vestræn menning og
kommúnismi.
Gunnar Gunnarsson kvæntist
Francisku Antonie Josephine
20. ágúst 1912 og lifir hún
mann sinn. Um leið óg Morgun-
blaðið þakkar Gunnari
Gunnarssyni margvislegan
vinarhug í garð blaðsins,
ábendingar og efni ýmiss
konar, sendir það frú
Francisku og fjölskyldu þeirra
hjóna samúðarkveðjur við lát
þessa mikilhæfa íslenzka rit-
höfundar. Forysta hans var afl
og uppörvun Morgunblaðinu og
lesendum þess.
— Ungfrú heimur
Framhald af bls. 15
samlega fram, að öðru leyti en
því, að þátttakendur frá Belgíu,
Luxemborg, Frakklandi og Mári-
taníu neituðu að hlýðnast fyrir-
skipun stjórnandans „ökla saman
— snú!“ — til að dómnefndin
gæti virt stúlkurnar fyrir sér aft-
an frá.
— Land og
lýðveldi
Framhald af bls. 32
Alls eru í bindinu 17 ræður og
ritgerðir, og er lengsta ritgerðin
um Ólaf Thors, 70 bls., skrifuð að
honum látnum. Af öðru efni skal
þetta nefnt: Landið og tungan
(1965), Frelsi, sjálfstæði og frið-
ur koma ekki af sjálfu sér (1967),
Um stjórnmál og þekkingarleit
(1968), Lýðveldið 25 ára (1969),
Ríkisforsjá og frjálsræðisstefna
(1965), Verðbólgan og vandi ís-
lenzkra atvinnuvega (19.66),
Þættir úr fjörutíu ára stjórnmála-
sögu (1970).
Nafnaskrá fylgir ritgerðasafn-
inu. Bókin er 214 bls. að stærð.
Útgefandi er Almenna bókafélag-
ið.
— Fer Grænland
Framhald af bls. 15
Krafan um útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar við Grænland í 100
mílur er orðin að meiriháttar bar-
áttumáli, þar serh landssamtök
sjómanna hafa efnt til undir-
skriftasöfnunar um allt landið og
mikill hluti kjósenda hefur þegar
orðið við áskoruninni um undir-
ritun. Búizt er við þátttöku mörg
þúsund manns áður en frestur
rennur út 1. desember.
Landsráðið i Grænlandi ákvað í
haust útfærslu í 100 mílur, en
dönsk yfirvöldhafaviljaðbíða úr
slita hafréttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna f vor. Nú er þolin-
mæði manna á þrotum og krafizt
er útfærslu fiskveiðilögsögunnar
í 100 mílur þegar í stað.
— Lítt hrifnir
Framhald af bls. 1
stæðu verði,“ segir Stuttgarter
Zeitung.
Fréttin birtist á forsiðum
flestra vestur-þýzkra blaða i dag
en fá blöð gera nokkrar athuga-
semdir um samninginn.
I fréttum blaðanna er á það
lögð áherzla að samningurinn
verði að hljóta samþykki islenzku
ríkisstjórnarinnar og Alþingis áð-
ur en hann tekur gildi,
— Sigla brezkir
Framhald af bls. 1
Grimsby að Bretar vildu ekki
stríð, að þeir ætluðu ekki að neyta
aflsmunar gegn Islendingum, að
brezkir sjómenn yrðu að fá vernd,
að hann vildi að skipstjórarnir
gerðu sér grein fyrir þessu, héldu
kyrru fyrir og forðuðust fjótfærn-
islegar aðgerðir þótt þeir væru í
erfiðri aðstöðu.
Hann sagði að það væri einlæg-
ur vilji Breta að semja við íslend-
inga og að þeir vildu ekki að deil-
an við þá magnaðist stig af stigi
og sagði um þá „áreitni” sem
brezkir skipstjórar yrðu fyrir, að
þegar klippt væri á togvíra misstu
þeir veiðarfæri sem kostuðu 3.000
pund, að þeir yrðu að koma fyrir
nýjum veiðarfærum i myrkri og
kulda, að þeir misstu dýrmætan
veiðitíma og gætu þannig tapað á
veiðiferðinni og að togvíraklipp-
ing gæti stofnð lífi og limum tog-
aramanna i hættu.
Hann sagði að aðstoðarskipun-
um væri beitt til reynslu og ef
aðstæður breyttust gæti farið svo
að málið yrði endurskoðað en sjó-
hernum yrði ekki beitt að svo
stöddu.
VIÐVÖRUN
Peart tók einnig fram að Bretar
væru i mjög sterkri aðstöðu gagn-
vart tslandi vegna aðildar Breta
að Efnahagsbandalaginu. Hann
sagði að tslendingar væru háðir
markaðnum i Bretlandi og í Evr-
ópu og gæti tapað miklu á lokun
þeirra. Þó væri ekki um það að
ræða að beita tslendinga bola-
brögðum, aðeins væri um það að
ræða að neyta hefðbundinna rétt
inda sem Alþjóðadómstóllinn
hefði staðfest.
Þetta töldu brezkir fréttamenn
skýlausustu viðvörunina í garð Is-
lendinga frá brezkum ráðherra
um efnahagslegar refsiaðgerðir.
Jafnframt sagði Peart að brezka
stjórnin hefði sagt að hún vildi
greiða fyrir löndun og sölu fisks
frá tslandi í Bretlandi og það
sýndi að hún gerði sér grein fyrir
nauðsyn þess að verndunarsjón-
armið væru höfð í huga og viður-
kenndu sérstöðu tslendinga.
Með þessu virtist Peart gefa í
skyn að ekkert opinbert
löndunarbann gegn Islendingum
væri í gildi í Bretlandi. Togara-
eigendur í Grimsby komu á þessu
banni að höfðu samráði við sam-
band togaraeigenda en sfðan
neitaði sambandið því að það væri
aðili að banninu og fiskkaupmenn
og aðrir kaupendur viðurkenna
fúslega að þeir vilja fá íslenzkan
fisk.
_________EKKI AÐILI
Austen Laing, formaður togara-
eigendasambandsins, sagði í við-
tali við blaðið að sambandið stæði
ekki að banninu. Hann sagði að
þeir sem stæðu að banninu væri
eigendur i höfnunum, þeir sem
stjórnuðu löndununum og
mannvirkjum sem væru notuð við
þær. Hann sagði að ekkert samráð
hefði verið haft við togaraeig-
endasambandið vegna bannsins.
Hverjir þeir væru sem stjórnuðu
löndunum kvaðst hann ekki hafa
hugmynd um.
Laing sagði að „óskammfeilni
tslendinga" væri meiri en orð
fengju lýst: „Það er fráleitt að
halda að landanir verði leyfðar
eins og nú er ástatt. Gera íslend-
ingar sér ekki grein fyrir þvf
hvernig andrúmsloftið er í
hafnarbæjunum? Vita þeir ekki
hvað andúðin gegn þeim er mikil?
Vita þeir ekki hvaða móttökur
áhafnir íslenzkra skipa fengju ef
þau kæmu til hafna okkar? Það er
til að fyrirbyggja slíkar móttökur
að við viljum halda þeim f burtu.“
Laing fór hörðum orðum um
það sem hann kallaði ögrandi
framferði tslendinga. „Ef við eig-
um að forðast ýfingar verður að
sýna miklu meiri stillingu. En það
er ekki aðeins annar aðilinn sem
getur sýnt stillingu. Allir aðilar
verða að gæta stillingar og þá
verður hægt að setjast að
samningaborði. Og við verðum að
semja fyrr eða síðar, helzt fyrr en
sfðar. Það verður að finna lausn
með samningum. Deiluna er ekki
hægt að leysa með styrkleika-
prófi.“
— Formaður LÍÚ
Framhald af bls. 32
að „svarta skýrslan" gefi rétta
mynd af ástandi þorskstofnsins
eins og það er núna. I umræðum
eftir erindi Jakobs Jakobssonar,
fiskifræðings, kom það fram í
tölu Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns Landssambands fsl. út-
vegsmanna, að útlitið væri svo
ískyggilegt að fyrirsjáanlegt væri
að hætta þyrfti útgerð verulegs
hluta fiskiskipaflotans þar til
tekizt hefði að auka stofninn aft-
ur til mikilla muna frá því sem nú
væri.
Þá var á fundi Fiskiþings í gær
samþykkt tillaga laga- og félags-
málanefndar er Sveinn Bene-
diktsson hafði framsögu fyrir og I
fjallaði um sjávarútveginn og óða-
verðbólguna. Kemur þar fram
hvílíkum erfiðleikum óðaverð-
bólgan hér á landi hefur valdið
höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar,
sjávarútvegi, iðnaði og land-1
búnaði. Sjávarútvegurinn hafði
þó þá sérstöðu meðal atvinnuveg-
anna að verða að langmestu leyti
að sæta því verðlagi fyrir fram-
leiðslu sína, sem væri á erlendum
mörkuðum á hverjum tíma. I
sjávarútveginum, væri því ekki
unnt að velta auknum tilkostnaði
yfir á aðra innlenda aðila, svo sem
venjan væri með ýmis þjónustu
fyrirtæki og stofnanir ríkis og
bæja.
Kemur og fram í tillögunni að
kaupgjald og allur rekstrarkostn-
aður sjávarútvegsins hefur marg-
faldazt á síðustu 3—4 árum. A
tveimur síðustu árum hefðu af-
urðir sjávarútvegsins fallið stór-
Iega f verði um leið og tilkostn-
aðurinn á sjó og landi hefði vaxið
hraðfara. Komið hefði verið I veg
fyrir stöðvun á þessu ári með
greiðslum úr Verðjöfnunarsjóði
fiskiðnaðarins, en nú væri svo
komið að sjóðurinn væri að mestu
tómur og hefði ríkissjóður orðið
að taka ábyrgð á greiðslum hans.
Afleiðingin af framangreindri
þróun hefði orðið söfnun lausa-
skulda ríkissjóðs, sem næmu að
viðbættum yfirdrætti hjá Seðla-
bankanum um 9 milljörðum
króna. Væri nú svo komið að láns-
traust rikisins væri á þrotum.
Siðan segir i niðurlagi að þótt
verðbólgan hafi aukizt minna
síðasta ársfjórðung en áður, verði
að grípa betur í taumana, þ.e.
eyða minna svo að jöfnuður fáist í
viðskiptum við útlönd. Að öörum
kosti sé sú vá fyrir dyrum sem
enginn geti séð fyrir endann á.
Var tillagan síðan samþykkt sam-
hljóða. (2 fulltrúar sátu hjá).
— Samkomu-
lagsdrög
Framhald af bls. 32
maður ánægður með sumt, en
miður ánægður með annað. Við
höfum reynt að koma islenzkum
sjónarmiðum á framfæri eins vel
og unnt er og túlka hagsmuni
landsins eins og menn hafa bezt
getað. Ég tel að mikið hafi þokazt
í rétta átt. Samningamenn Þjóð-
verja hafa sýnt eindreginn
samningsvilja og sveigjanleika.
Að sjálfsögðu myndi maður kjósa
sum atriði á annan veg, en í heild
tel ég, að hagkvæmt sé fyrir ís-
land, að leysa þessa deilu á þann
veg, sem nú er gert ráð fyrir.“
Við komuna til Keflavíkurflug-
vallar f gær, sagði Einar Ágústs-
son, að hann hefði enga vissu
fyrir því að þingmenn samþykktu
samkomulagsdrögin. Hann sagði
að þingmenn væru frjálst fólk,
sem vissulega hefðu óbundnar
hendur til þess að taka afstöðu til
samningsdraganna. Einar sagðist
mundu mæla með samþykki
samningsdraganna á Alþingi.
Guðmundur H. Garðarsson, al-
þingismaður, sem sæti átti i.
samninganefnd tslands, sagði við
komuna til Keflavíkurflugvallar: |
„Ég vil ekki ræða einstök atriði,
samkomulagsdraganna. Eftir at-!
vikum tel ég þó drögin í heild
hagkvæm tslendingum og að
sjálfsögðu mæli ég með þeim
bæði við ríkisstjórn og Alþingi.
Það er skoðun mín, að með þess-
um drögum muni staða íslend-
inga styrkjast verulega i barátt-
unni, sem skiptir þjóðina enn
meira máli — en það er, að ís-
lendingar geti verndað þorsk-
stofninn og nýtt á sem hagkvæm-
astan hátt.“
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 17
flestar af þeim götum, sem malbik-
aðar voru á árinu.
Þá hefur á árinu verið unnið við
ýmsan frágang á vegum gatnagerð-
ar að upphæð kr 21 9 millj. og
undir liðnum umhverfi og útivist var
aðallega unnið við svæði í Fossvogi
og í Breiðholti I og III, sennilega
fyrir allt að kr 1 5.0 millj
Fjárveiting til nýbyggingar
gatna og holræsa var um kr 51 7 0
millj. Um síðustu mánaðamót var
kostnaðurinn við þessar fram-
kvæmdir orðinn um 410 millj kr.
og er gert ráð fyrir að hann verði um
510 millj. kr. um áramót
2) Framkvæmdum frestað frá end-
urskoðaðri áætlun
Ekki er hafin gatnagerð í nýjum
miðbæ eða i iðnaðarhverfi við Vest-
urlandsveg Vinna er hafin við teng-
ingu Stekkjarbakka og Höfðabakka,
en hluti framkvæmdarinnar færist á
næsta ár. Frestað er að leggja hol-
ræsi meðfram Hafnarfjarðarvegi og
hluta af Kleppsvegi.
Af þeim verkefnum, sem voru á
áætlun, hefur verið frestað að hefja
framkvæmdir við eða verður ekki
lokið við verkefni, sem voru áætluð
á um kr 1 60 millj
3) Kostnaðaráætlanir.
Allar tölur um kostnaðaráætlanir
hér nefndar eru miðaðar við verðlag
í des 1974. Er talið, að meðal-
hækkun á kostnaðí við framkvæmdir
á árinu frá áætlun sé 35—40%.
Má i þvi sambandi minna á hækkun
á gjaldskrá vinnuvéla um 55% i lok
april 1 975, en í reynd varð hækkun-
in mun meiri á gjaldskrá vissra teg-
unda vinnuvéla.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
1) Framkvæmdir, sem lokið er við
Upphafleg framkvæmdaáætlun
Rafmagnsveitunnar var kr 494.7
millj Áætlunin var siðan skorin nið-
ur í marz um kr 89 6 millj og til
viðbótar var frestað framkvæmdum
fyrir kr. 64.3 millj., allt miðað við
verðlag i des. 1974 Framkvæmda-
áætlun R R , sem lokið var við á
árinu varð þannig 340 7 millj kr á
verðlagi i des. 1 974 og er áætlaður
kostnaður á árinu 442 6 millj . eða
29 9% hærri en áætlunartalan —
og er þannig einnig svarað spurn-
ingu nr 3.
2) Framkvæmdir Rafmagnsveit-
unnar, sem ráðgerðar voru eftir end-
urskoðaða framkvæmdaáætlun, en
ekki verður lokið við, voru að upp-
hæð kr. 64 3 millj á verðlagi i
des. '74 eins og áður segir. Þær
sundurliðast þannig:
Neytendakerfi kr. 17.0 millj.
Háspennukerfi kr 7.1 millj
Spennistöðvar kr 40 2 millj.
Samtals kr 64 3 millj
Rétt er að fram komi, að frestun
þessi varð fyrst og fremst vegna
breytinga á framkvæmdaáætlun
sveitarfélaga, en i staðinn komu ým-
is ný verkefni að fjárhæð kr 54 4
millj miðað við verðlag í des
1974, en kosta í reynd kr 70.7
millj
VATNSVEITA
REYKJAVÍKUR
1) Framkvæmdir. sem lokið er við
í framkvæmdaáætlun 1975 var
gert ráð fyrir kr. 162.8 millj. til
nýframkvæmda. þar af lánsfé kr
88 2 millj. Lán fékkst að upphæð
kr 40.0 millj og lækkar því fram-
kvæmdaáætlunin um kr 48.2 millj
eða i kr 114 6 millj Áætlun um
nýframkvæmdir 1971 er að upp-
hæð kr 100 8 millj., en auk þess
birgðaaukning til nýframkvæmda að
upphæð kr 15 0 millj Þannig að
mjög mun láta nærri, að áætlun og
niðurstöðutölur standist á.
Helztu framkvæmdir, sem lokið er
við á árinu eru lagnir ! Breiðholti II
(4. — 7 áfangi), vatnslögn í Slðu-
múla, I Skildinganesi, aðfærsluæð
að Ártúnshöfða með tengingu frá
Höfðabakka I Bæjarháls. Þá hefur
verið unnið við boranir, prufudæl-
ingu, vegagerð og hönnun vegna
virkjana I Heiðmörk, en þó verulega
minna en áætfað var, og lokið við
frágang og uppsetningu á dælum 1
Bullaugum svo og lögn aðalæðar
frá Selásgeymi að dælustöð við
Hraunbrún
2) Framkvæmdum frestað:
Helzt er að nefna lagnir I Eiðs-
granda, Nýjum Miðbæ, Iðnaðar-
hverfi við Vesturlandsveg og 1.
hluta Seláshverfis; Kostnaðaráætlun
samtals 9.8 millj. kr. Þá var unnið
minna en ráðgert var við undirbún-
ing virkjana I Heiðmörk, eins og
áður segir og gert er ráð fyrir, að
kostnaður við lögn aðalæðar til
Heiðmerkur verði aðeins um kr 8 0
millj á árinu I stað 51.6 millj.,
samkv. fjárhagsáætlun, en útboð
tafðist og fór ekki fram fyrr en i
september
3) Kostnaðaráætlanir.
Tilboð, sem tekið var í lögn hluta
aðalæðar til Heiðmerkur í september
var innan við 80% af kostnaðaráætl-
un, og lægsta tilboð i annan hluta
lagnarinnar, sem opnað var i gær, er
innan við 70% af kostnaðaráætlun
HITAVEITA
REYKJAVÍKUR
Framkvæmdaáætlun Hitaveitunn-
ar var endurskoðuð í marz 1975 og
þá reiknuð eftir byggingarvisitölu
156, en meðalvisitala ársins mun
vera 1 881, eða um 20 3% hærri en
i marz. Endurskoðuð framkvæmda-
áætlun hljóðaði upp á kr 1 449
millj og áætluð útkoma er mjög
nærri þessari upphæð, eða kr.
1.460 millj
1) Framkvæmdir, sem lokið er við
Til virkjana og aðalæða var áætlað
að verja kr 300 millj , áætluð út-
koma er kr 250 millj Helztu fram-
kvæmdaliðir eru boranir, virkjanir
og safnæðar að Reykjum, bygging
dælustöðvar og lögn aðalæðar i
Breiðholt III, vinna við Reykjaæð og
aðveituæðar í Suðurlandsbraut og
Skammadal
Til dreifikerfis i Reykjavik er áætl-
að að verja kr 146.0 millj , áætluð
útkoma er um 132 0 millj kr
Helztu framkvæmdir hafa verið I
Breiðholti II og III svo og endurbæt-
ur i eldri hverfum
Kostnaður við lögn aðalæðar og
dreifikerfis I nágrannasveitarfélög-
unum var áætlaður 930 m.kr , verð-
ur sennilega 1.056 m kr
Til byggingar bækistöðvar var
áætlað að verja um kr 73 0 millj .
verður sennilega 22.0 millj.. eða
verulega undiráætlun
2) Framkvæmdum frestað:
Ráðgerðar en frestaðar fram-
kvæmdir eru helztar frekari lögn
safnæða að Reykjum, lögn aðalæðar
i Breiðholt III svo og frekari fram-
kvæmdir við lögn Skammadalsæð-
ar Ennfremur lögn dreifikerfis i Nýj-
an Miðbæ og á Eiðsgranda Einnig
er frestun við byggingu bækistöðv-
ar, svo sem áður segir.
3) Kostnaðaráætlanir.
Ef tekið er tillit til breytinga á
byggingarvisitölu hafa kostnaðar-
áætlanir almennt staðizt nokkuð vel,
en tilboð á miðju þessu ári voru þó
hlutfallslega ivið lægri en fyrri hluta
árs og s I vetur
í fjárhagsáætlun Reykjavikurhafn-
ar eftir endurskoðun 20 marz
1975, var gert ráð fyrir lántöku á
eignabreytingareikningi að upphæð
kr. 1 65.0 millj. Með bókun i hafnar-
stjórn 29 mai 197 5, voru hins
vegar ákveðnar framkvæmdir á ár-
inu að upphæð kr 32 0 m.kr., enda
þótti sýnt, að umrædd lántökuáætl-
un væri óraunhæf Er þvi hér miðað
við ofangreinda fjárhæð
Framangreind áætlun mun vænt-
anlega standast, þó verða fram-
kvæmdir við Sundahöfn (fylling
o fl ) um kr 27 0 millj , eða um kr
2.0 millj. hærri en áætlað var og
framkvæmdir við Vesturhöfn um kr
5.0 millj., eða um 2.0 millj. lægri
en samkv. framangreindri áætlun
Er þá ekki meðtalinn kostnaður við
ferjulægi, sem fæst væntanlega
endurgreiddur. né heldur vegna
kaupa á krana, sem ekki hafa verið
fjármögnuð
— Spánn
Franihald af bls. 15
sósíalista, hafa gefið svipaðar yf-
irlýsingar og UDM. Einn af leið
togum sósíaldemókrata, Antonio
Garcia López, sagði að flokkur
sinn mundi gefa prinsinum hálfs
mánaðar frest til að koma til leið-
ar frjálslyndum umbótum.