Morgunblaðið - 09.07.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ1982
Bandaríkjamarkaður:
Verð á fisk-
blokk lækk-
ar um 4 cent
Hlutfallslega minni sala í flökum en áður
Vp]Rt) á fiskblokk hefur
lækkað um 4 cent pundið á
Handaríkjamarkaði, eða úr
112 centum í 108 cent. Ekki
er cnn Ijóst hvaða áhrif þetta
hefur á rekstur frystihúsanna
hér á landi, en blokkin er 30
tii 40% af því magni, sem
('oldwater Seafood Corpora-
tion, fyrirtæki SH í Banda-
ríkjunum selur, en vegur
ekki nærri eins mikið í verð-
mæti.
Sjónvarpið:
HM-útsend-
ingar hefjast
klukkan 15.00
SJÓNVARPIÐ hefur nú end-
anlega ákveðið dagskrá
næstkomandi sunnudags, en
þá veröur úrslitaleikur
heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu sýndur beint og
undanúrslitaleikur Frakka
og Vestur-Þjóðverja.
Guðmundur H. Garðarsson hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær, að þorskflök í 5 punda
pakkningum væru nú seld á 1,80
dollara pundið eins og verið hefði,
og á því sæist best hver verðmun-
ur væri á blokk og fiskflökum.
Guðmundur sagði, að þrátt
fyrir að verð á blokk hefði lækkað
í Bandaríkjunum, þá hefði sala
Coldwater á verksmiðjufram-
leiddri vöru aukist. Hinsvegar
væri mikið framboð af blokk á
markaðnum og hefði það að
sjálfsögðu áhrif á verðið.
Það kom einnig fram hjá Guð-
mundi að sala á flökum hefur
minnkað hlutfallslega, það sem
af er árinu, ef miðað væri við
sama tíma í fyrra. Samkeppnin
væri nú ákaflega hörð og byðu
Kanadamenn fiskflök og blokkir
á mjög lágum verðum.
4NNLENT
Frá afhendingu myndarinnar. Ljósm. Mbl. íilfar
Sonardóttir Skúla Thoroddsen:
Færir ísfirðingum stækkaða
ljósmynd úr búi hans að gjöf
fsafírói, 7. júlí.
A bæjarráðsfundi sl. mánudag
mættu hjónin Ásta Thoroddsen og
Kóvald Malmquist úr Reykjavík
með stækkaða Ijósmynd af ísafirði
frá árinu 1908 að gjöf.
Forsaga málsins er sú, að föð-
urafi Ástu sem var Skúli Thor-
oddsen, sýslumaður Isfirðinga á
árunum 1884—1895 og þingmaður
Norður- ísfirðinga 1903—1916,
eignaðist myndina eftir að hann
flutti til Reykjavíkur. Ekki er vit-
að um ástæðu þess, en myndin er
tekin af Magnúsi Ólafssyni, kon-
unglegum hirðljósmyndara, og
stækkuð af honum 1908. Síðar
komst hún í hendur föður Ástu og
síðan til hennar í gegnum erfðir.
Þeim hjónunum þótti ástæða til
að myndin yrði varðveitt á Isa-
firði til minningar um veru Skúla
Thoroddsen og konu hans, Theo-
dóru Thoroddsen, á ísafirði, því
þótt stormasamt hafi verið um
starf Skúla á ísafirði átti fjöl-
skyldan fjölda góðra minninga frá
verunni þar.
Guðmundur Sveinsson, formað-
ur bæjarráðs, tók við myndinni og
þakkaði gjöfina. Gat hann þess að
hugmyndir væru uppi að koma
henni fyrir í stofunni í faktors-
húsinu í Neðsta kaupstað, sem nú
er í endurbyggingu í sinni upp-
runalegu mynd.
Kristján K. Jónasson, forseti
bæjarstjórnar, flutti ávarp og
þakkaði hjónunum ræktarsemina
og gat þess jafnframt að ánægju-
legt væri þegar fólk gæfi fallegar
sögulegar minjar til varðveislu
hjá bæjaryfirvöldum og á byggða-
safni. Hvatti hann folk sem á í
fórum sínum gamlar ljósmyndir,
sem gætu orðið að virku sögusafni
fyrir bæinn að gefa bæjaryfir-
völdum kost á að eignast slíkar
myndir, sérstaklega núna þegar
verið er að rita sögu ísafjarðar.
Á eftir bauð bæjarráð hjónun-
um til kaffidrykkju. Úlfar.
Sjónvarp mun hefjast klukkan
»S”Kt,S„I'["aiSJ'5íS; Heildaraflinn 207 þús. lestum minni en í fyrra fyrstu 6 mán.:
bein útsending úrslitaleiksins, ____ _
sem verður milli ítala og Þjóð- ■ MVI “ I ^ A
sss: Porskaili drost saman um
sjónvarpskerfi því, sem íslenzka
sjónvarpið notar, heldur frönsku _ _ _
kerfi, Secam. Ekki er ljóst hvenær Q 0 ■ ^ H A
rumlega 76 þusund tonn
úrslit eftir framlengingu, verður
leikinn annar úrslitaleikur á
þriðjudag og verður hann þá sýnd-
ur beint í íslenzka sjónvarpinu og
í lit, þar sem hann verður sendur
út í vestur-evrópska sjónvarps-
kerfinu, Pal.
SAMKVÆMT bráðabirgða-
tölum Fiskifélags íslands þá
reyndist hcildarafli lands-
manna vera 425.578 lestir
fyrstu sex mánuði árins, á
Hans G. Andersen sendiherra:
Algjört samkomulag
um þau atriði sem við
höfum lagt áherslu á
Bandaríkin eingöngu
á móti vegna alþjóða-
hafsbotnssvæðisins
„Það er ekkert við því að gera.
Þeir ætla sér að standa fyrir utan
þetta. Hvað okkur snertir þá má
okkur vera sama, þvi við höfum ekki
lagt neina höfuðáherslu á alþjóða-
hafsbotnssvæðið og Bandaríkin eru
á móti þessu eingöngu út af alþjóða-
hafsbotnssvæðinu en ekki út af hin-
um atriðunum sem við höfum lagt
megináherslu á,“ sagði Hans G.
Andersen sendiherra íslands í
Washington, er Mbl. spurði hann
hver áhrif það hefði á stöðu íslands í
hafréttarmálum að Bandaríkin hafa
lýst yfir að þau muni ekki undirrita
alþjorta hafréttarsáttmálann.
Hans sagði að það hefði strax
komið fram á fundinum í mars- og
aprílmánuði og Bandaríkin myndu
ekki geta náð fram þeim atriðum
sem þeir lögðu megináherslu á f
sambandi við alþjóða hafbotns-
svæðið og þá hefðu þeir tilkynnt
að þeir yrðu að vera utan samn-
ingsins. Hann sagði að Banda-
ríkjamenn hefðu þá reynt að na
samningum á milli sín og annarra
iðnþróaðra ríkja um samning utan
alþjóðasamningsins, en ekkert
hefði þó komið út úr því svo vitað
væri.
Hans sagði að lokum: „Við túlk-
um þessa afstöðu Bandríkjanna
þannig og það er rétt túlkun, að
þeir eru á móti þessu bara út af
alþjóða hafsbotnssvæöinu, en ekki
út af þeim atriðum sem við höfum
lagt áherslu á, þ.e. landhelgi, efna-
hagslögsögu og landgrunni. Þá má
segja að algjört samkomulag hafi
náðst um þessi atriði þannig að
þetta breytir engu fyrir okkur.“
sama tíma í fyrra var heildar-
aflinn orðinn 633.256 lestir
og hefur aflinn því dregist
saman um 207.678 lestir á
fyrstu sex mánuðum árins.
Þorskaflinn hefur dregist
saman um 76.280 lestir,
þorskafli togaranna er 42.127
lestum minni nú en á sama
tíma í fyrra og þorskafli báta
34.153 lestum minni.
í tölum Fiskifélagsins kemur
fram, að í júnímánuði síðast-
liðnum var þorskafli bátaflotans
10.577 lestir og togaranna 19.095
lestir eða samtals 29.672 lestir. í
júnímánuði í fyrra var heildar-
þorskaflinn hinsvegar 34.684 lest-
ir eða 5.012 lestum meiri en nú.
Heildarbotnfiskaflinn í júnímán-
uði reyndist nú vera 57.977 lestir
á móti 65.984 lestum í fyrra.
Heildarbotnfiskafli þessa árs
er nú orðinn 401.498 lestir á móti
Bruni á Túngötu
SLÖKKVILIÐIÐ Reykjavíkur var
kvatt í gærmorgun að húsinu Túngötu
36 A, en þar var eldur í herbergi í
kjallara.
Herbergið var alelda þegar
slökkviliðið bar að og stóðu eldtung-
ur út um glugga. Samkvæmt upplýs-
ingum slökkviliðsins urðu talsverð-
ar skemmdir í herberginu af eldi og
reyk, en reykskemmdir á efri hæð-
um hússins.
453.222 lestum í fyrra og er því
um verulegan samdrátt að ræða í
botnfiskaflanum, þrátt fyrir
aukna sókn. Samdrátturinn í
heildaraflanum stafar þó fyrst og
fremst af hverfandi loðnuveiði á
þessu ári. í ár hefur verið landað
13.244 lestum af loðnu, en á sama
tíma í fyrra 157.821 lest.
Ekki er þó samdráttur í öllum
veiðum landsmanna. Til dæmis
hefur rækjuveiði aukist úr 4.262
lestum fyrstu sex mánuði síðasta
árs í 5.253 lestir nú, humarveið-
arnar hafa aukist úr 1.581 lest í
1.791 lest. Hinsvegar hefur veiði á
hörpudiski dregist saman úr
3.953 lestum í 2.143 lestir. Aðeins
hefur verið landað 887 lestum af
kolmunna á móti 10.213 lestum.
Innlánsstofnanir og sjóðir:
Vanskil hafa aukizt
gífurlega undanfarið
VANSKIL hafa aukizt gífur-
lega í innlánsstofnunum og
hjá hinum ýmsu sjóðum at-
vinnuveganna á undanförn-
um mánuðum samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins,
og hefur það valdið þeim
miklum vandræðum.
Bæði er það, að fjárhæðir í van-
skilum eru meiri, en dæmi eru um
í langan tíma og svo það, að inn-
lánsstofnanir og sjóðir hafa
neyðst til að semja um framleng-
ingar á lánum, eða endurnýjun á
lánum til þess hreinlega að fá pen-
ingana inn.
Útstreymi af innlánsreikning-
um innlánsstofnana hefur verið
gífurlegt á undanförnum mánuð-
um og sparifjármyndun hefur því
hægt mjög á sér að sama skapi.