Morgunblaðið - 09.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ1982
5
í STIJTTU MÁLI
Flugmenn
sömdu við
Flugleiðir
SAMNINGAR tókust með flug-
mönnum Flugleiða og viðsemjend-
um þeirra á sjöunda tímanum í
gærmorgun, eftir tæplega sólar-
hrings langan fund.
Samningurinn er mjög í anda
samkomulags Alþýðusambands-
ins og Vinnuveitendasambands-
ins á sínum tíma hvað varðar
launaliðinn, þ.e. gert er ráð fyrir
tæplega 10% veginni meðal-
talshækkun á samningstímabil-
inu, sem er til 1. september á
næsta ári.
Meginhluti samningsins er
hins vegar samræming á fyrri
samningnum annars vegar Fé-
lags íslenzkra atvinnuflug-
manna, þ.e. þeirra flugmanna
Flugleiða sem áður störfuðu hjá
Flugfélagi íslands, og hins vegar
Félags Loftleiðaflugmanna, en
þessir tveir hópar eru nú í einu
félagi, Félagi íslenzkra atvinnu-
flugmanna.
Þórður Þórð-
arson ráðinn
bæjarstjóri á
Sauðárkróki
BÆJARSTJÓRN Sauðárkróks
samþykkti á fundi sínum í vikunni
að ráða Þórð Þórðarson, lögfræð-
ing, bæjarstjóra næsta kjörtímabil,
en hann hefur starfað í fíkni-
efnalögreglunni í Reykjavík und-
anfarið.
Alls voru 8 umsækjendur um
starfið, en síðan voru greitt at-
kvæði í bæjarstjórninni. Þórður
hlaut 5 atkvæði fulltrúa Fram-
sóknarflokks og Alþýðubanda-
lags, en fjórir seðlar voru auðir.
3 skip seldu
ytra í gær
ÞRJÚ íslenzk fískiskip seldu afla í
Grimsby og Hull í gærmorgun og í
dag selur eitt skip í Grimsby.
Hópsnes GK seldi 59 tonn í
Hull fyrir 489,3 þús. kr. og var
meðalverð á kíló kr. 8,29. Helga
Jó VE seldi einnig í Hull, alls
86,2 lestir fyrir 713,2 þús. kr. og
var meðalverð á kíló kr. 8,27. Þá
seldi Jón Finnsson RE 54,4 tonn
í Grimsby fyrir 474,5 þús. kr. og
þar var meðaiverð á kíló kr. 8,72.
Þess má geta að Hópsnes og
Helga Jó voru með töluvert af
ýsu, og fékkst lítið verð fyrir
hana. Jón Finnsson var með
töluvert af kola sem dæmdur var
ónýtur, en annars var þorskverð-
ið hjá Jóni Finnssyni kr. 12,80 á
kíló.
Vitni vantar
SÍÐASTLIÐNA nótt var ekið á
bláan Wolksvagen 1300 (bjöllu)
við Arnarhraun í Hafnarfirði á
móts við hús númer 2. Skemmdist
vinstra frambretti bílsins töluvert,
að sögn lögreglunnar í Hafnarfírði.
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði beinir þeim tilmælum til
þeirra, sem kunna að hafa orðið
varir við umræddan árekstur, að
gefa sig fram.
Prestskosning
á Mödruyöllum
Sr. Pétur Þórarinsson, sem hefur
þjónað Hálsi í Fnjóskadal undan-
farin ár, var einn umsækjandi um
Mööruvallaprestakall í Kyja-
fjarðarprófastsdæmi. Sr. Þórhallur
Höskuldsson, sem þar hefur þjón-
að, er nú prestur á Akureyri.
Kosið var í Möðruvallapresta-
kalli sl. sunnudag og atkvæði tal-
in á Biskupsstofu á fjórða degi
þaðan í frá, svo sem lög gera ráð
fyrir. Á kjörskrá voru 429. At-
kvæði greiddu 297. Hlaut um-
sækjandi 294 atkvæði, en 3 seðlar
voru auðir. Kosningin er því
bindandi.
Sr. Pétur Þórarinsson er Akur-
eyringur að uppruna, 31 árs að
aldri. Hann vígðist til prestsþjón-
ustu 1976 og hefur þjónað Háls-
prestakalli síðan. Pétur er for-
maður Æskulýðssambands kirkj-
unnar í Hólastifti. Kona hans er
Ingibjörg Siglaugsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur, og eiga þau 2
syni.
Lítt þokaðist
í samninga-
viðræðunum
LÍTT þokaðist í samningaviðræð-
um þeirra hópa, sem héldu fundi
hjá sáttasemjara í gærdag, en þar
voru farmenn, byggingamenn,
bókagerðarmenn, verkalýðsfélögin
á Tungnársvæðinu, Rafíðnaðar-
samband íslands og viðsemjendur
þeirra.
Fundum verður haldið áfram í
dag hjá farmönnum, en aðrir að-
ilar koma aftur tii fundar eftir
helgina. Yfirvinnubann yfir-
manna á farskipum hefur nú
staðið síðan 14. júní sl. og hefur
þegar raskað áætlunum skipafé-
laganna verulega.
Ríkisútvarp-
ið kærir
Video-son
RÍKISÍJTVARPIÐ hefur nú ákveð-
ið að leggja fram formlega kæru á
hendur fyrirtækinu Video-son
vegna ólöglegra sýninga á leikjum
frá heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins mun málið einnig
komið af stað í Danmörku vegna
meintrar ólöglegrar upptöku
efnis úr danska sjónvarpinu.
Útvarpsstjóri, Andrés
Björnsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að kæra væri
eðlilegt . framhald lögbannsins,
sem sett hefði verið á sýningar
Video-son. Ekki væri ákveðið
hvenær kæran yrði lögð fram né
heldur um upphæð skaðabóta
yrði þeirra krafizt.
Pétur J. Eiríks-
son formaður
Vitaðsgjafa
PÉTUR J. Eiríksson var kosinn
formaður stjórnar Vitaðsgjafa, út-
gáfufélags Helgarpóstsins, á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var
nýverið.
Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Steinar J. Lúðvíksson, Árni Þór-
arinsson, Bjarni P. Magnússon
og Þorgrimur Gestsson. Fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráðinn
Anna Kristín Jónsdóttir.
Pétur sagði að stjórninni hefði
verið heimilað á aðalfundinum
að auka hlutafé félagsins um
helming, en það er nú um 350
þúsund krónur. Pétur kvað
stjórnina ekki hafa tekið afstöðu
til þess enn.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var tapið á rekstri fé-
lagsins á síðasta ári um 300 þús-
und krónur, en Pétur J. Eiríks-
son sagðist ekki geta staðfest þá
tölu.
^KARNABÆR
og umboðsmenn um land allt
Cesar — Akureyri, Epliö — ísafiröi, Eyjabær
— Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavík,
Hornabær — Hornafirði, Álfhóll — Siglufiröi,
Óöinn — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhúsiö
— Hafnarfiröi, Austurbær — Reyöarfirði,
Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli, Sparta —
Sauðárkróki, Skógar — Egilsstööum, ísbjörn-
inn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík, Lindin —
Selfossi, Paloma — Vopnafiröi, Patróna —
Patreksfirði, Báran — Grindavík, Bjóösbær —
Seyöisfiröi, Þórshamar — Stykkishólmi, Inga
— Hellissandi, Hornabær — Höfn Hornafirði.