Morgunblaðið - 09.07.1982, Page 32
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1982
Staða bankanna versnar stöðugt gagnvart Seðlabankanum:
Gjaldeyrisstaðan hef-
ur versnað frá ára-
mótum um tæp 40%
r
Síminná QQnQQ
afgreiöslunni er OOUOö
fHftrgttttMafeth
'
Sími á ritstjóm 4 0100
og skrifstofu: »U IUU
sl. haust voru farnar fimm ferðir í
viku milli Luxemborgar og Hong
Kong, en í dag eru aðeins farnar
tvær ferðir á viku. Ástæður þessa
eru fyrst og fremst aukin sam-
keppni og verulegur samdráttur í
flutningum milli Austurlanda
fjær og Evrópu.
Fleiri vöruflutningaflugfélög
fljúga nú á þessari leið en áður,
auk þess sem farþegaflugfélög,
sem fljúga með breiðþotum á
þessari leið geta undirboðið vöru-
flutninga. Má nefna sem dæmi, að
Boeing 747 farþegaþotur geta tek-
ið um 40 tonn af vörum í ferð, en
það er sama magn og DC—8 vöru-
flutningavélar taka. Farþega-
félögin hafa ekki nýtt fraktrýmið
til fulls með farangri farþega og
— Hugmyndir eyjaskeggja er
að halda uppi flugi milli Seych-
elles-eyja og Luxemborgar a.m.k.
einu sinni í viku á DC-8-þotu og
þeir vilja hefja þetta flug þegar
næsta vetur og halda uppi heils-
ársflugi.
— Á árum áður var mikill
ferðamannastraumur til eyjanna,
en þar búa 60—70 þúsund manns.
Mjög hefur hins vegar dregið úr
honum á undanförnum árum og
kenna eyjaskeggjar sér sjálfum
um það. Þeir hafa áhuga á að gera
bragarbót þar á og eru með hug-
myndir um að fá í kringum 50 þús-
und ferðamenn til eyjanna, en sá
fjöldi sótti þá heim á árum áður.
Við munum gera þeim tilboð á
næstunni sem miðast við eina
DC-8-þotu og áhafnir með henni,
en hins vegar munum við ekki
taka neina áhættu af þessari
starfssemi. Hún yrði alfarið í
þeirra höndum. Við myndum síð-
an hugsanlega geta veitt þeim ein-
hverja þjónustu t.d. í sambandi
við sölumál og fleira, en ekkert
hefur verið ákveðið um það ennþá,
150 til
MIKLIK erfiðleikar eru um þessar
mundir í rekstri Cargolux-flugfélags-
ins í Luxemborg og hefur m.a. veriö
tekin ákvörðun í stjórn fyrirtækisins
um að segja upp 150—200 starfs-
mönnum á næstunni, en heildar-
fjöldi starfsmanna fyrirtækisins er
liðlega 600. Um þriðjungur starfs-
manna Cargolux eru íslendingar bú-
settir í Luxemborg.
Cargolux er fyrst og fremst
vöruflutningaflugfélag og hefur í
gegnum tíðina stundað um-
fangsmikla flutninga milli Aust-
urlanda fjær og Luxemborgar, auk
þess að stunda vöruflutninga milli
Luxemborgar og Afríkulanda ann-
ars vegar og Ameríku hins vegar,
auk ýmis konar leiguflugs.
Mjög hefur hallað undan fæti
síðustu misserin, sérstaklega
hefur flugið til Austurlanda fjær
og Ameríku dregizt verulega sam-
an. Má í því sambandi benda á, að
Svínavatnshreppur:
Tvær samráðsnefiidir?
MIKLAR deilur hafa nú risið upp inn-
an Svínavatnshrepps vegna kosningar
í samráösnefnd um virkjun Blöndu.
Síðasta hreppsnefnd hafði kosið full-
trúa og varafulltrúa í nefndina til
þriggja ára 2. júní síðastliðinn, sam-
kvæmt óskum frá iðnaðarráðuneytinu.
í hreppsnefndarkosningunum þann
26. júní síðastliðinn urðu valdaskipti i
hreppsnefndinni og á fyrsta fundi
nýkjörinnar hreppsnefndar var kjörið
á ný í nefndina án þess að fyrri full-
trúar hefðu sagt af sér.
Þá er það Ijóst að oddviti hrepps-
nefndar, Sigurjón Lárusson, hefur
ekki sent iðnaðarráðuneytinu afrit
af fundargerðum er kosið var í sam-
ráðsnefndina, hvorki af fyrri kosn-
ingunni né síðari, hefur hann að-
eins sent iðnaðarráðuneytinu skeyti,
þar sem segir frá seinni kosning-
unni. Þetta hefur vakið mikla úlfúð
innan hreppsins og hafa nú for-
svarsmenn gamla meirihiutans inn-
an hrepsnefndarinnar ákveðið að
krefjast þess af oddvitanum, að
hann sendi fundargerðir til ráðu-
neytisins eða hann láti þeim í té
ljósrit af fundargerðum þannig, að
þeir geti sjálfir komið þeim á fram-
færi.
Jóhann Guðmundsson, sem kos-
inn var varamaður í nefndina af
fyrri meirihluta hreppsnefndarinn-
ar, sagði í samtali við Morgunblaðið,
að þeir, sem áður hefðu verið kosnir
ætluðu sér að sitja áfram þar til
aðrar fyrirskipanir kæmu frá æðri
stöðum. „Það er mín skoðun að það
sé affarasælast að við, sem upphaf-
lega vorum kosnir í nefndina, sitjum
í henni áfram. Ég álít að þeir, sem
síðar voru kosnir, muni reyna að
tefja framgang mála og þæfa þau.
Við munum þess í stað vinna þannig
að málum, að þau leysist farsællega,
bæði fyrir okkur sveitungana, okkar
nágrannasveitir og þjóðina alla,“
sagði Jóhann.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná í
hreppstjóra Svínavatnshrepps
vegna þessa í gær.
200
starfsmönnum
því farið út í að bjóða farmflytj-
endum ódýrari flutning, en vöru-
flutningafélögin hafa geta boðið.
Þessi þróun hefur reyndar komið
verulega niður á vöruflutninga-
flugfélögum víðs vegar um heim-
inn.
Vegna hinna miklu erfiðleika í
rekstri Cargolux hefur stjórn fé-
lagsins nú ákveðið að leggja ann-
arri Boeing 747 þotu félagsins í
bili, auk þess sem 1—2 DC—8 þot-
um félagsins verður væntanlega
lagt með haustinu, en floti Cargo-
lux telur fimm þotur.
Auk hinnar miklu samkeppni á
flugleiðum Cargolux og minnk-
andi flutninga hefur fjármagns-
kostnaður ennfremur gert mjög
stórt strik í reikninginn hjá félag-
inu. Háir vexir af lánum, sérstak-
lega á annarri Boeing 747 vél fé-
lagsins hefur gert félaginu veru-
lega erfitt fyrir. Lánin af vélinni
eru að mestu bundin í Bandaríkja-
dollurum, en vextir hafa ekki ver-
ið hærri af dollurum um langt
skeið.
Vegna ástandsins hefur stjórn
Cargolux nú farið þess á leit við
ríkisstjórn Luxemborgar, að hún
veiti félaginu stuðning til að halda
rekstrinum áfram, auk þess sem
þess hefur verið farið á leit við
hina ýmsu viðskiptabanka félags-
ins, að þeir veiti félaginu aukna
fyrirgreiðslu og gjaldfrest á skuld-
um.
Eins og áður sagði starfa ná-
lægt 200 Islendingar hjá Cargolux
og er þar aðallega um að ræða
flugliða og tæknimenn, auk þess
sem nokkrir af aðalstjórnendum
fyrirtækisins eru íslendingar, m.a.
forstjóri þess Einar Ólafsson og
framkvæmdastjóri Jóhannes Ein-
arsson.
STAÐA bankanna heldur stöðugt
áfram að versna gagnvart Seðla-
banka íslands, sérstaklega vegna
gífurlega mikils útstreymis á gjald-
eyri og vegna þess að tiltölulega lítið
kemur inn. í venjulegu árferði hafa
bankarnir selt Seðlabankanum
stærstan hluta þess gjaldeyris, sem
inn kemur, en það hafa þeir ekki
getað gert undanfarna mánuði.
Ástandið nú er mjög svipað því
sem það var sumarið 1974, þ.e. ef
tölur eru umreiknaðar á sama
verðlag, en munurinn er sá, að þá
stafaði vandinn af verðsveiflum og
mikilli olíuhækkun, sem voru
Flugleiðir í sam-
starf við stjórnvöld
Seychelles-eyja?
FLUGLEIÐIK hafa átt í samninga-
viöræöum við fulltrúa ríkisstjórn-
arinnar á Seychelles-eyjum í Ind-
landshafi um hugsanlega sam-
vinnu eða aðstoð við stofnun flug-
félags á eyjunum. — Fulltrúar
okkar hafa átt fundi með full-
trúum ríkisstjórnar eyjanna og
m.a. rætt við forsetann, sagði
Björn Theódórsson, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða, í
samtali við Mbl.
sagði Björn Theódórsson ennfrem-
ur.
Þess má geta, að Seychelles-
eyjar fengu sjálfstæði árið 1976,
en þar eru aðallega ensk og frönsk
áhrif ríkjandi.
tímabundin vandamál, en nú sér
hins vegar ekki fyrir endann á
þeim vanda, sem við er að glíma,
sérstaklega er batnandi hagur
sjávarútvegsins ekki í augsýn, en
gífurlegir fjármunir eru þar
bundnir.
Um áramótin var gjaldeyris-
staða bankanna gagnvart Seðla-
bankanum tæplega 2.100 milljónir
króna, en hún hefur síðan farið
stöðugt versnandi, hefur rýrnað
um í kringum 800 milljónir króna,
eða um tæplega 40%, en um síð-
ustu mánaðarmót var hún aðeins
liðlega 1.300 milljónir króna.
Vegna hinnar stöðugt versnandi
stöðu bankanna hafa verið í gildi
undanfarnar vikur mjög strangar
útlánareglur bæði til einstaklinga
og fyrirtækja og samkvæmt þeim
upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í
gærdag er ekki fyrirsjáanlegt, að
hægt verði að rýmka þessar regl-
um á næstunni.
Troðið með tilþrifum
Ljósm. Mbl. KÖE.
Cargolux mun segja upp