Morgunblaðið - 30.11.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1986
C 17
slory of
<rmi <ílwi»ssk«i
ILIZABIIMADLER
Óskir og þrár
upp á sex
hundruð síður
Erlendar bækur
Ekki eru allar
ferðir til fjár
en ferð í Fjörðinn borgar sig!
Ciæsilegustu gólfteppin, flísarnar,
parketiö og hreinlætistækin
færöu hjá okkur á viöráöanlegum
greiðslukjörum.
Og þú ferð ánægður heim.
útborgun 20%.
Eftirstöövar í allt aö 9 mánuöi.
A leading company in
the field of electronic lO]
entertainment products. Irasi
Jóhanna Kristjónsdóttir
Elizabeth Adler: Private Desire.
Útg. Coronet Books 1986.
Leonie er egypsk í föðuræatt,
móðir hennar frönsk. Hún hefur
aldrei þekkt föður sinn og ekki
nýtur hún ástríkis móður sinnar.
Sextán ára flýr hún að heiman og
heldur til Parísar að leita sér frama.
Hún er sérstök í útliti og allir virð-
ast laðast að henni snarlega. Hún
hittir strax í lestinni mann, sem
'síðar reynist henni betri en enginn.
Hún dettur í lukkupottinn og fær
vinnu sem afgreiðslustúlka í tízku-
búð og þar kynnist hún göfugri
ríkiskonu Caro og Alphonso sam-
býlismanni hennar. Caro býður
Leonie í veizlu til sín og þar verða
tveir karlmenn, Rupert nokkur og
Moniseur, yfir sig heillaðir af henni.
Monsieur er ríkur og valdamikill
og hann tekur nú að leggja drög
að því að „eignast" Leonie. Áður
en það getur orðið hefur hún hlaup-
ist á brott með Rupert og stendur
í þeirri sælu trú að hann ætli að
giftast sér. En Rupert á reyndar
þýzka kærustu og yfirgefur Leonie
þótt hann elski hana einhver ósköp.
Þá getur Monsieur látið til skarar
skríða og er ekki að orðlengja það
að áður en við er litið er hún kom-
in með glæsihús í París, þjón á
hveijum fingri, hlutabréf og banka-
innistæður, krá í Cote Azur. Og
blasir nú líklega við henni framtíðin
björt og glæsileg. Að því frátöldu
að Monsieur vill aldrei segja henni,
hvort hann elskar hana eða ekki.
Líklega þarf hann á henni að halda,
en það er henni ekki nóg. Svo að
hún heldur öðru hveiju framhjá
honum. Með vondum afleiðingum,
því að Monsieur lætur sérstakan
útsendara sinn í það árum saman
að fylgja henni eftir. Einhveiju sinni
þegar Leonie er suður á Cote Azur
í kránni sinni strandar skúta rétt
fyrir utan. Og gæðapilturinn Charl-
es kemst naumlega í land. Leonie
hlýjar honum heldur betur og það
svo, að hún verður ófrísk og þá fer
aldeilis að fara um hana. Vísast
verður Monsieur bijálaður úr af-
brýðisemi þegar hann kemst að
þessu. Annað hvort væri nú. Svo
að hún fer í hina klassísku heilsu-
hælisdvöl í Sviss og elur þar bamið.
Og gefur það frá sér grátandi. En
Monsieur lætur ekki deigan síga.
Hann fyrirkemur bamsföðumum á
grimmdarlegan hátt og ætlar síðan
að ná barninu, svo að Leonie geti
ekki yfirgefið hann. Leonie og vinir
hennar koma baminu undan til föð-
urbróður þess í Brasilíu.
Þegar hér var komið sögu var
ég bara komin á bl. 318 og rösk-
lega annað eins eftir. Þá gafst ég
upp og fór ansi lauslega í gegnum
næstu þijú hundruð og fímmtíu
síður.
Ég er sannfærð um að hér er á
ferð kjörin bók til að lesa á tólf
klukkutíma löngum flugferðum.
Áreiðanlega svæfi maður vel eftir
smálestur og gæti síðan tekið til á
ný þegar maður rumskaði. Og væri
svona nokkum veginn með þetta
allt á hreinu. Ef ekki, þá gerði það
heldur ekkert til.
Til sjónvarpstækja-, myndbands-
tækja og hljómtækjakaupenda.
Viök.: Auglýsing Radíóbúóarinnar í Morgunblaðinu
s.1. föstudag, þar sem samanburóur er
geróur á jólatilboói NESCO og Radíóbúðarinnar.
Ágæti lesandi,
Iónþróun er nú ör og framfarir miklar i S-Kóreu, og reyndar víöar í Asíu,
svo sem i Hong Kong, Singapore og Taiwan. Mikiö vantar þó á, aó þessi lönd
hafi náð Japan í hátækni og gæóum, sérstaklega á sviói tæknivarnings. Má
segja, aö þessi lönd séu enn mörgum árum á eftir Japan í þessum efnum.
í raun má líkja ástandi í Asíu, viö þá stöðu, sem er i Evrópu; Austur-Evrópu
löndin saekja fram i iónþróun og framleiðslutækni, en standa þó enn iónrikjum
Vestur-Evrópu langt aó baki, sérstaklega hvaó varóar rafeinda- og tæknivörur.
í auglýsingum sinum ber Radibúóin saman 14" og 20" ORIQN og NESCO littæki,
sem hvortveggja eru japönsk hátækni- og hágæóa tæki, vió sin eigin 14" og 20"
Gold Star tæki, sem framleidd eru i S-Kóreu. Finnst okkur þetta vafasamur
samanburöur og framsetningarmáti! - Jafnvel tilraun til aó villa um fyrir
neytendum.
Aó lokum má taka þaö fram, aó öll sjónvarpstæki, myndbandstæki og hljómtæki,
sem vió bjóóum í NESCO jólatilboóinu i ár, eru ýmist japönsk eóa vestur-
þýzk gæóatæki. Eru þau þó i ýmsum tilvikum jafnvel ódýrari en þau kóreönsku
tæki, sem keppinautarnir reyna aó mæta okkur meö.
Meö vinsemd og
jólakveöju,
ADDRESS: LAUGAVEGUR 10, P.O. BOX: 759, REYKJAVtK, ICELAND. TELEPHONE: 27788 (4 LINES). TELEX: 2129.
CABLE ADDRESS: NESCO, REYKJAVÍK, BANKERS: BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS, MIÐBÆJARÚTIBÚ, REYKJAVÍK
(DOMESTIC AFFAIRS) ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS, REYKJAVÍK (FOREIGN AFFAIRS).
éfjjíntonSBieUvedt, *A(<uuufitujQ)foecto\ - r€A<iiinum
YOUR REF:
YOUR LETTER:
OUR REF: ÓAB/lkg
REYKJAVlK, 28.11.86.