Morgunblaðið - 30.11.1986, Síða 21
Hna — við gerum jólakortin
omnum vélum frá FUJI.
i mKJKmm/Mwt. u i
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1986
eftir þinum eigin
mynclum á aöeins
25 kr. stk* x
Félag kerfisfræðinga
og forritara stofnað
HINN fyrsta nóvember síðastlið-
inn var haldinn stofnfundur
Kerfíss, kerfisfræðinga- og for-
ritarafélags íslands. A fundinn
mættu um 80 manns.
Auðunn Sæmundsson setti fund-
inn, en síðan tók Gyða Richter við
og sagði frá aðdraganda þess, að
til þessa stofnfundar var boðað.
Sagði hún frá því að 5 manna undir-
búningsnefnd hefði starfað frá því
í vor. Hefði nefndin orðið vör við
mikinn áhuga á stofnun félags
þessa, eins og sýndi sig með þeim
mikla fjölda, sem mættur var á
fundinn. Björk Thomsen kynnti
næst tillögur að lögum félagsins,
en að lokum ræddi Helga Sigurjóns-
dóttir um drög að starfsáætlun.
Fundarmönnum var skipt í um-
ræðuhópa, þar sem rætt var um
markmið félagsins, lög og starfs-
áætlun. Umræður urðu mjög lífleg-
ar og margar hugmyndir komu
fram. Allir voru sammála um að
mikil þörf væri fyrir þetta félag,
þar sem Ijöldi þeirra sem vinna á
þessu sviði er orðinn mikill og eng-
in samtök til fyrir þennan hóp.
í lok fundarins var kosin stjóm
og nefndaformenn skipaðir. í stjóm
voru kosin Björk Thomsen, Skelj-
ungi, formaður, — Kjartan Sigur-
geirsson, Reiknistofu bankanna,
varaformaður, — Gyða Richter,
Sjóvá, ritari, — Helga Siguijóns-
dóttir, VKS, gjaldkeri, — Sigríður
Olgeirsdóttir, Skrifstofuvélum,
spjaldskrárritari, — Þórir Dan Jóns-
son, SKÝRR, meðstjómandi, og
Einar Þórðarson, Sjóvá, ritstjóri.
Helstu verkefni félagsins verða
á sviði fræðslumála og endurmennt-
unar, þar sem fagleg þróun í faginu
er ákaflega ör og því mjög áríðandi
fyrir fólk í þessu starfi að halda
vöku sinni í þeim efnum. Félagið
ætlar líka að beita sér fyrir ýmiss
konar könnunum og upplýsinga-
miðlun bæði á sviði kjaramála og
faglegra mála.
(Fréttatilkynning)
Ólafur Halldórsson.
Bókum
leyndardóma
sögunnar
ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi
bókin Horfnir heimar eftir Ólaf
Halldórsson kennara.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „í bók þessari leitast
Ólafur við að varpa nýju ljósi á
ýmsa leyndardóma sögunnar.
Framan á bókinni er mynd af
líkneski sem indíánar í Mið-
Ameríku gerðu af guði sínum
Quetzalcoatl, sem var hvítskeggjað-
ur. Undir myndinni er varpað fram
þeirri spurningu hvort hér hafi
verið um að ræða Bjöm Breiðvík-
ingakappa.
Það má með sanni segja að í
þessari nýstárlegu bók kannar höf-
undurinn ýmsa þætti heimssögunn-
ar sem og sögu Islands — þætti sem
höfundar hefðbundinna vísindarita
og þá sérstaklega sagnfræðirita
hafa veigrað sér við að fjalla um
eða taka afstöðu til.
Víða er leitað fanga og áleitnum
spumingum svarað: Á fjölbreytileg
siðmenning jarðarbúa rætur að
rekja til einnar móðurmenningar?
Er kominn tími til að hrista ræki-
lega upp í viðteknum hugmyndum
um uppmna íslendinga?"
Námsgagnastofnun:
Dagskrá um friðarfræðslu
DAGSKRÁ um friðarfræðslu í
skólum verður haldin í Kennslu-
miðstöð Námsgagnastofnunar að
Laugavegi 166 í Reykjavik á
þriðjudegi. Dagskráin er haldin í
tilefni af friðarári Sameinuðu
þjóðanna og er yfirskrift hennar
„Friður — Hvað getur skólinn
gert og hvemig?"
Dagskráin hefst kl. 14.00 með því
að Sigurður Pálsson deildarstjóri,
Guðrún Agnarsdóttir alþingiskona,
dr. Þórir Kr. Þórðason prófessor og
Guðríður Sigurðardóttir skólaráð-
gjafí flytja ávörp og leitast við að
svara þessari spumingu. Að því
loknu verða umræður og fyrirspum-
ir.
Kl. 16.00 munu þau Margrét Pála
rOIí
Ólafsdóttir, Erling Ölafsson, Bergljót
Ingvadóttir og Aðalbjörg Helgadóttir
greina ftá reynslu sinni varðandi frið-
arfræðslu á dagvistarstofnunum og
í skólum.
Einnig mun liggja frammi til kynn-
ingar erlent efni með ábendingum
og hugmyndum um friðarfræðslu.
Nýtækni-
en aðrir.
- þess vegna getum við boðið lægra verð
\íEr pabbi
þ/nn ^ahur?
I
Bókin Horfnir heimar er sett og
prentuð hjá Steinholti hf. en bundin
í Amarfelli. Kápugerð annaðist
Hrafnhildur Sigurðardóttir.
* minnsta pöntun er 10 stk.
Skipholti 31, sími 25177
Eiðistorgi 13, sími 611788