Morgunblaðið - 30.11.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1986
C 33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Flokkaskipti þingmanna
Fyrir skömmu skrifaði undirrit-
aður stutta blaðagrein um flokka-
skipti þingmanna Bandalags
jafnaðarmanna. Þar benti ég á, að
flokkaskipti þingmanna væru ekki
ný af nálinni, og nefndi ég nöfn
átta þingmanna, er skiptu um
flokka á síðustu áratugum. — Skýrt
tók ég fram, að ég hefði ekki verið
stuðningsmaður BJ, og get bætt
því hér við, að ég er ekki heldur
Alþýðuflokksmaður.
Nú hefur Halldór Kristjánsson
komið fram á ritvöllinn og gert at-
hugasemdir við grein mín. Þar
virðist mér hann ræða málið af
þröngsýni nokkurri. Hann á heldur
ekki hægt um vik, því að ekkert
atriði í grein minni tekst honum að
hrekja. Þess vegna sendir hann mér
og „öðrum ámóta“, eins og hann
orðar það, nokkrar hnútur, sem ég
mun endursenda.
Líklegt þykir mér, að þarna sé á
ferð Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli í Bjarnardal, Mosvalla-
hreppi, Önundarfirði. Ef svo er,
kynnu ýmsir að ætla, að sá maður
hefði betri aðstöðu en vesalingur
minn til þess að ræða þessi mál,
því að það hygg ég, að Halldór
hafi um langt skeið verið á launum
hjá hinu opinbera við að semja
ævisögur alþingismanna (þing-
mannatal). — Það sýnist þó lítt
hafa dugað honum að þessu sinni.
I áminnztri grein minni nefndi
ég átta þingmenn, _er skiptu um
flokka. Þeir voru: Aki Jakobsson,
Asgeir Ásgeirsson, Björn Jónsson,
Gils Guðmundsson, Hannes Jóns-
son, Hannibal Valdimarsson,
Héðinn Valdimarsson og Karvel
Pálmason. Ekki tókst Halldóri að
hrekja þetta. En hann virðist telja
það skipta höfuðmáli, hvort þing-
menn skipta um flokk rétt fyrir
kosningar eða á miðju kjörtímabili.
Slíkt er þó algert aukatriði. Málið
snýst eiinfaldlega um það, hvort
þingmönnum sé heimilt að skipta
um flokka. Þ.e. „to cross the floor“
eins og Englendingar segja og
Winston Churchill o.fl. hafa gert,
í fréttunum sunnudagskvöldið
16. þ.m. voru dapurlegar fréttir
fýrir okkur neytendur. Þar sagði,
að eitt vesælt hitaveiturör hefði
valdið tugmilljónatjóni í listaverka-
geymslu á Korpúlfsstöðum. Ég sá
í anda hið gamla og fallega hús
soðnað niður í hrúgu.
En bíðum við! Tugmilljónatjónið
hafði orðið á listaverkafjalli sem þar
var geymt. Þetta var hliðstætt því,
að tugmilljónatjón hefði orðið í
skemmum, þar sem kjötíjallið, eða
smjörfjallið, eða ostafjallið eða . ..
er geymt.
Eg spurði sjálfan mig: „Hvemig
er það eiginlega með hann Sverri,
hversvegna setur maðurinn ekki
kvóta á þessa listamenn, eins og
eða í annan stað að sameina tvo
flokka, eins og þingmenn íhalds-
flokksins og Frjálslynda flokksins
gerðu 1929 á miðju kjörtímabili.
Þetta tel ég, að þingmönnum sé
heimilt. Og það verða aldrei sett
lög, er banna slíkt, enda væri það
brot á mannréttindum.
Þar sem ég er maður gamall en
langminnugur þó, vil ég gera hér
stuttan stanz, og færa deilu þessa
yfír á heimavöll HK, en mér er
sagt að hann hafi þjónað undir
Framsóknarflokkinn langa ævi. Og
þá víkur sögunni hálfa öld aftur í
tímann, eða til ársins 1933, en í
þann tíð vomm við H.K. báðir ung-
ir. Ur Framsóknarflokknum var þá
vikið þeim Hannesi Jónssyni (hann
var afi Hólmfríðar Karlsdóttur og
ömmubróðir Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar) og Jóni Jónssyni í
Nú eru sumir famir að sleppa
að nokkru eða öllu fallbeygingu
ýmsra nafnorða. Það þykir þó ekki
fara vel í máli. Mun verr þykir mér
þó fara á því, þegar fomöfn eru
rangt eða ekki fallbeygð, en slíkt
hefir heyrst í útvarpi nú nýlega í
nokkur skipti, svo sem eftirfarandi
dæmi sýna.
1. Prestur, er flutti morgunbæn
í útvarpi 20. október sl.,
komst svo að orði: „Kom til
oss“.
2. Hagfræðingur sagði í út-
varpsþætti 2. nóvember sl.,
um kl. 17: „Áhrifin verða sú“.
3. Æskulýðsfulltrúi sagði í við-
talsþætti í útvarpi 4. nóvem-
ber sl.: „Að ein rökin geti
verið sú“.
4. Stjómandi þáttar, sem fluttur
var í útvarpi 5. nóvember sl.
um kl. 18, sagði þar: „Að þar
biði þeirra aldrei sú laun.“
Ekki er nú vakurt þótt riðið sé.
Hér vil ég þó því við bæta, að
ekki vildi ég sjá né heyra Faðirvor-
ið með ófallbeygðum fomöfnum og
Jón á Seglbúðum gerir við sína
menn? — Mega þeir bara framleiða
si svona tugmilljónavirði og setja
inn í geymslur? Síðan mætti greiða
niður innanlandsneyzluna og selja
umframframleiðsluna til (list)-
hungraðra þjóða. Eitthvað verður
ríkisforsjónin að gera. Manngreyin
verða að lifa, það er ekki endalaust
hægt að framleiða tugmilljónavirði
af listaverkum og geyma bara í
kjallaranum hjá Davíð.
Svo er náttúrulega til hin leiðin,
en það er að hlutimir kosti það sem
neytandinn vill borga, þá verður
framleiðslumagnið í takt við mark-
aðinn.
Karl í austurbænum
Stóradal, en á brottu gengu þing-
mennimir Halldór Stefánsson (hann
var faðir Ragnars forstjóra álvers-
ins) og Tryggvi Þórhallsson, auk
Þorsteins Briem ráðherra. Skömmu
síðar vék Ásgeir Ásgeirsson einnig
úr flokknum. Vænti ég, að hér
nægi að minna HK á það að þar
gekk úr Framsóknarflokknum,
skömmu eftir kosningar, aðalleið-
togi hans og fyrrverandi forsætis-
ráðherra (1927—1932), Tryggvi
Þórhallsson.. Ef framansögð atriði
nægja ekki til að sannfæra Halldór
um að flokkaskipti séu eðlileg,
hvenær sem er, þykir mér sýnt að
honum sé meir gefln pólitísk þrá-
hyggja, en víðsýni eður skilningur
á augljósum hlutum.
Þökk fyrir birtingu.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Guðmundsson
ætla ég að svo myndi mörgum fleiri
fara.
Sakna Péturs
úr þularstarfi
Kæri Velvakandi.
Þar sem allir virðast velkomnir
í dálka þína, leyfi ég mér að senda
línu. Það sem liggur mér fyrst og
fremst á hjarta er að Pétur Péturs-
son skuli horfinn úr þularstarfi.
Hvernig getur Ríkisútvarpið var-
ið að svipta hlustendur þess lang-
besta þul. Pétur hefur óvenju skýra
og fallega rödd, hjá honum kemst
hvert einasta orð til skila; fyrir nú
utan allar ambögurnar sem hann
leiðréttir. Við fáum að hafa Pétur
hjá okkur 1 V* tíma á viku, og það
á þeim tíma er fjöldinn getur ekki
notið þeirrar hugljúfu tónlistar er
hann flytur okkur. Við skorum á
Ríkisútvarpið að endurskoða þessi
mál.
Þulirnir sem gegna störfum frá
kl. 7 til 9 á morgnana ættu að fara
á námskeið til að þekkja á klukk-
una, því fáir eru þeir morgnar sem
ekki er missagt um klukkuna, og
sjaldan afsakað.
Þá vil ég nefna tvær konur er
gjarnan mættu oftar láta heyra í
sér hjá Velvakanda, og víðar. þess-
ar konur eru Sigurveig Guðmunds-
dóttir og Þórunn Guðmundsdóttir.
Þessar orðhögu konur eiga ekki
erfítt með að tjá sig á móðurmálinu.
VG
Missið ekki af
tónlistarþættin-
um „Samhljómi“
Einn er sá þáttur í Ríkisútvarp-
inu, sem mér finnst sérstaklega
skemmtilegur. Hann heitir Sam-
hljómur og hefur verið undanfama
fóstudagsmorgna á rás 1 undir
stjóm Sigurðar Einarssonar.
Þama flytur Sigurður mjög góða
sígilda tónlist, sem ég myndi álíta
að væri við allra hæfi, ekki enda-
lausar symfóníur heldur yndisleg
lög eftir þekkt tónskáld, sem flestir
kannast við.
Auk þess er framsögn Sigurðar
til fyrirmyndar. Hann talar hægt
og skýrt og er það mikil hvíld frá
þeim æðibunugangi, sem flestir
umsjónarmenn á rás 2 og Bylgjunni
hafa tamið sér. Veit ég að mörgu
fullorðnu fólki reynist erfítt að
fylgjast með þeim.
Eg vil benda fólki á að láta þenn-
an tónlistarþátt ekki fara fram hjá
sér og vona að forráðamenn tónlist-
armála hjá útvarpinu feli Sigurði
umsjón fleiri slíkra þátta.
V.B.
Um kvóta og
okkur neytendur
Um fallbeygingu fallorða
Full búð af nýjum vörum
Kuldaúlpur með hettu á ........................ kr. 4.000.
Konukjólar í öllum stærðum á .................. kr. 1.800.
Terelynekápur með loðfóðri á .................. kr. 4.800.
Pilsimörgumlitum,verðfrá ...................... kr. 1.200.
Síðir kjólar á ................................ kr. 3.800.
Kvöldkjólar, fjölbreytt úrval, verð frá ....... kr. 2.500.
Blússur.margargerðir.verðfrá .................. kr. 1.200.
ítalskarhandtöskur.svartarogbrúnar.verðfrá ...... kr. 400.
Dalakofinn,
Linnetstíg 1, Hafnarfirði, sími 54295.
ÞEIR '
KAUPENDUR ,
ÍBÚÐAR-
HÚSNÆÐIS,
sem hafa skrifleg lánsloforð
Húsnæðisstofnunar í
höndunum, standa betur að
vígi en þeir, sem hafa þau ekki.
o^Húsnæðisstofnun i
ríkisins
yui'
rftin
FALKIN N
Þekking Reynsla Þjónusta
SUPURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670